Læknaneminn - 01.09.1969, Side 62
51,
LÆKNANEMINN
hljóðbylgjumeðferð veldur lítilli
hitamyndun í fituvef en töluverðri
í vöðvavef. I beinvef verður hita-
myndunin sérstaklega mikil, þar
eð beinvefurinn endurvarpar hljóð-
bylgjum.
Því hefur verið haldið fram, að
hljóðbylgjur valdi sjálfar mjög
lítilli hitamyndun, en áhrif þeirra
byggist á áhrifunum á taugarnar.
Þegar sympatisku taugaþræðirnir
verði fyrir hljóðbylgjum, minnki
æðaþrengjandi áhrif þeirra og
blóðstreymið aukist. Áhrifin á
skyntaugarnar minnki sársauka,
áhrifin á hreyfitaugarnar dragi úr
spennu í vöðvum og þetta séu
ástæðurnar fyrir þeim árangri, sem
fæst við meðferð með hljóðbylgj-
um.
Indíkationir
Þegar hljóðbylgjur komu fyrst
á markaðinn sem læknismeðferð,
voru áhrif þeirra talin vinna bug
á svo mörgum sjúkdómum, að þeir
verða vart upp taldir, en reynslan
hefur leitt í ljós, að hljóðbylgju-
meðferð hefur bezt áhrif á eftir-
talda sjúkdóma: Þær eru mjög
góðar við blæðingu í vefi og í liði
og einnig við liðtognun, peri-
tendinosis, periarthrosis humero-
scapularis, epicondylitis, arthrosis
og spondylosis. Auk þessa telja
sumir hljóðbylgjur gcðar við
neuralgi. Hljóðbylgjumeðferð
kringum legusár hefur einnig
reynzt vel.
Kontraindíkationir
Á sama hátt og indíkationir
fyrir hljóðbylgjumeðferð hafa ver-
ið mjög ýktar, hafa hætturnar,
sem þeim fylgja, einnig verið ýkt-
ar. Augað má ekki verða fyrir
hljóðbylgjum, ekki þungað móður-
líf, eistu, eggjastokkar, vaxtar-
svæði beina í börnum né svæðið
yfir hjartanu og síðast en ekki sízt
má ekki gefa hljóðbylgjur á ill-
kynja æxli.
Heimildarit:
EJ.ektrotherapi: E. C. Hansen, dr.med.
Fysiurgi: Ove Boje dr. med.
KULDA MEÐFERÐ
Yfirlit yfir þróun síðustu ára í notkun
kulda í sjúkraþjálfun
Kuldameðferð er alls engin nýj-
ung innan sjúkraþjálfunarinnar.
Allt frá dögum Hippokratesar hef-
ur verið ágreiningur um, hvort
hafi meiri áhrif, hita- eða kulda-
meðferð, en enn hefur ekki tekizt
að sanna það með vísindalegum
aðferðum. I dag er kuldi mikið
notaður í sjúkraþjálfun um allan
heim, og tilgangurinn með þessari
grein er að reyna að benda á þær
helztu lífeðlisfræðilegu staðreynd-
ir, sem sýna, hvers vegna kulda-
meðferð minnkar sársauka og
bjúg, dregur úr spasma og spasti-
citeti og auðveldar vöðvastarfsemi.
Með þekkingu síðari tíma á að-
ferðum til að erta stóru framhorns-
frumurnar í mænunni hefur komið
í ljós, að notkun íss er fljót og
áhrifarík aðferð til að hindra
taugahvatningu (impuls) svo