Læknaneminn - 01.09.1969, Side 65
LÆKNANEMINN
57
og örva þannig samdrátt vöðva,
um leið og slakað er á andstæð-
ingum (antagónistum) þeirra. Sem
dæmi má nefna aðferð til þess að
fá m.tiþialis anterior til að drag-
ast saman hjá hemiplegisjúklingi
með spasticitet í plantarflexorun-
um. ísteningi er strokið yfir húð-
ina yfir m.tibialis ant. og þess er
gætt um leið að þerra allt vatn,
áður en það kemur á önnur húð-
svæði. Þetta er aðeins gert í fáar
sekúndur. Handklæði með ísflísum
í er lagt yfir mm.gastrocnemii og
togað er í hælinn til þess að teygja
á m.soleus, um leið og kuldinn
minnkar spasticitetið. Sjúkraþjálf-
arinn heldur taki sínu í leggvöðv-
ana og byrjar að banka á hælinn
medio-plantart til þess að fram-
kalla enn frekari hvatningu. Þegar
öll taugaboðin hafa náð að verka
á framhornsfrumurnar (eftir u.þ.
b. 5 mín.), er sjúklingurinn beðinn
um að beygja ristina upp. Hver
svo sem árangurinn af fyrri til-
raunum í þessa átt hefur verið,
munu vöðvasamdrættir, sem fást
fram eftir þessa meðferð, að öllum
líkindum verða sterkari og haldast
lengur.
Nudd með ísteningum
Þessi lækningameðferð er stór-
kostlega mikilsverð, þegar kenna
þarf sjúklingum að meðhöndla sig
heima. Grant hershöfðingi og sam-
starfsmenn hans við Brooke Army
Medical Center í Texas fundu þessa
meðferð upp. Þeir þurftu að senda
hermennina aftur til herþjónustu
eins fljótt og unnt var, því að ann-
ars hefðu þeir orðið að byrja í her-
skólanum að nýju. Þeir tóku að
nota nudd með ísteningum og kom-
ust að þeirri niðurstöðu, að það
var fljótvirkasta sjúkraþjálfunar-
aðferðin til þess að draga úr sárs-
auka og endurheimta hreyfanleika.
Margir bráðir sjúkdómar brugðust
vel við nuddi með ís, t.d. arthritis,
bursitis, myositis og ofþreyta.
Nudd af þessu tagi er einnig
áhrifaríkt við liðskemmdum í
hrygg. T.d. er meðferðin notuð á
hálssvæðið, ef sársauka leiðir það-
an út í öxlina, og getur sársauk-
inn þá horfið samstundis.
Tilgangurinn með meðferðinni
er að brjóta sársaukamunstur, þar
sem sársaukinn er vanabundinn.
Kuldinn deyfir taugaendana og
stöðvar taugaboðin. Þegar sárs-
aukinn minnkar, er hægt að ná
eðlilegum hreyfanleik með aktív-
um æfingum.
Kontraindíkationir
Erfitt er að telja upp sjúkdóma,
þar sem kuldameðferð er fráráðin,
þar eð þeir, sem notað hafa þessa
meðferð, eru ekki á einu máli.
Einnig er erfitt að benda á lífeðlis-
fræðilegar ástæður vegna mismun-
arins á allsherjar (universal) og
staðbundinni (lokal) kuldameð-
ferð. Sjúklingum með illkynja
æxli og livítblæði er ekki gefin
allsherjar kuldameðferð, en hins
vegar bendir ekkert til þess, að
staðbundin meðferð sé fráráðin.
Vegna áhrifanna á blóðrásina er
kuldameðferð ekki notuð, sé sjúkl-
ingurinn með hjartasjúkdóm, og
sumir nota ekki kuldameðferð á
bringuna og vinstri öxl. Áhrifin á
djúpu blóðrásina eru óviss og
áhrifin á blóðþrýstinginn óþekkt.
Rannsóknir á þessu sviði eru nú
gerðar á St. Mary’s Hospital, Lon-
don, Department of Physical Medi-
cine. Læknar, sem nota steroida-
sprautur, vilja ekki beita kulda-
meðferð í 24 klst. eftir sprautuna.
Afleiðingin af slíkri meðferð strax
eftir sprautu er óþekkt.