Læknaneminn - 01.10.1987, Page 29
Hlutdeild rauðra blóðkorna í
eyðingu mótefnafléttna
Björn Hjálmarsson læknanemi
í upphafi var ætlunin að hafa
þessa ritgerð eingöngu um hlutverk
rauðu blóðkornanna í ónæmis-
kerfinu. En vegna þess að hún á að
vera skiljanleg hverjum þeim, sem
hefur eilitla innsýn í ónæmisfræði, er
skotið inn inngangskafla sem stað-
setur viðfangsefnið innan ónæmis-
fræðinnar. Hann fjallar í grófum
dráttum um þær undirstöðueinigar
ónæmiskerfisins, sem þekkja verður
til að skilja hið „non- respiratoríska"
hlutverk rauðu blóðkornanna í
ónæmiskerfinu.
í samræmi við framangreint
markmið eru íslensk orð notuð yfir
þá hluti og hugtök sem talað er um,
séu þau tiltæk. Ef íslenska orðið er
fátítt í rituðum texta eða jafnvel
frumsamið, er enska orðinu skeytt
(innan sviga) aftan við það, til þess
að sneiða hjá misskilningi. Þegar um
allt hefur þrotið er enska orðið notað
innan gæsalappa.
Ritgerðin er í þremur köflum.
Fyrstur er framangreindur inngangs-
kafli sem skiptist upp í fjóra hluta.
Sá fyrsti þeirra segir frá eiginleikum
mótefna og myndun fléttna (e.
complexes), þegar mótefni bindast
þeim mótefnisvökum sem stuðluðu
að seytrun þeirra úr B-eitilfrumum.
Nefndar verða þær kenningar sem
eiga að skýra útfellingar mótefna-
fléttna úr lausn. Annar hlutinn er
um klofningarkerfið (e. complement
system) og hlutverk þess og þriðji
um þá viðtaka (klofningarviðtaka; e.
complement receptors), í frumu-
himnum ákveðinna fruma, sem
bindast virkjuðum klofningarþáttum
(e. activated complement factors).
— Rauðu blóðkornin hafa einmitt
slíka viðtaka. Um þá og hlutverk
þeirra í heilbrigði og sjúkdómum
fjalla seinni kaflarnir tveir. — Fjórði
hluti fyrsta kafla skýrir hvers vegna
þörf er á, að endurskoða þær aðferðir
sem notaðar hafa verið til þess, að
þéttnimæla mótefnafléttur í blóð-
vatni.
Kafli II snýst um klofningarvið-
takann á rauðu blóðkornunum.
Hann er best þekktur allra klofning-
arviðtaka og fjallað verður um hlut-
verk hans og gerð. Þessi viðtaki
bindst klofningarþáttum C3b og
C4b en þeir bindast samgildum
tengjum við mótefnafléttur og vissar
sameindir á yflrborði örvera. Reynt
verður að samþætta umræðuna um
þennan viðtaka og þær undirstöðu-
eininingar ónæmiskerfisins sem
nefndar eru í inngangnum.
Kafli III segir frá nýlegum upp-
götvunum sem hafa leitt til gagngers
endurmats á hreinsikerfi mótefna-
fléttna og ekki síst hlutdeild rauðu
blóðkornanna í því. Tengsl starf-
rænna bilana í þessu kerfi við sjúk-
dóma, einkum og sér í lagi við sjálfs-
næmissjúkdóma,* hafa gert rann-
sóknir á þessu sviði geysilega
hagnýtar í klínísku1 (e. clinical) til-
liti.
Að lokum er kafli undir heitinu
samantekt. í honum eru dregin sam-
an aðalatriðin og spáð í stöðuna á
þessu sviði. Þær hröðu framfarir sem
orðið hafa á allra síðustu árum hafa
vakið margar spurningar. Vonir og
vissa rannsóknarmanna um árangur
rannsókna sinna hvetur þá til dáða.
Avinningur af uppgötvunum þessara
manna, fyrir ónæmisfræðina og ekki
síður heilbrigðisþjónustuna, er þegar
orðinn mikill og verður meiri í nán-
ustu framtíð.
Þess skal getið að við samningu
þessa ritverks var stuðst við fram-
setningu þeirra Sciffereli’s JA ofl.2 og
Ross GD ofl.3 í yfirlitsgreinum þeirra
um þetta efni. Myndir 1 og 3 eru
teknar upp úr grein Scifferli og
mynd 2 og tafla 1 eru unnar útfrá
fyrirmyndum í grein Ross.
I. Inngangur
í dýrum er líffærakerfi, sem ver
þau sýkingum af öllu tagi, þegar yf-
irborðsvarnir þeirra bresta. Það kall-
ast ónæmiskerfi. Ónæmisfræði eru
fræðin um þetta kerfi. Ónæmiskerfið
er hluti af jafnvægikerfi dýra sem
viðheldur þeirra innra jafnvægi. í
þessu lífsnauðsynlega kerfi, hefur
ónæmikerfið það hlutverk; „að
vernda dýr gegn óhóflegri röskun af
* Þessi flokkur sjúkdóma gengur oft-
ast undir nafninu sjálfsofnæmissjúkdóm-
ar án þess þó að ónæmisviðbrögðin gegn
sjálfssameindum, í fólki með þessa sjúk-
dóma, séu frábrugðin þeim í heilbrigðum
einstaklingum við framandi sameindum.
Á ensku væru þessir sjúkdómar flokkaðir
sem; „diseases resulting from immuno-
logically mediated tissue-damaging
reactions" ef það væri ekki of löng lýsing
og óþjál.9
LÆKNANEMINN ^987-40. árg.
27