Læknaneminn - 01.10.1987, Síða 66
Á mynd A sést æxli í höfði brisins fyrir aðgerð Mynd B sýnir ástandiö
eftir Whipple aðgerð þar sem Qarlægður hefur verið hluti birssins, hluti
magans, skeifugögn, efsti hluti ásgarnar, gallpípa ásamt gallblöðru. Enn-
fremur hefur verið gerð vagotomia
sneiðmyndun gæti ERCP verið
næsta rannsókn, en hún gefur oft
góða mynd af ástandi gallvega og
brisganga. Vefjasýni (með aðstoð
ómunar eða tölvusneiðmyndar) er
gjarnan tekið snemma svo og brissafi
í frumuskoðun (cytologiu) þegar gert
er ERCP (2). Ef breytingar sjást á
brisi við ómun/tölvusneiðmynd en
gallgangar virðast ekki víkkaðir er
möguleiki að reyna finnálarástungu
á æxlið með aðstoð ómunar. Ef
massi sést við ómun/tölvusneiðmynd
og gallgangar eru víkkaðir gæti
næsta rannsókn verið ERCP eða
PTC (percutaneous transhepatic
cholangiography). Með PTC er
mögulegt að sjá hvar stífla í gall-
göngum er staðsett (2). PTC gefur
hins vegar ekki miklar upplýsingar
um ástand briskirtilsins. M.a. grein-
ingaraðferða má nefna coeliac æða-
myndatöku, sem í völdum tilfellum
gefur oft ágætar upplýsingar um
ástand briskirtilsins (28). Æða-
myndataka getur einnig gefið góðar
upplýsingar um legu æða í efri hluta
kviðarhols ef fyrirhuguð er aðgerð til
að nema brott æxli í brisi (2).
Enn er töluvert um að kviðrista
með eða án vefjasýnatöku sé beitt til
greiningar á sjúkdómnum eða æxli
finnst í brisi þegar verið er að gera
aðgerð á kviðarholi vegna annars
meins t.d. gaflsteina (2). Hefðbund-
in rtg.mynd af efri meltingarvegi
með barium skuggaefnisgjöf gefur oft
litlar upplýsingar um stærð briskirt-
ilsins. Þó er hugsanlegt að slík mynd
gæti sýnt kafkanir á svæði kirtilsins
og óreglulega eða stækkaða skeifu-
garnalykkju (vegna æxlisvaxtar í
höfði briskirtilsins) í langt gengnum
sjúkdómi (2).
Meðferð
Meðferð krabbameins í brisi
getur verið þríþætt, skurðaðgerð,
krabbameinslyf og geislameðferð.
Brottnám æxlis með skurðaðgerð er
eina áhrifaríka meðferðin. Aðeins 10
— 15% sjúklinga eru hæfir í slíka að-
gerð við greiningu og er æxlið þá
nær undantekningarlaust í höfði
briskirtilsins (29). Til að æxlið geti
talist skurðtækt verður það að vera
bundið við brisið og helst ekki meira
en 2 cm. í þvermál (2).
Tvær algengustu aðferðir við
brottnám æxlis úr briskirtli eru svo
kölluð Whipple aðgerð og total
pancreatectomy (2). Við Whipple
aðgerð er höfuð og háls briskirtilsins
numið brott ásamt skeifugörn, mis-
miklum hluta maga og ásgarnar (jej-
unum), gallblöðru, gallpípu (chol-
edochus) og eins miklu af aðliggj-
andi eitlum og mögulegt er. (2).
Total pancreatectomy er viðameira
framhald af Whipple aðgerð þar sem
bolur og hali brissins er einnig num-
inn brott ásamt milta og víðtækara
brottnám aðliggjandi eitla (2). Eftir
aðgerðina er magastúfur tengdur við
það sem eftir er af ásgörn og það sem
eftir er af briskirtli eftir Whipple að-
gerð er einnig tengt við ásgörn.
Ductus hepaticus er síðan tengdur
niður í ásgörn.
Whipple aðgerð hefur þann kost
að hluti briskirtilsins er skilinn eftir
og kemur það í veg fyrir sykursýki og
minnkaða upptöku næringarefna
(malabsorption) (29). Skiptar skoð-
anir eru um það hvor aðgerðin sé
betri við meðferð á krabbameini í
brisi. Ekki hefur tekist að sýna fram
á að langtímaárangur sé betri af
annarri hvorri meðferðinni. Aðgerð-
irnar eru hins vegar stórar og dánar-
tíðni í aðgerðum allt að 2o% (1).
Eftir brottnám æxlisins hefur því
verið lýst að 5 ára lifun geti aukist
upp í 10% úr 2% (30, 36).
Þegar ekki er gerlegt að nema æxl-
ið brott er oft mögulegt að lina þján-
ingar sjúklinga með svokallaðri frið-
unarðagerð (palliation). Tvenns
konar aðgerðir eru gerðar í því
skyni. Framhjálhlaup á gallvegum ef
gula, mikill kláði eða gallgangabólga
(cholangitis) er til staðar. Hægt er
að gera ýmist cholecystojejunostom-
iu eða ef tregða er á rennsli á milli
lifrar og gallblöðru — hepaticojejun-
ostomiu (2). Ef æxli er vaxið inn í
skeifugörn eða veldur þrýstingi á
skeifugörn þannig að hindrun hlýst
af er mögulegt að gera gastrojejun-
64
LÆKNANEMINN ^987-40. árg.