Læknaneminn - 01.10.1987, Síða 70
Greinargrerð formanns
F.L.
1986-1987
Hér á eftir verður greint frá helstu
málum sem formaður og stjórn félags-
ins höíðu afskipti af á liðnu starfsári.
Opið hús læknadeilar
Eitt affyrstu verkefnum nýkjörinn-
ar stjórnar í október ’86 var að undir-
búa bás félagsins við „Opið hús
læknadeildar“, alþýðu til kynningar í
tilefni af 75 ára afmæli Háskóla
íslands. Var þetta haldið laugardag
einn í galtómu og hálfkláruðu hús-
næði deildarinnar við Vatnsmýrar-
veg, sem þar er til húsa ásamt tann-
læknadeild og húsið því þekktara
undir nafninu „tanngarður“. í ljós
kom að félagið þurfti sjálft að greiða
kostnaðinn og var því brugðið á það
ráð að fjölrita kynningarbækling fé-
lagsins og selja baksíðuauglýsingu,
sent Tóro hf. keypti og dreifa síðan til
gesta og gangandi. Starfsemin var
kynnt með myndum, veggspjöldum
og líkt eftir lesaðstöðu dæmigerðs
læknanema með öllum helstu texta-
bókum. Okkar ástkæra blaði Lækna-
nemanum var útbýtt ásamt kynning-
arbæklingi og nýfengin Macintosh
plus tölva var kynnt með stolti. Fjöl-
margir læknanemar mættu til starfa
við kynningu á hinum ýmsu deildunt
læknadeildar og þótti takast vel í alla
staði. Fulltrúaráðið skipulagði og sá
um kaffi- og kökusölu í samvinnu við
tannlæknanema og samkvæmt sam-
þykkt aðalfundar var ágóðinn látinn
renna í sjóð til niðurgreiðslu á vís-
indaleiðangri.
Kynningarfundur
Eitt af síðustu verkefnum stjórnar
var að halda kynningarfund fyrir 1.
árs nema. Að þessu sinni var enginn
gestur frá læknadeild vegna kynning-
arnámskeiðs sem deildin stóð fyrir í
fyrsta sinn í haust. A fundinum var
dreift nýendurbættum kynningar-
bæklingi. Eftir létta inngangsræðu
formanns kynntu forsprakkar hinna
ýmsu embætta, nefnda og ráða starf-
semi sína og auglýstu jafnframt eftir
embættismönnum. Var haldið uppi
svo öflugum áróðri fyrir félaginu að
nánast var slegist um embættin. Síð-
an var bókakynning og almenn um-
fjöllun um námsefni 1. árs. Að lokum
voru félagsskírteini boðin til sölu og
runnu út eins og heitar lummur.
Aðstaða læknanema á
Landspítala
í áraraðir hafa fulltrúar stúdenta í
deildarráði vakið máls á aðstöðuleysi
stúdenta sem stunda sitt verklega
nám á Landspítalanum, sjálfu há-
skólasjúkrahúsinu. Stjórn F.L. ’84—
’85 skrifaði valdhöfum kvörtunarbréf
þess efnis. Ur varð, að forstjóri ríkis-
spítalanna hét að innrétta á þeim
vetri geymsluloftið í gamla spítalan-
um með aðstöðu fyrir stúdenta. En
ekkert gerðist.
Á starfsvetrinum ’85-’86 hófu full-
trúar F.L. sóknina enn á ný og fengu
vilyrði úr öllum áttum fyrir aðstöðu
læknanema á „Háskólaklínikinni".
En sem áður gerðist ekki neitt. Brugð-
ið var á það ráð að F.L. skilaði inn
teikningum í haust af mögulegri að-
stöðu á géymsluloftinu.
Fulltrúar félagsins í ár hófu starfs-
vetur sinn með því að fylgja þessu
máli eftir. En þá hafði málið verið
samþykkt af hálfu deildarráðs og sent
læknaráði til frekari afgreiðslu. Um
haustið var haldinn almennur lækna-
ráðsfundur Landspítalans, þar sem
efni fundarins var auglýst sem bygg-
ingarmál stofnunarinnar. Brugðu for-
maður og ritari sér á þennan fund til
að kanna hvort fyrirhugaðar fram-
kvæmdir tii handa læknanemum
væru þar á blaði. Ekki reyndist svo
vera þannig að formaður taldi það
skyldu sína að taka til máls á þessum
opna fundi og vekja athygli á máli
þessu, sumum til skelfingar en öðrum
til óblandinnar ánægju.
í vor var haldinn annar almennur
læknaráðsfundur um byggingarmál
Lsp. Brá formaður sér á fund þennan
að þessu sinni í von um betri upp-
skeru. Mér, félaginu og öllum lækna-
nemum til ánægju var samþykkt af
byggingarnefnd Landspítalans að
veita fé og hefja framkvæmdir á inn-
réttingu geymsluloftsins í gamla
spítalanum handa læknanemum
samkvæmt fyrirliggjandi teikningu í
janúar 1988.
Ég mun ekki trúa þessu fyrr en ég sé
það með eigin augum en vonandi er
þetta í sjónmáli. Aðstoðarlæknar á
Lsp. með FÚL í fararbroddi hafa
einnig staðið í viðræðunt við læknaráð
varðandi aðstöðuleysi og haft auga-
stað á rými gamla bókasafnsins. Stað-
an er sú að verið er að innrétta hluta af
því rými sem herbergi læknanema. Þá
aðstöðu höfum við þangað til
geymsluloftið verður innréttað þar
sem mál læknanema á sér lengri að-
draganda. Eftir það afhendum við að-
stoðarlæknum herbergið til umráða.
Deildarfundir
Helstu mál, sem tekin voru fyrir á
deildar- og deildarráðsfundum, er
getið annarsstaðar en hér verður farið
ítarlega í nokkur þeirra.
Deildarfundir voru aðeins tveir,
einn að hausti og einn að vori.
Deildarfundur 19. nóvember 1986: Á þess-
um fundi voru á dagskrá stöðuveit-
ingar, tillaga um vísindanefnd lækna-
deildar, sem var samþykkt með breyt-
ingartillögu og sitthvað fleira sem
óþarfi er að telja upp hér. Einnig voru
á dagskrá beiðni um nýjar stöður,
kynning á numerus clausus og bygg-
ingarmál læknadeildar. En þar sem
fundartíminn var útrunninn skýrði
deildarforseti aðeins lítillega frá þess-
68
LÆKNANEMINN «4987-40. árg.