Læknaneminn - 01.10.1987, Qupperneq 76
tími í'er í að íjalla um mál sem væru
sumum óviðkomandi og dýrmætum
tíma þeirra þannig sóað.
Eftil vill væri lausnin sú að ákveðn-
ir stjórnarmenn tækju að sér nánara
samband við formenn ákveðinna
nefnda eða ráða, flyttu mál þeirra á
stjórnarfundum og spöruðu þeim
þannig fundarsetu, en settum mark-
miðum væri samt náð.
Almennt var stjórnarsamstarfið
gott en það sem helst setti svartan
blett á samstarfið var ágreiningur um
fjármál og stefnu félagsins í þeim efn-
um á haustmánuðum ’86. Þess ber að
geta að velta félagsins hefur stóraukist
á síðustu misserum og var á þessu ári
rúmlega 600 þúsund kr. Oll fjármál
eru samkvæmt lögum í höndum
stjórnar sem ákveður fjárveitingar til
ýmissa verkefna. Styrkjasem aflað erí
nafni félagsins til ákveðinna sérverk-
efna þurfa að mínum dómi ekki að
fara í gegnum stjórnina og ætti þannig
að vera hvatning manna til fjáröflun-
ar til slíkra sérverkefna.
Að lokum
Þar sem nú tíðkast sú íþrótt að gefa
lærimeisturum okkar einkunnir og
umsagnir fyrir frammistöðu, ætla ég
að gera slíkt hið sama um stjórnar-
meðlimi.
Formabur?
Ritari: var annasamur við fundar-
gerðarskriftir og í daglegum rekstri
félagsins. Sýndist mér hann skemmta
sér konunglega á deildarráðsfundum,
en þurfti oft að dvelja löngum stund-
um á geðdeild Lsp. sökum „Furor fótó-
statikum", (m.ö.o. ljósritunarmaníu).
Formaður kennslunefndar: sá um um-
fangsmikið starf í skoðanakönnuninni
og sýndi ákafa viðleitni til umbóta í
kennslumálum. Ennfremur hafði
hann mikla umhyggju fyrir hinum al-
menna félagsmanni. Einnig þótti
honum bollan íjólaboðinu góð.
Gjaldkeri: stóð sig vel í að halda
félaginu af svörtum skuldalista en
jafnframt grynnkaði duglega á digr-
um sjóðum félagsins. Bar þó lítið á
honum í hinum daglega rekstri og
kom seinastur stjórnarmanna af fjöll-
um í upphafi stjórnarsetunnar.
Formaður frœðslunefndar: skipulagði
ágæta fræðslufundi vetrarins en var
iðulega með símatíma sinn á stjórnar-
fundum. Sá hann um kók og prins
sölu fyrri hluta vetrar en líklegast hef-
ur botninn dottið úr kókkælinum eftir
jól. Hefði mátt gera meira átak í
fræðabúrsmálum.
Stúdentaskiptastjóri: verkefni stúd-
entaskiptastjóra voru fá þar til fram
yfir áramót og var lítið komið nálægt
hinum daglega rekstri. Aðal starfs-
tíminn er frá og með stúdentaskipta-
stjóraþinginu í apríl og fram yfir sum-
artímann. Vil ég því gagnrýna fram-
göngu aðalstúdentaskiptastjóra í að
afsala sér ábyrgð á stúdentaskipta-
málum í hendur lítt reyndum aðstoð-
arstúdentaskiptastjóra og dveljast er-
lendis í júní og júlí. Hinsvegar gengu
stúdentaskiptin vel og voru stúdentar
ánægðir sem hingað komu.
Umsjónarmaður Ijósrita: sýndi ljósrit-
unarvélinni okkar ekki nógu mikinn
kærleik e. t. v. af ótta við „furor fótósta-
tikum". Gera þarf átak í ljósritunar-
málum í framtíðinni, e.t.v. mynda
markaðsstefnu með formanni
fræðslunefndar. „Kók og Ijósrit s.
19455“.
Ritstjóri Meinvarpa: var duglegur við
að koma þessum vinsælu pésum út.
Hentuðu þeir ákaflega vel til skutlu-
gerðar þetta árið. Helsta vandamál
var þó að fá fleiri til að skrifa í Mein-
vörp. Með auknum tölvukosti á ég
von á að vegur Meinvarpa aukist á
næstunni.
Varamaður: Mætti vel á stjórnar-
fundi þrátt fyrir numerus clausus og
gegndi því mikilvægu hlutverki í að
tryggja að 1. árið yrði enganveginn
útundan. Þess ber að geta að um-
ræddur varamaður er nú á 2. náms-
ári.
Með kveðju.
Helgi H. Sigurðsson
formaður F.L. 1986-1987.
Stjórnarfundir 1986—87
Voru 35 á starfsárinu. Þeir voru viku-
lega á mánudagskvöldum kl. 20.15 í
Suðurgötu 26 b. Langflest sem upp
kemur í deildinni kemur fram og er
rætt á stjórnarfundum. Oft fór það
svo að við unnum fram undir mið-
nætti, sérstaklega þegar verið var að
undirbúa auglýsingar eða/og Mein-
vörp. Einnig kom það oft fyrir að um-
ræður um málefni drógust á langinn
fram eftir kvöldinu. Með tilliti til
þessa væri hentugra að halda stjórn-
arfundina fyrr á mánudögum, t.d. um
kl. 17.00.
Á sama tíma var ljósritinn opinn og
fræðabúrið, en ekki var mikil notkun á
þeirri þjónustu.
Sú breyting varð í vetur að ritstjóri
Læknanemans hætti þátttöku í stjórn-
inni skv. samþykki félagsfundar 4. 12.
1986, þar sem hann þótti hafa nóg að
gera við Læknanemann. Þannig eru
nú níu manns í stjórn F.L. í stað tíu
áður.
Á sama félagsfundi voru samþykkt-
ar vinnureglur fyrir stjórn að halda
formannafundi, þar sem boðaðir
væru formenn hinna ýmsu nefnda,
sem ekki hefðu fasta setu í stjórninni.
En þeir eru fáir eins og reglurnar eru
núna. Tillaga þessi var samþykkt úr
samhengi við megintillögu þess efnis
að fækka í stjórn, þannig að færri for-
menn nefnda ættu þar setu. Enda
lagðist framsögumaðurinn gegn
þessu, eftir að aðaltillagan hafði verið
felld. Við boðuðum menn á fundi, en
aldrei tókst að ná saman öllum í einu.
Þannig varð útkoman sú að gamla
laginu var í raun haldið, þ.e. að boða
menn á fundi þegar þurfa þótti, og að
þeir komu óboðaðir þegar þeim þótti
þörf á.
Mæting var góð á fundunum og
74
LÆKNANEMINN y»87-40. árg.