Læknaneminn - 01.10.1987, Qupperneq 79
uð við að leiðbeina raddböndunum í
söng.
Merki félagsins
Barmmerkið var grópað í tin haust-
ið ’86. Merkið er hið sama og er fram-
an á símaskánni, staðlað merki félags-
ins, svart merki á hvítum grunni.
Læknanemar þurfa því ekki lengur að
ganga um sem ómerkingar á spítala-
deildum (eða dansleikjum).
Kynningarbæklingur F.L.
Hann var gefinn út og dreifður til 1.
árs nema núna í september. Þar er
sagt frá félaginu, félagsfundum, stöðu
1. árs nema í félaginu, lánamálum,
Suðurgötunni og aðstöðunni þar, öll-
um nefndum og ráðum. Meinvörp-
um, Læknanemanum, kennslumál-
um, ráðningarmálum, stúdentaskipt-
um og vísindaleiðangrum. Einnig er
sagt frá einstökum greinum á 1. ári, og
lauslega frá 2.-6. ári, kennslustöðum
læknadeildar, lesstofumálum, B.S.
náminu, reglum um prófog deildinni
sjáifri. Síðast er klykkt út með vísu
félagsins.
Bæklingurinn var talsvert viðamik-
ill, enda nauðsynlegt til þess að fyrsta
árs nemar hafi nokkra möguleika á að
gera sér grein fyrir starfsemi félagsins.
Lög F.L. og ráðningarregiugerðin eru
ekki með, því að þau koma í síma-
skránni.
Ritari.
Læknaneminn
Hann hefur komið út tvisvar á síð-
asta ári. Eitt tvöfalt númer kom út í
nóvember 1986 undir fyrri ritstjórn og
eitt í júní ’87 undir núverandi.
Ritstjóri, Eyvindur Kjelsvik.
Tölvur félagsins
Núna eru tölvur félagsisn orðnar
þrjár. Ein Ericson PC og tvær Macin-
tosh Plus. Seinni Macintoshinn íeng-
um við núna í haust og var hann að
hluta borgaður með styrk sem við
fengum frá læknadeild til þessa.
Macintosh tölvan var mjög mikið
notuð í vetur og ekki vanþörf á ann-
arri. Ericsoninn var mikið rninna not-
aður, nema helst af ritara. Athugað
var með sölu á Ericsoninum, en það
var ekki talið hagstætt þar sem að lítið
mundi fást fyrir hann. Einnig stendur
til að halda tölvunámskeið fyrir
læknanema og þar verður kennt á Er-
icson.
Tölvurnar eru hugsaðar sem skrif-
stofuvélar F.L., til notkunar fyrir
embættismenn þegar þeir eru að
vinna fyrir félagið, en líka sem hjálp-
artæki læknanema við eigin verkefni.
Þó þannig, að séu menn að vinna fyrir
félagið hljóti þeir að hafa forgang á
tölvurnar.
í vetur var opinn aðgangur að tölv-
unum og gátu menn skráð sig á lista
og fengið lykla að Suðurgötunni hjá
umsjónarmanni tölva.
Það stóð til að halda tölvunámskeið
í vetur. Deildarráð var búið að sam-
þykkja að borga og búið var að skipu-
leggja námskeiðið vandlega. En þá
stóð allt í einu á peningum, og ekkert
varð úr neinu. Gæti orðið á næsta ári.
Ritari.
Málþing um atvinnumál
lækna
Það var haldið á vegum Læknafé-
lags íslands 12. september 1987.
Þangað var boðið ýmsum framá-
nrönnum í læknastétt og stjórn F.L.
Helgi H. Sigurðsson, formaður
F.L., flutti framsöguræðu fyrir hönd
F.L. en auk þess héldu framsöguræð-
ur landlæknir, forseti læknadeildar og
formaður Félags ungra lækna. í er-
indinu fjallaði formaður F.L. um við-
horf til fjöldatakmarkana, kosti þess
og galla, gildi námskynninga í fram-
haldsskólum, læknanámið og at-
vinnuhorfur frá sjónarhóli hans og að
lokunr skýrði hann frá bráðabirgða-
niðurstöðum skoðanakönnunar, sem
F.L. stóð fyrir meðal stúdenta um við-
horf þeirra til atvinnumála. Umræður
urðu síðan talsverðar á þinginu.
Skoðanakönnun meðal
læknanema um viðhorf til
atvinnumála
Hún var gerð í tilefni af málþing-
inu. Svör fengust frá um 60-90% fé-
lagsmanna, eftir árum, og svöruðu
ílestirgreiðlega úröllum spurningun-
um. Við notuðum nokkrar bráða-
birgðaniðurstöður á málþinginu og
unnum síðan enn betur úr svörunum.
Þessar niðurstöður eru samt enn allar
mjög grófar.
Skýrslu um könnunina og niður-
stöðurnar er að finna í 8. tbl. Mein-
varpa 1987 og í fórum ritara en í
stuttri samantekt voru þær eftirfar-
andi:
Afgerandi niðurstöður eru ekki
margar. Flestir eru þó sammála um
að þeir hafi farið í læknisfræði vegna
áhuga, metnaðar og áhuga á vísinda-
störfum. 6. árs nemar eru frekar á því
að þeir hafi farið í von um góða af-
komu. Langílestir búast við að fá
vinnu strax að loknu embættisprófi.
Áberandi er meiri bjartsýni hjá pre-
klinisku árunum með það að ljúka
kandidatsári á 12 mán.
Allir ætla í sérnám, búast við að
koma heim eftir það og fá vinnu við
sína sérgrein. Athyglivert að er konur
á 6. ári hafa mestan áhuga á að setjast
eingöngu að hér á landi. Flestir halda
að aíkoman verði góð, en telja að
vinnuálag lækna sé of mikið. Lang-
flestir á preklinisku árunum myndu
byrja aftur í læknisfræði, en fæstar af
konunum á fimmta ári og fæstir af
báðum kynjum á 6. ári myndu byrja
aftur!
Okkur tókst ekki að sýna fram á
það óyggjandi hvort þetta er vegna
slæmra atvinnuhorfa, óhóflegs
vinnuálags I læknastarfinu, lélegrar
LÆKNANEMINN M9S7-40. árg.
77