Læknaneminn - 01.10.1987, Qupperneq 80
læknadeildar eða einhvers annars.
Hver sem ástæðan er eru þetta mjög
sjokkerandi niðurstöður!
Ritari.
Stúdentaskipti
Þau voru mjög blómleg í sumar.
Tveir skiptinemar komu íjúní, tíu íjúlí
og níu í ágúst. Sami fjöldi skiptinema
fór héðan eins og sjá má af töflunni:
læknum, sem reyndust erlendu stú-
dentunum mjög vel.
f'ulltrúaráðið stóð fyrir Þórsmerk-
urferð um miðjan júlí sem nær allir
skiptinemarnir tóku þátt í auk ís-
lenskra læknanema og fylgdarliðs og
tókst ferðin í alla staði mjög vel. Þar
að auki gerðu ýmsir læknanemar
skiptinemunum margt til skemmtun-
ar af eigin frumkvæði, sem er þakkar-
verð viðleitni.
frá til Hið árlega stúdentaskiptaþing IFMSA var haldið í Portúgal í mars.
ísl. ísl. Þangað fóru stúdentaskiptastjóri og
Austurríki 1 0 ritari F.L. Þar var gengið frá stúd-
Finnland 1 1 entaskiptum sumarsins. Ennig voru
Frakkland 2 0 vinnuhópar starfandi að verkefnum
Grikkland 4 4 svo sem electiva, samstarfl deilda og
Holland 1 2 stétta, heilsugæslu í þriðja heiminum
Ítalía 3 3 og fjáröflunarleiðum. Skipulagið var
Ungverjaland 1 1 mjög gott og Portúgalir góðir heim að
Júgóslavía 2 2 sækja. Nánari skýrslu er að finna í 7.
Pólland 0 1 tbl. Meinvarpa í apríl 1987. Skýrslu
Portúgal 2 2 um ársþing IFMSA er að finna ann-
Spánn 1 1 ars staðar í þessu riti.
Svíþjóð 1 2 Lifið heil,
Tékkóslóvakía 1 1 Guðbjörg Birna Guðmundsd.
Tyrkland 1 0 Áslaug Gunnarsd.
Þýskaland 0 1 Ljósritinn
Samtals 21 21
Rekstur ljósritans gekk heldur erfið-
Flestir skiptinemarnir voru á
Landspítalanum, en nokkrir voru á
Landakoti og Borgarspítalanum.
Vinsælustu greinarnar voru lyflækn-
isfræði og handlæknisfræði.
Skiptinemar dvöldu í stúdentaher-
bergjum á kvennadeildinni á Nýja
Garði, á Vífilsstöðum og í húsnæði
greiðvikinna læknanema gegn vægu
gjaldi. Spítalamötuneytin gáfu fæði til
skiptinema endurgjaldslaust og eiga
kærar þakkir skildar.
Skiptinemarnir létu vel af íslands-
dvölinni og treguðu sumir heimferð-
ina ákaflega, drógu hana jafnvel í
lengstu lög. F.L. á kennurum og sér-
fræðingum deildanna áhuga og vel-
vilja að þakka, og ekki síður aðstoðar-
lega síðastliðið ár. Þegar ég tók við var
einungis búið að greiða kr. 20.000 af
þeim 70.000 sem sjálfsalinn kostaði
(með uppsetningu). Allan sl. veturfór
því hver einasta króna sem inn kom
(umfram viðhald) í að greiða af
30.000 kr. skuldabréfi sem samþykkt
hafði verið og nú hefur verið greitt að
fullu. 15.000 kr. lánaði F.L. og auk
þess þurfti ég tvisvar að fá viðbótarlán
ús sjóði F.L., samtals 8.000 kr, til þess
að endar næðu saman (þó þetta sé í
rauninni aðeins tilfærsla á tölum því
auðvitað á F.L. ljósritann).
í dag er innstæða á áv.reikningi
2.585 kr. og ca. 1.000 í lausafé. Skuld
við F.L. er 23.000 kr.
Sjálfsalinn er hins vegar enn mjög
umdeildur. Ljósritinn var áberandi
minna notaður sl. vetur heldur en vet-
urinn þar á undan og telja margir að
það sé sjálfsalanum að kenna. Einnig
hækkaði verð á ljósritun talsvert í
fyrrahaust (þó það sé nú aftur að
verða með því lægsta í bænum).
Heimtur urðu ekkert áberandi betri
en áður. Það má þó ekki gleymast að
kaupin voru mikið til ákveðin með
framtíðina í huga (þ.e. væntanlega
aðstöðu okkar í byggingu 7). Auk þess
er félaginu í sjálfu sér enginn hagur í
mikilli notkun ljósritans því stefnan
hefur jú verið að reka hann n.v. á
sléttu og selja því ljósritið á kostnað-
arverði + ákveðin upphæð sem rynni
í „endurnýjunarsjóð“ (þessar vélar
endast víst ekki endalaust).
í vetur varð þó ekkert úr þessum
góðu áformum því allur ágóði fór í að
borga af sjálfsalanum. Það verður því
eitt af verkefnum nýrrar stjórnar að
taka ákvörðun um framtíð sjálfsalans.
Gamli ljósritinn var endurvakinn
síðari hluta vetrar og var hafður að
Tjarnargötu 39. Notuðu allmargir sér
þessa þjónustu en reksturinn var
óhagstæður. Teldi ég nauðsynlegt að
athuga málið mjög vel áður en hann
yrði gangsettur aftur.
Þá held ég við segjum þetta gott,
ástarkveðjur,
Harpa Rúnarsdóttir.
Iþróttanefnd
Starfsemi íþróttanefndar var með
svipuðu sniði og undanfarin ár, enda
mannabreytingar í nefndinni fátíðar.
Vertíðin hófst með fótboltamóti
sem 5. árið vann á frækilegan hátt
eftir vítaspyrnukeppni við 6. árið í úr-
slitaleik. Fyrir jól fóru einnig fram
bridsmót, innanhúsmót í fótbolta,
sem 4. árið vann og keilumót. Eftir jól
vur skv. venj u körfuboltamót og skák-
mót, sem 5. árið vann. Handboltamót
var haldið annað árið í röð og lauk
með sigri 4. ársins. Athygli vakti
kempuskapur 5. ársins, sem mætti í
úrslitaleikinn eftir kokteil hjá Stefáni
78
LÆKNANEMINN ^1987-40. árg.