Læknaneminn - 01.10.1987, Side 84
neinu en vonandi gerist eitthvað í
þessu máli nú í vetur.
Marklýsingar
Undanfarin tvö ár hefur kennslu-
nefnd staðið fyrir söfnun marklýsinga
um námskeið sem haldin eru í lækna-
deild. Hafa stúdentar í kennslunefnd
og kennslustjóri haft þetta mál á
höndum. Teljum við þessi fyrirbæri
til mikilla hagsbóta fyrir stúdenta og
nauðsynleg, en einnig hafa þær mikil-
vægum tilgangi að gegna til að fá yfir-
sýn yfir hvað kennt er í hinum ýmsu
greinum (sem enginn hefur) og koma
þannig í veg fyrir óhentuga skörun.
Hefur söfnun þessi tekist sæmilega og
finna stúdentar vonandi fyrir því en
ekki tókst að fá alla til að skila inn,
hverju sem veldur.
Kennslumáalastefna F.L.
Var haldin 6. febrúar með þátttöku
þrjátíu læknastúdenta og þótti takast
með ágætum. Þar voru til umræðu
ýmis mál en hæst bar væntanleg end-
urskipulagning á námi í læknadeild
og skoðanakönnun F.L. Er þetta í
annað skipti ájafnmörgum árum sem
slík ráðstefna er haldin. Niðurstöður
þessara ráðstefna höfum við stúd-
entar kynnt í kennslunefnd og nýtt
mikið í umræðunni um endurskipu-
lagninguna. Þær eru til á prenti og
munu líklega birtast í Læknaneman-
um enda eins konar stefnuvísir F.L. í
kennslumálum.
Tillögur stúdenta í
kennslunefnd
Stúdentar báru fram nokkrar til-
lögur í kennslunefnd í vetur. Var ein
um endurskipulagningu kennslu á
öðru ári í deildinni sem hefur verið
frámunalega illa skipulagt. Gekk sú
tillaga út á blokkarkennslu í upphafi
ársins í anatomiu en síðan samþætta
kennslu í lífefna- og lífeðlisfræði það
sem eftir lifði vetrar. Var tillögunni
vel tekið en síðar söltuð vegna þeirrar
heildarumræðu sem fram fer nú um
skipulag kennslu í læknadeild.
Onnur tillaga var um endurskoðun
reglna um úrsagnir læknastúdenta úr
prófum sem eru með öðrum hætti en
almennt gerist í H.í. svo sem lækna-
nemar þekkja. Var tekið vel í þessa
tillögu enda sanngirnismál á ferðinni
og er að vænta frekari ákvarðana í
þessu máli fljótlega frá deildarráði
þangað sem tillögunni var vísað í lok
ársins.
Skoðanakönnun F.L.
Skoðanakönnun F.L. var fram-
kvæmd í ár eins og undanfarin þrjú ár
af kennslumálanefnd og niðurstöður
hennar síðan kynntar í kennslunefnd.
Fer aðjafnaði mikil vinna í þetta enda
eitt af merkari framkvæmdum sem
F.L. stendur fyrir. Nokkuð hefur
áunnist gegnum þessar kannanir eins
og kunnugt er, en undanfarið hefur
nokkuð. borið á gagnrýni frá kennur-
um og forsvarsmönnum deildarinnar
á gerð kannaninnar og þá sérlega, að
ekki komu nógu skýrt fram hvað sé að
í kennsiumálefnum deildarinnar,
bara að það sé eitthvað að. Voru mikl-
ar umræður um þetta í kennslunefnd
og innan kennslumálanefndar F.L. Á
haustmánuðum fór undirritaður
ásamt öðrum úr kennslumálanefnd á
þing NFMU í Stokkhólmi sem ein-
mitt fjallaði um gerð og framkvæmd
slíkra námskannana. Fengum við þar
ýmsar hugmyndir og sáum hvernig
frændur okkar framkvæma slíkt.
Uppúr þessu fór síðan af stað vinnu-
hópur okkar og tveggja kennara (Sig-
urðarnir, Árnason og V. Sigurjóns-
son) þar sem fjallað var um þetta mál.
Leiddu stúdentar þá vinnu og úr varð
ný endurbætt skoðanakönnun sem
kemur til framkvæmda á þessu ári.
Verður sú könnun framkvæmd af
læknanemum eftir sem áður en
kennslunefnd læknadeildar innblönd-
uð í málið sem vonandi gefur niður-
stöðunum meira gildi á opinberum
vettvangi (???). Um þetta allt saman
er annars fjallað í grein frá Kennslu-
málanefnd F.L. ísíðasta Læknanema.
Norrænt samstarf
kennslumálanefndar F.L.
Kennslumálanefnd F.L. hefur tek-
ið virkan þátt í norrænu samstarfi síð-
astiliðinn vetur. Kemur þetta til af því
að við eigum nú stúdentafulltrúa í
Norrænu kennslumálasamtökunum
NFMU sem í sitja kennarar og tveir
stúdentar frá Norðurlöndunum öll-
um. Hafa fulltrúar úr kennslumála-
nefnd sótt nokkra fundi samtakanna á
síðasta vetri og undirritaður hefur
auk þess sótt stjórnarfundi sem oftast
eru haldnir í sambandi við námskeið
eða ráðstefnur sem samtökin standa
fyrir um kennslumál.
Farin var ferð á fund kennslu-
nefnda á Norðurlöndum í Gautaborg
í október þar sem kennslunefndir
fluttu erindi um starfsemi sína síðast-
liðinn vetur og kom það í hlut undir-
ritaðs að flytja slíkt erindi frá íslandi
þar sem stúdentar voru einu fulftrú-
arnir úr kennslunefnd læknadeildar
H.í.
Þá var farið á fyrrnefnt þing í
Stokkhólmi um mat stúdenta á námi í
læknadeildum á Norðurlöndum sem
var sérlega vel heppnuð ráðstefna.
Undirritaður fór á stjórnarfund sam-
takanna í Kaupmannahöfn í vor þar
sem m.a. var til umfjöllunar aðal-
fundur samtakanna sem halda á á ís-
landi á komandi sumri og nánar verð-
ur fjallað um það síðar.
Þá er einn fulltrúi úr kennslumála-
nefnd á fundi í Linköping í Svíþjóð
þarsemveriðeraðkynnanýju lækna-
deildina þar, sem er sú yngsta á Norð-
urlöndum og menntar sína lækna eftir
nýstárlegu og spennandi fyrirkomu-
lagi. Mun fréttast af þeirri ferð síðar.
í október er síðan spennandi fund-
ur í Osló um þátt stúdentarannsókna
82
LÆKNANEMINN ^1987-40. árg.