Bændablaðið - 19.10.2023, Page 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
FRÉTTIR
System Edström í Svíþjóð, framleiðir
hágæða hillukerfi í atvinnubíla.
Kerfin eru árekstrarprófuð og
standast tímans tönn.
Sérsníðum eftir óskum hvers og
eins, gerum tilboð og setjum í bílana.
Svansson ehf, Melabraut 19, 220 Hafnarfjörður
Sími 697 4900, Netfang : sala@svansson.is
Neytendamál:
Íslenskir neytendur vilja
upprunamerkta matvöru
Framkvæmdastjóri Neytenda-
samtakanna kallar eftir átaki í upp-
runamerkingu matvæla og tafar-
lausum aðgerðum stjórnvalda til
að stemma stigu við háum vöxtum.
„Við fáum töluvert margar
ábendingar varðandi matvæli en um
80% þeirra snúa að merkingum,“
segir Brynhildur Pétursdóttir, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtakanna.
Fyrst og fremst sé verið að kalla eftir
upprunamerkingum matvæla. Hún
segist undrandi að sjá ekki fleiri
upprunamerktar vörur hérlendis og
íslenska fánann ekki notaðan meira til
merkinga en raun beri vitni.
Fólk vilji sjá hvaðan varan kemur,
m.a. kjöt.
Meiri sveigjanleika þörf
Brynhildur hafði framsögu á málþingi
á Degi landbúnaðarins í Hofi 13.
október sl., þar sem hún fjallaði m.a.
um sviðsmyndagreiningar starfshópa
stjórnvalda um landbúnaðar-
mál. Áform væru nú um þings-
ályktunartillögu að stefnumótun í
landbúnaði. Stefnan væri mjög opin
og þangað til hún sæi aðgerðaáætlun
væri mjög erfitt að segja til um hvort
stefnan væri haldbær.
„Eitt af því sem hefur komið út úr
öllum starfshópum sem ég hef komið
að er að sveigjanleika vantar í kerfið.
Með auknum sveigjanleika ætti að
verða meiri fjölbreytni. Íslenskur
landbúnaður stendur sig þó nokkuð vel
hvað það varðar. Við erum í rauninni
með ótrúlega fjölbreytta framleiðslu
hér þótt hún mætti vissulega vera enn
meiri,“ segir hún. Alltaf þurfi að gera
þeim sem komi með nýjungar kleift að
koma þeim á framfæri til að sjá hvort
yfir höfuð sé eftirspurn.
Íslenskt staðfest lofar góðu
Hún lýsir ánægju með vinnu að
Íslenskt staðfest, nýju upprunamerki
fyrir íslenskar matvörur og blóm, sem
nú er unnið að innleiðingu á, m.a. með
fulltingi Bændasamtakanna. Aðeins
verður heimilt að nota merkið á
vörur sem framleiddar eru og pakkað
á Íslandi. Brynhildur segir Íslenskt
staðfest mikið hagsmunamál neytenda.
„Upprunamerkingar eru eitthvað sem
við höfum fylgst með lengi enda ýmsar
merkingar verið settar af stað. Mér
líst þó vel á þá vinnu sem er að baki
þessu merki og finnst eins og þar sé
vandað til. Ég veit að neytendur kalla
eftir þessu. Þetta er löngu tímabært
og við skulum vona að framleiðendur
noti þetta merki því mjög margir vilja
kaupa íslenskar afurðir.“
Verður að ná vöxtum niður
Brynhildur kallar eftir tafarlausum
aðgerðum stjórnvalda varðandi hátt
vaxtastig. „Ég held að mörgum bregði
við hina miklu verðbólgu, sem er
til komin vegna þess að vöruverð,
m.a. matur, hefur hækkað,“ segir
Brynhildur. „Við vitum hvernig
vaxtakjör eru að leika heimilin í
landinu, og ekki síður framleiðendur
eins og bændur, og þá hugsar maður
hvernig það muni koma til með að
velta út í verðlagið. Hið háa vaxtastig
er eitthvað sem við þurfum öll að
hafa verulegar áhyggjur af. Það segir
sig sjálft að bændur taka heldur ekki
endalaust á sig auknar álögur og
því ætti þetta að vera eitthvað sem
stjórnvöld væru að horfa á núna og
ekki gera neitt annað en að reyna að
ná vöxtunum niður,“ segir hún.
Þegar kemur að innflutningi
á matvælum og umræðu um
fæðuöryggi hérlendis segist
Brynhildur telja að stærstur hluti
af matarkörfunni verði alltaf
íslenskur, þótt ekki sé nema vegna
fjarlægðarverndar, og eigi það við
um t.d. egg og mjólkurvörur.
Mætti auka samtalið
Hún segir að auka ætti samtal
Neytendasamtakanna og Bænda-
samtaka Íslands. „Kannski hefur
það á köflum ekki verið nógu
mikið. Hagsmunirnir fara, þrátt
fyrir allt, yfirleitt saman og allir vilja
íslenskum landbúnaði vel.“
Hún nefnir, sem dæmi um
hvar á steyti, frumvarp sem er nú í
samráðsgátt stjórnvalda þar sem
lagt er til að fyrirtækjum sem eru
í eigu eða undir meirihlutastjórn
frumframleiðenda verði heimilt að
eiga með sér samstarf um afmarkaða
þætti. „Þetta er mjög viðkvæmt og
eitthvað sem við hræðumst frekar
fyrir hönd neytenda, þótt við skiljum
í rauninni hvaðan bændur koma í þessu
máli.“ Tollverndin sé annað mál. „Það
er mikil verndarstefna á Íslandi og það
geta verið hagsmunir neytenda að hafa
meira úrval og geta keypt mat á lægra
verði, sem dæmi.“ Skoða beri fremur
15. gr. samkeppnislaga sem í rauninni
heimili samráð og láta reyna á það
fyrst. „En sem betur fer erum við og
Bændasamtökin líka með mikið af
sameiginlegum flötum. Við viljum
öll hafa öflugan landbúnað.“
/sá
Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, var með
framsögu á Degi landbúnaðarins Mynd / SÁ
Frumvarp um samvinnu
kjötafurðastöðva
Frumvarp um heimild kjötafurða-
stöðva til samstarfs hefur verið birt
í Samráðsgátt stjórnvalda.
Frumvarpið felur í sér breytingu
á búvörulögum og gerir ráð fyrir að
fyrirtæki í eigu eða meirihlutastjórn
frumframleiðenda geti unnið saman
um afmarkaða þætti líkt og tíðkast
í nágrannalöndum. Frumvarpinu er
ætlað að styrkja stöðu framleiðenda
búvara og skapa tækifæri til aukinnar
samvinnu og verðmætasköpunar.
Samráð ekki ólögmætt
Þriðji kafli búvörulaga verður,
samkvæmt frumvarpinu, með
fyrirsögninni „Framleiðendafélög“
og þar verður 5. og 6. grein bætt við.
Í þeim er kveðið á um að 10. og 12.
grein samkeppnislaga, um bann við
ólögmætu samráði, gildi ekki um
samninga milli frumframleiðenda
landbúnaðarafurða. Ekki heldur
samninga og ákvarðanir félaga
slíkra framleiðenda sem varða
framleiðslu og sölu búvöru eða
sameiginlegt birgðahald, meðferð eða
vinnslu búvöru – enda sé með þessu
ekki sett fast verð við sölu eða sam-
keppni útilokuð.
Samkeppniseftirlitinu verður
heimilt að mæla fyrir um að einstakir
samningar eða ákvarðanir fram-
leiðenda séu óheimilir og þeim skuli
breytt eða skylt verði að láta af þeim
ef talin er hætta á að samkeppni sé
útilokuð.Til félaga frumframleiðenda
munu teljast félög sem eru í eigu eða
undir stjórn frumframleiðenda.
Sé hluti félags í eigu óskyldra
aðila, getur félag engu að síður
talist til félags frumframleiðenda ef
frumframleiðendur eiga að lágmarki
51 prósent hlut í félaginu. Ráðherra
verður heimilt að setja frekari skilyrði
um framleiðendafélög í reglugerð.
Þar á meðal um sérreglur, starfshætti,
lágmarksfjölda félaga, félagsaðild,
skyldur framleiðenda gagnvart félagi
og upplýsingagjöf.
Erfiður rekstur kjötafurðastöðva
Sams konar frumvarp matvæla-
ráðherra lá í desember síðastliðnum í
Samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.
Það byggði meðal annars á tillögum
spretthópsins frá því í júní á síðasta
ári, sem ráðherra kallaði eftir vegna
slæmrar stöðu í matvælaframleiðslu
á Íslandi.
Samkeppniseftirlitið lagðist gegn
þeim hugmyndum sem komu fram í
frumvarpsdrögunum, um undanþágu
frá grunnreglum samkeppnislaga. Var
talið að undanþágan sem var ráðgerð
væri umtalsvert víðtækari heldur en
drögin gæfu til kynna við fyrstu sýn og
næði einnig til samrunareglna. Var talið
að undanþágan færi mögulega gegn
ákvæðum EES-samningsins og hætta
væri á að hagsmunir kjötafurðastöðva
færu ekki saman við hagsmuni bænda.
Frumvarpið sem nú er lagt fram
tekur mið af þeim athugasemdum
sem bárust í fyrra samráðsferli. Í
greinargerð með frumvarpinu núna
segir að við gerð frumvarpsins
hafi einkum verið horft til reglna
Evrópusambandsins á þessu sviði og
útfærslu á þeim í Finnlandi.
Frumvarpið sé í samræmi við
áherslur sem birtast í landbúnaðar-
stefnu fyrir Ísland sem samþykkt var
á Alþingi í júní 2023. Þar komi fram að
tryggja skuli með löggjöf að innlendir
framleiðendur hafi ekki lakara svigrúm
til hagræðingar og samstarfs en
framleiðendur í nágrannalöndunum
þar sem starfað er samkvæmt EES-
löggjöf. /smh
Svokölluð framleiðendafélög munu geta unnið saman við að styrkja stöðu
framleiðenda búvara. Mynd / smh
Fuglaflensa:
Fyrsta tilfellið í æðarfugli
Fyrsta tilfellið af skæðri fugla-
flensu hefur nú verið staðfest í
æðarfugli við Íslandsstrendur.
Matvælastofnun tilkynnti um
það í byrjun október að dauður
æðarfugl í Ólafsfirði hafi reynst vera
með sama sjaldgæfa veirustofn af
flensunni og fannst í dauðum haferni
um miðjan september.
Veirurnar sem greindust nú í
haferninum og æðarfuglinum eru
af stofninum HPAI H5N5 sem
ekki hefur áður greinst hér á landi.
Veirustofninn, sem hefur verið
ríkjandi í Evrópu frá árinu 2021 og
herjaði á íslenskar fuglategundir
síðastliðið vor, er af gerðinni
HPAI H5N1. Brigitte Brugger,
sérgreina-dýralæknir hjá
Matvælastofnun, segir að almennt séu
tilkynningar nú fátíðar frá almenningi
hérlendis um fund á veikum eða
dauðum villtum fuglum og því
ekki vísbending um alvarleg afföll
í villtum fuglum nú í haust. „Allar
skæðar fuglaflensuveirur HPAI af
gerðinni H5 – og reyndar líka H7 –
eru sjúkdómsvaldandi fyrir fugla.
Þó er misjafnt hversu næmir
villtir fuglar eru fyrir sjúkdóm, eða
með öðrum orðum hversu meinvirk
tiltekin arfgerð H5 veirunnar er fyrir
villta fugla. Það er gengið út frá því að
þessi veira H5N5 geti verið jafnskæð
og H5N1, en er með litla útbreiðslu í
heiminum eins og er,“ segir Brigitte.
Hún biðlar til almennings um að láta
Matvælastofnun vita ef veikir og
dauðir villtir fuglar finnast.
„Við höfum ekki heyrt um
staðfesta fuglaflensu í æðarfugli
nema í þessu eina tilfelli,“ segir
Margrét Rögnvaldsdóttir, formaður
Æðaræktarfélags Íslands. „Við erum
með leiðbeiningar á heimasíðunni
okkar frá Matvælastofnun um hvernig
bregðast eigi við ef fólk finnur dauða
fugla. Þessum leiðbeiningum hefur
verið dreift til æðarbænda. Þegar
fuglaflensan kom hingað þá höfðum
við samband við stofnunina og þeir
sögðu að þessar leiðbeiningar væru
enn í fullu gildi.
Stjórn Æðaræktarfélags Íslands
hefur fylgst með þróun mála en þar
sem æðarfuglinn heldur sig alfarið á
sjó nema á varptímanum, þá verðum
við að sjá hvað gerist í vor.“ /smh
Æðarfugl heldur sig á sjó nema á varptímanum. Mynd / Æðarræktarfélag Ís.