Bændablaðið - 19.10.2023, Page 12

Bændablaðið - 19.10.2023, Page 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023 FRÉTTIR Árlega valda álftir, gæsir og helsingjar skaða á túnum og kornökrum bænda sem verða af uppskeru vegna þeirra. Þeir hafa tækifæri til að sækja um styrki vegna tjónsins með því að skila tjónamati fyrir 20. október hvert ár í gegnum Afurð, stafrænt stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins. Á síðustu fjórum árum hefur verið greitt fyrir tjón á 418,4 hektara landi, samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu, en til að bændur fái greitt fyrir tjón þurfa þeir að skila inn tjónamati. Mikill munur er á milli ára en langminnst var greitt fyrir tjón í fyrra. Í skýrslu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins frá árinu 2016 um tjón af völdum álfta og gæsa árin 2014 og 2015 kemur fram að margir bændur tilkynni ekki um tjón í ljósi þess að lítið hafi áunnist í þeirri viðleitni að fá tjón viðurkennt, bætt eða að þeir fái ný úrræði til að verjast tjóninu. Fimm þingmenn lögðu í september fram tillögu til þingsályktunar um leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma. Þar er farið þess á leit að ráðherra útbúi tillögur um heimild til tímabundinna og skilyrtra veiða á fuglunum á kornökrum og túnum innan tiltekins tímaramma ár hvert. Leyfin yrðu þá veitt þeim svæðum þar sem þörf er talin á aðgerðum vegna verulegs ágangs fugla á tún og kornakra. Þingsályktunartillagan er byggð á nær samhljóma tillögum sem voru lagðar fram á þremur síðustu löggjafarþingum. Í niðurlagi þingsályktunartillögunnar segir að flutningsmenn telji nauðsynlegt að setja markmið um stærð stofna álfta og gæsa. „Þá er mikilvægt að til verði skýr heimild og áætlun um veiðar á álft og gæs í því skyni að minnka tjón bænda, hvort sem hún felur í sér breytingar á lögum eða eftir atvikum reglugerðum þar að lútandi. Samhliða þessari aðgerð verði gerð áætlun um að tryggja vernd stofnanna.“ Í greinargerð tillögunnar kemur fram að álftin hafi verið friðuð frá árinu 1913 en álftastofninn hafi stækkað verulega. Um 1960 hafi stofninn talið 3-5 þúsund fugla en sé nú talinn um 34.000 fuglar. Einnig kemur fram að stofnstærð grágæsa sé kringum 60.000 fuglar, stofnstærð heiðagæsar sé í sögulegu hámarki og telji nú um 500.000 fugla og varpstofn helsingja hafi einnig fjölgað mikið og sé ekki á válista. /ghp Ágangur fugla: Tillaga um veiðar fær ekki brautargengi Álftir á túnum í Eyjafirði. Á síðustu fjórum árum hefur verið greitt fyrir tjón á 418,4 hektara landi, árið 2021 fyrir 138,9 ha en aðeins fyrir 47,6 ha í fyrra. Mynd / sá Áfram fylgst með þróun á áburðarmörkuðum – Verðlækkanir á heimsmörkuðum með hrávöru til fóður- og áburðargerðar Á hagtölusíðu síðasta tölublaðs Bændablaðsins var veitt yfirlit yfir þróun verðs á hrávörum til áburðar- og fóðurgerðar á heimsmörkuðum. Þar mátti sjá að sé litið til síðustu 12 mánaða hafa talsverðar verðlækkanir orðið á flestum hráefnum. Íslenskir fóðursalar hafa lækkað sitt verð nokkuð að undanförnu, en áburðarsalar bíða átekta eftir frekari lækkunum vegna kaupa fyrir næsta ár. Í greiningu Unnsteins Snorra Snorrasonar á hagtölusíðunni kemur fram að þótt hrávöruverð hafi lækkað á undanförnum mánuðum sé verð enn miklu hærra en það var árin 2015 til 2019. Segir hann gífurlegar verðhækkanir á síðasta ári vera helstu ástæðuna. Lækkanir á helstu hráefnum í kjarnfóðurgerð Elías Hartmann Hreinsson hjá SS segir lækkanir hafa orðið á helstu hráefnum í kjarnfóður hjá Sláturfélagi Suðurlands. „Við tilkynntum, fyrstir allra fóðursala hér á landi, verðlækkun á öllu nautgripafóðri frá DLG þann 18. september síðastliðinn. Verðlækkun var mismunandi eftir tegundum, frá sex til tíu prósent. Fóðurverð hafði ekki tekið breytingum hjá okkur síðan 5. október 2022 en við festum verð á fóðri oft til langs tíma þegar það er talið hagstætt fyrir bændur. Verð á hráefnum til fóðurgerðar getur tekið breytingum og þá oft með stuttum fyrirvara og því erfitt að spá fyrir um verðþróun á einstökum hráefnum fram í tímann.“ Hólmgeir Karlsson, hjá Bústólpa, segir greiningu Unnsteins vera í takti við það sem hann sjái við innkaup á fóðurhráefnum. „Gengi krónunnar hefur líka verið hagstætt að undanförnu þó það halli aðeins til verri vegar aftur nú síðustu dagana. Við náðum að lækka allt okkar fóður umtalsvert seinnihluta september vegna hagstæðari innkaupa. Hvað svo er í kortunum áfram er erfitt að spá um. Við kaupum ekki fóðurhráefnin langt fram í tímann þannig að við erum meira að spá í þróunina frá viku til viku.“ Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir hjá Líflandi segir að félagið hafi tilkynnt um verðlækkun á fóðri frá og með 27. september síðastliðnum. „Lækkunin nam fjórum til tíu prósentum á kjarnfóðri fyrir mjólkurkýr og nautgripi.“ Heimsmarkaðsverð lægra en í fyrra Úlfur Blandon hjá Fóðurblöndunni segir að verðlækkun hafi orðið á fóðri hjá þeim í lok síðasta mánaðar þar sem þeirra helstu tegundir tóku allt að níu prósenta lækkun. Í yfirlitinu á hagtölusíðunni sést að heimsmarkaðsverð á köfnunarefni hefur lækkað mest, eða um 65 prósent á síðustu tólf mánuðum. Elías Hartmann segir að köfnunar- efni hafi hækkað umtalsvert meira en fosfór og kalí í kjölfar innrásar Rússlands inn í Úkraínu. „Við lækkun á gasi hefur verð á köfnunarefni lækkað. Erfitt er að segja til um hvort lækkun á áburði á erlendum mörkuðum sé að fullu komin fram. Ekki þarf meira til en kaldan vetur í Evrópu svo gas hækki og þar með framleiðslukostnaður á köfnunarefni sem gæti breytt stöðunni hratt. Einnig er enn mikil óvissa með framvindu stríðsins í Úkraínu og nú fyrir botni Miðjarðarhafs, sem getur haft áhrif til hækkunar á olíu sem getur leitt til hækkunar á áburði. Við fylgjumst vel með þróun áburðarverðs og erum í nánu samstarfi við YARA um hvenær hagkvæmt sé að loka samningum vegna áburðarkaupa,“ segir hann. Ingibjörg Ásta segir að varðandi áburð og rúlluplast eigi Lífland nú í samtölum við birgja og fylgist með þeim mörkuðum. „Eins og staðan er gætir nokkurrar lækkunar milli ára í báðum vöruflokkum. Hvernig umræddar lækkanir skila sér inn á okkar markað mun skýrast betur á næstu vikum og mánuðum.“ Úlfur Blandon segir að fylgst sé með þróuninni á erlendum mörkuðum. „Það hafa verið töluverðar sveiflur á erlendum mörkuðum í áburðinum en þó alltaf í jákvæða átt, en eins og staðan er í dag er heimsmarkaðsverð töluvert lægra heldur en á sama tíma í fyrra.“ /smh Áburðarsalar fylgjast vel með þróun verðs á heimsmörkuðum. Mynd / ÁL Miðfjarðarbændur neita enn að afhenda fé Bændur á Neðra-Núpi í Miðfirði ætla á næstu dögum að senda þær níu gimbrar í sláturhús sem Matvælastofnun hefur krafið þá um að afhenda stofnuninni til förgunar. Gimbrarnar voru keyptar frá Urriðaá, þar sem allt fé var skorið niður í vor í kjölfar riðutilfellis sem staðfest var á bænum. Guðmundur Þorbergsson, bóndi á Neðra-Núpi, segir að þessar gimbrar séu í eigu sonar hans, Kristjáns Svavars. „Þetta er eina féð sem er í hans eigu sem er hér hjá mér, en ég er sjálfur með um 100 kindur. Þessar gimbrar hafa nú ekki allar skilað sér hér úr smalamennsku, en það stóð til að senda þær í sláturhús í lok vikunnar eða í byrjun næstu viku. Eftir því sem ég best veit þá eru tekin sýni í sláturhúsinu, einhverjar stikkprufur frá flestum bæjum þar sem kannað er hvort einhver riðusmit eru.“Matvælastofnun hefur litið svo á að með því að afhenda ekki féð, stofni bændurnir ekki aðeins heilsu sinna dýra í hættu heldur einnig heilsu sauðfjár í eigu annarra sem hefur samgang við þeirra fé. Samkvæmt dýrasjúkdómalögum sé refsivert að brjóta gegn fyrirmælum gefnum samkvæmt lögum. Forsaga málsins er að Matvæla- stofnun féllst á andmæli bænda í maí við því að afhenda gripina á sauðburðartíma.Í lok maí náðist svo samkomulag við flesta sauðfjárbændur í Miðfjarðarhólfi um að afhending á gripum sem voru komnir frá Urriðaá yrði ekki síðar en 19. júní. Bændur á bænum Barkarstöðum í Miðfirði eiga hrút frá Urriðaá sem þeir hafa ekki látið af hendi. Guðmundur segir að ástæðan fyrir því að þeir feðgar kjósa að afhenda ekki féð byggi í raun á lögfræðiáliti sem þeir fengu í millitíðinni, þar sem fram kemur að margt orki tvímælis lögfræðilega í þessu máli öllu. „Ýmislegt í vinnubrögðum Matvælastofnunar hefur líka farið illa í okkur, til dæmis heyrðum við það bara í útvarpinu að það væri búið að kæra okkur til lögreglu – sem okkur þykir vera vinnubrögð af verstu gerð. Það er ekki rétt sem haft hefur verið eftir héraðsdýralækni að um 14 kindur sé að ræða, þær voru upphaflega tíu en ein er reyndar dauð. Við höfum undrast að hafa ekki heyrt frá neinum í allt sumar, hvorki frá Matvælastofnun né lögreglu eða saksóknara. Þetta fólk hefur greinilega nóg annað að gera en að vera að eltast við svona vitleysu,“ segir Guðmundur. Einar Örn Thorlacius, lögfræð- ingur hjá Matvælastofnun, segir að saksóknari hafi lagt spurningar fyrir stofnunina varðandi þetta mál sem á eftir að svara. Lögin um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim séu orðin 30 ára gömul og verið sé að kanna skýrleika þeirra um þetta efni. /smh

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.