Bændablaðið - 19.10.2023, Side 13
Kristín Rögnvaldsdóttir Már Guðnason
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó
Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira
Betri lífsgæði með Active
JOINTS
Már Guðnason húsasmiður hefur starfað við álagsvinnu
í gegnum árin. Nú þegar hann er kominn á eftirlaun
hafa komið fram ýmis eftirköst erfiðisins. Már hefur
fundið út að Active JOINTS frá Eylíf reynist vel til að
bæta lífsgæðin.
Már segist hafa verið sérstaklega slæmur í hálsliðum.
„Ég er lærður húsasmiður en er eiginlega alt muligt-
maður,“ segir hann. „Get eiginlega aldrei verið
aðgerðalaus og er alltaf að dunda mér við eitthvað,
hvort sem það eru endurbætur hér heima, að hjálpa
vinum og vandamönnum eða vinna í garðinum“ segir
Már. „Ég var alltaf í átaksvinnu, aðallega í virkjunum.
Það hefur komið niður á líkamanum en ég hef verið
sérstaklega slæmur í hálsinum. Ég vann lengi í járna-
bindingum og oft með mikil þyngsli í höndunum. Það
reynir á skrokkinn og kemur fram þegar maður eldist,“
segir hann.
„Ég sá auglýsingu frá Eylíf um Active JOINTS og
hugsaði með mér að það væri nú allt í lagi að prófa
þetta. Það var í mars 2020. Eftir fjórar vikur var ég
farinn að finna fyrir að eitthvað var að breytast og
eftir fjóra mánuði var ég orðinn töluvert betri. Ári
seinna var ég hættur að finna fyrir verkjunum í hálsinum.
Fyrir mér er þetta kraftaverk og lyginni líkast. Ég fékk
nýtt líf. Engar verkjatöflur og mér gekk vel að sofna á
kvöldin. Í rauninni er ég laus við verkina,“ segir Már,
sem tekur þrjú hylki á dag og ætlar sannarlega að taka
Active JOINTS frá Eylíf áfram.
Vörulínan frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger
LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á
Grenivík undir GMP gæðastaðli.
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ
• GeoSilica frá Hellisheiði
• Kollagen frá Sauðárkróki
• Kítósan frá Siglufirði
• Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki
í Hafnarfirði
Hrein íslensk óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem
börn ná ekki til.
Árangurinn eins og í lygasögu
Kristín Rögnvaldsdóttir hefur glímt við meltingar-
truflanir og ristilvandamál í áratugi. Það hefur oft
háð henni þegar hún fer í göngur á hálendið sem hún
gerir á hverju sumri. Kristín hefur reynt margt, breytt
mataræðinu og notað ýmis náttúrulyf sem hafa hjálpað
en aldrei neitt eins og Happier GUTS frá Eylíf.
„Þótt ég vilji ekki vera með stórar yfirlýsingar þá var
þetta eins og í lygasögu fyrir mig,“ segir hún. „Mér
hefur aldrei áður liðið jafn vel á göngu og núna í
sumar eftir að ég byrjaði að taka Happier GUTS.
„Mér leist mjög vel á innihaldsefnin og það skiptir
miklu máli að Happier GUTS er unnið úr hreinum
íslenskum náttúruauðlindum. Ég reyni alltaf að velja
íslenskt þótt maður þurfi oft að borga aðeins meira
fyrir þær vörur,“ segir hún. „Það er ekki spurning að
ég mun halda áfram að taka inn Happier GUTS frá Eylíf.“
Kristín hreyfir sig mikið allt árið og er meðvituð um að
huga vel að heilsunni. Hún er í gönguklúbbi, syndir,
stundar leikfimi á veturna og segist stefna að því að
verða hraust gamalmenni. „Ég kynntist Happier GUTS
áður en ég fór í ferðina í sumar. Ég var á leið í fjögurra
daga göngu um hálendið og þar sem aðgengi að salerni
er takmarkað í slíkum göngum vill ristillinn stundum fara
í rugl. Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ég hef aldrei
fundið jafn mikla breytingu á líðan minni og eftir að ég
byrjaði að taka Happier GUTS frá Eylíf. Það var ótrúlega
skrítið að finna mun svona fljótt,“ bætir hún við. „Þetta
var næstum of gott til að vera satt. Ég tók tvö hylki með
morgunmatnum og gönguferðin gekk mjög vel,“ segir
Kristín. „Þegar maður er á göngu breytist mataræðið,
til dæmis er meira borðað af brauði en venjulega sem
hefur áhrif á meltinguna,“ útskýrir Kristín sem getur svo
sannarlega mælt með Happier GUTS.
Meltingin og þarmaflóran skiptir miklu máli fyrir and-
lega og líkamlega heilsu. Happier GUTS stuðlar að
heilbrigði þarmanna og kemur í veg fyrir meltingartruflanir.
Happier GUTS frá Eylíf
• Gott fyrir meltinguna og við meltingartruflunum.
Kalsíum stuðlar að eðlilegri starfsemi meltingarensíma.
Laktasa ensím bæta meltingu hjá einstaklingum sem
eiga erfitt með að melta laktósa. Króm og Sink stuðla
að eðlilegum efnaskiptum orkugefandi næringaref-
na. C-vítamín og Joð stuðla að eðlilegum orkugæfum
efnaskiptum. Sink stuðlar að eðlilegum efnaskiptum
fitusýra. Sink og C-vítamín stuðla að því að verja
frumur fyrir oxunarálagi.
• Góð næring fyrir þarmaflóruna. Varan inniheldur
Kítósan sem eru náttúrulegar trefjar úr rækjuskel og
hafa rannsóknir sýnt að þarmaflóran nýtur góðs af.
• Verndar beinin og mýkir húðina. Kalsíum er
nauðsynlegt fyrir viðhald eðlilegra beina og tanna.
C-vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir eðlilega myndun húðar. Magnesíum stuðlar að
viðhaldi eðlilegra beina og tanna.
• Góð steinefnaviðbót, kalkþörungarnir innihalda
74 stein- og snefilefni frá náttúrunnar hendi.
Kalkþörungarnir og GeoSilica kísillinn innihalda stein-
og snefilefni. Athugið að gott er að taka D-vítamín á
öðrum tíma dags, ekki samtímis.