Bændablaðið - 19.10.2023, Side 16

Bændablaðið - 19.10.2023, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023 OG VINNUM ÚR ÞEIM LAUSNIR TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is S: 5272600 - www.velavit.is Varahlutir - Viðgerðir Vélavit Sala Þjónusta www.velavit.is Erum með varahluti og þjónustu fyrir allar JCB vélar S: 527 2600 FRÉTTIR Málþing til heiðurs Jóni Bjarnasyni frá Bjarnarhöfn, fyrrum rektors Háskólans á Hólum, verður haldið að Hólum í nóvember af tilefni áttræðisafmælis Jóns í desember. Nokkrir vinir og velunnarar Jóns ásamt Háskólanum á Hólum efna til málþingsins en efnistök þess verða með skírskotun í sögu skólahalds á Hólum. „Umfram allt verður sjónum beint að þeim verðmætum sem háskóli í dreifbýli býr yfir og tækifærum sem nábýli skólans við náttúru, mannauð og atvinnulífið bjóða fram,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Þar segir að Jón hafi verið fenginn til að endurreisa Bændaskólann að Hólum í Hjaltadal árið 1981 og hann hafi flutt þangað með konu sinni, Ingibjörgu Kolku, og börnum. Skólinn hafði þá ekki starfað um hríð en hann var stofnaður 1882. „Engum blandast hugur um hve mikið þrekvirki Jón vann á skólastjóraárum sínum á Hólum. Staðurinn var í niðurníðslu, byggingar, ræktun og skólastarf. Á fáum árum risu ný mannvirki og eldri byggingar voru endurbættar. Dómkirkjunni og kirkjustarfi var sýndur mikill sómi. Aðsókn að Hólaskóla varð mikil og samhliða aðlagaðist námið að breyttum aðstæðum í samfélaginu. Nám í fiskeldi, hestamennsku og síðar ferðamálum litu dagsins ljós. Þetta eru þær greinar sem Háskólinn á Hólum byggir nú háskólanám sitt á og eru mikilvægar atvinnugreinar um land allt, ekki síst í hinum dreifðu byggðum,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Jón lét af skólastjórn árið 1999. Málþingið mun fara fram á Hólum í Hjaltadal þann 16. nóvember kl. 9–16. Kaffiveitingar og hádegismatur verða í boði fyrir gesti. /ghp Málþing Jóni til heiðurs Háskólinn á Hólum í Hjaltadal. Mynd / Aðsend Heilbrigðiseftirlit munu færast til stofnana ríkisins verði að til- lögum starfshóps um fyrirkomu lag eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og mat- væla eftirliti. Það er niðurstaða skýrslu sem Guðlaugur Þór Þórðarson um- hverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðaði til kynningar um málefnið sl. þriðjudag. Tillagan felur í sér að allt eftir- lit með hollustuháttum og mengunar- vörnum ásamt matvælaeftirliti verði hjá stofnunum ríkisins. Í dag er dagleg framkvæmd eftirlitsins að verulegum hluta í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga en meginábyrgð á framkvæmd og samræming hjá Umhverfisstofnun og Matvælastofnun. „Það er ljóst eftir mörg og ítarleg samtöl við aðila sem eftirlitið snertir frá ýmsum hliðum að ósamræmi í framkvæmd eftirlits er of mikið, stjórnsýsla er of flókin og yfirsýn skortir,“ segir í skýrslunni. Í tillögu starfshópsins er hins vegar gert ráð fyrir því að ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunar- vörnum færist frá heilbrigðiseftirliti til Umhverfisstofnunar og eftirlit með matvælum færist frá heilbrigðis- eftirliti til Matvælastofnunar. Telur hópurinn að sú sviðsmynd sé líklegust til að tryggja nauðsynlega samræmingu, að því er fram kemur í skýrslunni. Þar kemur jafnframt fram að horft hafi verið til byggðarsjónarmiða varðandi mögulega færslu verk- efna frá sveitarfélögum til ríkis- stofnana. „Að því gefnu að starfsfólk sem nú sinnir opinberu eftirliti hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga fái forgang um störf hjá miðlægum eftirliststofnunum telur starfshópurinn þá hættu vera óverulega að opinberum störfum á landbyggðinni fækki.“ /ghp Matvælaeftirlit yrði á ábyrgð MAST Breyting verður á eftirliti með matvælum og hollustuháttum. Matís: Vilja leysa grænmetið undan plastfargani Hávær krafa hefur verið uppi um að plastumbúðir á grænmeti séu minnkaðar og nú er leitað leiða til að bregðast við. Þeim sem vilja lágmarka plastnotkun sína blöskrar allar þær plastumbúðir sem fylgja grænmetiskaupum og biðja um umhverfisvænni og jafnframt minni pakkningar. Matís tók fyrir fáum misserum það verkefni á arma sína að leita leiða til að mæta þessu. Verkefninu er ætlað að byggja upp hnitmiðaða þekkingu á valkostum fyrir pökkun grænmetis. Geymsluþolsprófanir og kolefnissporsmælingar Verkefninu er, skv. upplýsingum frá Matís, skipt í fjóra meginþætti. Í fyrsta lagi verði byggð upp þekking á pökkunaraðferðum og umbúðum fyrir grænmeti. Hyggst Matís leggja vinnu í að afla þekkingar á þessu sviði til að miðla henni á heildstæðan hátt til atvinnulífsins. Í öðru lagi verða gerðar geymsluþolsprófanir á grænmeti í mismunandi umbúðum. Verður Matís þar í samvinnu við framleiðendur. Í þriðja lagi verða unnir útreikningar á kolefnisspori grænmetis og útvegar Deild garðyrkjubænda þar verkfærin en mælingar verða framkvæmdar á vegum garðyrkjubænda. Í fjórða og síðasta lagi verður farið í kynningu á verkefninu. Litið er á það sem meginatriði að miðla fenginni þekkingu inn til atvinnulífsins. Þannig geti grænmetisgeirinn tekið ákvarðanir um bestu lausnir út frá gæðum og umhverfisvernd. Ætlunin er að gefa út vefbók um pökkun matvæla hjá Matís. Greiði leið fyrir nýjar tegundir pökkunarefna matvæla Plastnotkun hefur verið talin auðveldasta leiðin til að draga úr rakatapi grænmetis og varðveita þannig geymsluþol þess og gæði. Það er auk þess notað til að aðgreina vörur og setja vöruna í sölueiningar. Í skýrslunni Áskorun við pökkun grænmetis, sem kom út hjá Matís á árinu, segir m.a. að þótt fjallað sé sérstaklega um grænmeti í skýrslunni hafi viðfangsefnin almenna skírskotun og þeir sem ætli að pakka öðrum tegundum matvæla ættu að hafa gagn af henni. Vonast er til þess að verkefnið leiði til framfara við pökkun matvæla og greiði leið fyrir nýjar tegundir pökkunarefna. Ýmsar framtíðarlausnir fyrir umhverfisvænar umbúðir séu við sjóndeildarhringinn og mikið þróunarstarf unnið á þessu sviði bæði á Íslandi og erlendis. Umbúðir úr íslensku hráefni og þekkingu á efnisvinnslu fyrir þær hafi skort, en nokkur nýsköpunarverkefni séu í farvatninu. Einnig sé mikil nýsköpun erlendis tengd umbúðum úr hreinu frumhráefni. Nefna megi þróun á umbúðum úr stoðvef plantna og þörungum. Því sé rétt að fylgjast vel með nýjungum sem líta dagsins ljós. Í viðauka með skýrslunni er yfirlit yfir kjörgeymsluskilyrði fyrir grænmeti, ávexti og krydd. Samstarfsaðilar Matís um leiðir að minni plastnotkun í virðiskeðju grænmetis eru Deild garðyrkjubænda í Bændasamtökum Íslands, Sölufélag garðyrkjumanna og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Var rannsóknin styrkt af Matvælasjóði. /sá Neytendur eru þreyttir á plastumbúðafarganinu sem fylgir grænmetiskaupum og raunar öllum varningi. Það gerir erfitt um vik að minnka plastúrgang frá heimilum. Matís skoðar nú aðferðir til að minnka plastið. Mynd /sá

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.