Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Ölduorka er orka haföldunnar,
en lóðrétt hreyfing úthafsbylgna
inniheldur mikla hreyfiorku.
Margar aðferðir eru hugsanlegar
til virkjunar ölduorku og ýmsar
eru í þróun. Úti á rúmsjó má nota
fljótandi fleka með liðamótum,
hreyfingu í geymi sem lyftist
á öldunni eða fljótandi kví
sem „heflar“ öldutoppana. Á
grunnsævi má nýta hreyfingu milli
fastrar botnfestingar og annað
hvort lóðrétts spjalds eða fljótandi
bauju. Við bryggjukanta má nýta
hífingu öldunnar til að lyfta floti
eða valda sogi eða streymi í stokki.
Ölduorku má rekja til þess að sólin
knýr veðrakerfi og vindinn sem
aftur orsakar öldugang. Ölduorka
er því endurnýjanleg orka, en
ekki fyrirsjáanleg orkulind fremur
en vindorka. Margar tæknilegar
áskoranir fylgja virkjun hennar, t.d.
álag á tæki í miklu brimi.
Sjávarfallaorka er hins vegar
mjög fyrirsjáanleg orkulind á
hverjum stað, enda felst hún í
streymi sjávar vegna flóðs og fjöru.
Þar sem sjávarföll eru einkum háð
þyngdartogi tunglsins á jörðina
er orkan endurnýjanleg líkt og
bylgjuorka og mun væntanlega
ekki klárast meðan tunglið snýst
sinn vanabundna hring, einn hring
um sjálft sig um leið og það snýst
einn hring umhverfis jörð. Afstaða
tungls, jarðar og sólar hefur
einnig nokkur áhrif á sjávarföll.
Sjávarfallaorkan er því fyrirsjáanleg
orkuauðlind á hverjum stað, þótt
mjög sé henni misskipt milli svæða.
Seltuvirkjanir byggja á mis-
munandi seltu sjávar og ferskvatns.
Þar sem hvort tveggja er til staðar
má byggja upp þrýsting með flæði
(osmósu) gegnum sérstakar himnur,
en þann þrýsting má síðan virkja
til framleiðslu rafmagns. Slíkar
aðstæður skapast helst við árósa. Þær
gætu tryggt stöðuga framleiðslu og
eru ekki veðurháðar. Seltuvirkjanir
eru enn á tilraunastigi og eiga langt
í land með hagkvæmni.
Þeim fylgja tæknilegar áskoranir
auk þess sem umhverfisáhrif þeirra
eru ekki að fullu þekkt.
Hitastigulsvirkjanir, þ.e. virkjanir
sem byggja á varmamismun í
hafi, grundvallast á a.m.k. 20°C
hitamun milli yfirborðslaga sjávar
og hefur sá kostur því ekki verið
til skoðunar hérlendis. Tæknin er á
algeru tilraunastigi og á langt í land
með hagkvæmni.
Frumgerðir framleiða rafmagn
Sjávarfallavirkjanir eru aðallega af
tvennum toga: annars vegar virkjun
straumhraða í röstum og sundum,
hins vegar virkjun fallhæðar með
stíflugerð. Í fyrra tilvikinu er
virkjuð hreyfiorka sjávar, einkum
þar sem sjávarföll hraðast vegna
þrenginga við annes eða í sundum.
Í því síðara eru stífluð t.d. sund
og firðir og mikill hæðarmismunur
flóðs og fjöru virkjaður.
Orkunýtni sjávarfallahverfla
er mun meiri en margra annarra
orkustöðva. Talið er að með góðum
sjávarfallahverfli megi breyta
um 55% (sumir segja 80%) af
hreyfiorku straumsins í raforku.
Til samanburðar næst aðeins um
30% orkunýtni í kolaorkuverum.
Afl í streymi sjávar er háð
straumhraðanum í þriðja veldi. Því
áttfaldast aflþéttleikinn með hverri
tvöföldun í hraða.
Kolefnisfótspor sjávarfallaorku-
vera er hverfandi. Engin losun er af
orkuvinnslunni sjálfri, en einhver
losun kann að fylgja framleiðslu
vélbúnaðar, uppsetningu
hans, þjónustu og endurheimt.
Giskað hefur verið á að losun
sjávarfallavirkjunar á líftíma
hnattrænnar hlýnunar sé undir 22
grömmum af CO2 ígildi á hverja
kWst af framleiddri raforku.
Þó að sjávarfallaorka sé þegar
í notkun er þó ekki farið að
fjöldaframleiða neinar túrbínur og
aðferðin því ekki komin á sama
stað og t.d. vindorka. Þó er farið
með frumgerðum að framleiða
rafmagn inn á net, t.d. í Færeyjum.
Um allan heim er nú verið að
kanna möguleika raforkuöflunar
með þessum hætti. Evrópsk
rannsókn bendir t.d. til að Stóra-
Bretland, Írland og Portúgal hafi
yfir að ráða samanlagt um 70 GW
af sjávarorku. Niðurstöður gefa til
kynna að hátt í 60 GW af nokkuð
raunhæfri ölduorku og 10 GW af
sjávarfallaorku séu þar fyrir hendi.
Enn hefur engin virkjanatækni
orðið að fullþróaðri markaðsvöru
til fjöldaframleiðslu. Nokkur
fyrirtæki hafa smíðað starfhæfar
frumgerðir sem sannprófaðar hafa
verið í raunumhverfi og verið
tengdar við raforkukerfi í nokkurn
tíma. Áhugavert þykir að koma upp
virkjanagörðum þar sem margir
hverflar eru samtengdir, með
uppsettu afli yfir 10 MW.
Aðstæður eru misgóðar til
nýtingar sjávarfallaorku. Oft eru
þær betri þar sem mikill munur er
á flóði og fjöru, en fleiri þættir spila
þar inn í. Sjávarfallastraumurinn
hraðast þar sem landgrunn og
annes þrengja að honum, sem og
í þröngum sundum.
FRÉTTASKÝRING
Ný varanleg bogahýsi
Ódýr og hagkvæmur kostur fyrir geymslur
og útihús sem uppfyllir byggingarreglugerðir
� Stöðluð hönnun, grunneining 5 x 6 m.
- lengjanleg í 3 m. einingum
� Hurðargat á gafli 2,75 x 2,75 m.
� Í boði bæði einangruð og óeinangruð
� Verð frá kr. 1.320.00 m/vsk. fyrir 5 x 6 m. bogahús
Nánari upplýsingar í gegnum tölvupóst hysi@hysi.is
Hýsi-Verkheimar ehf. | Smiðjuvegi 5, Kópavogi | Sími 497 2700
hysi@hysi.is | hysi.is | hysi.is
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Sihwa Lake-sjávarfallavirkjunin í Gyeonggi-héraði í Suður-Kóreu er stærsta sjávarfallavirkjun heims og sú aflmesta; 254 MW. Mynd / Arne Müseler
Orkumál:
Beislun sjávarorku
handan við hornið
– Ný skýrsla um möguleika í sjávarfallavirkjunum hér við land væntanleg í lok mánaðar
Hlið
Vegur
Toppur
Sjór
Flóðbylgja
Hverfilgöng
Há vatnshæð
Sjávarfallavatn
Virkjun sjávarorku er á margan hátt aðlaðandi kostur í þeim orku-
skiptum sem fram undan eru, enda er hún umhverfisvænn og fyrirsjáan-
legur orkugjafi. Undir sjávarorku fellur virkjun sjávarfallastrauma,
ölduhreyfinga, seltu og varmamismunar til umbreytingar í raforku.