Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
leyti að allir geta komið og fengið
grænmeti gegn frjálsum framlögum.
Við ræktunina er aðferðum vistræktar
(e. permaculture) beitt með góðum
árangri. „Vistrækt hefur eflaust haft
sitt að segja varðandi hvað ræktunin
hefur gengið stórvel frá fyrsta degi og
við aukum við fjölbreytnina á hverju
ári. Frá byrjun hefur verið ofgnótt
uppskeru og vandinn meira á þá vegu
að koma matnum út,“ segir Hildur.
Hún segir að það þurfi bæði
þolinmæði og seiglu til að halda
utan um slíkt framtak en það skili sér
margfalt til baka.
„Ég hef einnig verið mjög opin
fyrir að prufa mismunandi leiðir til
að bjóða fólki að taka þátt og þróa
rekstrarmódelið eftir því sem meiri
reynsla fæst. Það er ekki auðvelt að
vera brautryðjandi. Hvetja þarf félaga
til að koma og uppskera matinn sem
hefur verið ræktaður, ég þarf að
vera virk á samfélagsmiðlum, halda
viðburði, lista upp hvað er hægt að
uppskera, gefa hugmyndir um hvernig
hægt er að nota matinn og hvernig
best er að geyma hann til skamms og
lengri tíma. Þegar fólk á að uppskera
sjálft þarf að kenna þeim að þekkja
mismunandi grænmeti. Það þekkja til
dæmis ekki margir hvernig toppurinn
á rófu, næpu, nípu, gulrót, rauðrófu
eða hvítlauk lítur út – þegar þú sérð
ekki það sem er undir.
Svo erum við að rækta alls kyns
mismunandi salat og kál sem fólk er
ekki vant að sjá í búðinni.“
Ómetanlegt þegar matvönd
börn smakka
Hún segir þátttöku í verkefninu
vera mikinn lærdóm. „Fólk öðlast
skilning á þeirri vinnu sem liggur
að baki matjurtaræktun og getur lært
ræktunaraðferðir, komið höndunum
í mold og tengst þannig náttúrunni.
Hegðunarbreytingar eru einnig alltaf
flóknar, ég er að reyna að fá fólk til
að taka auka útúrdúr í hversdeginum,
koma við í Gróanda í staðinn fyrir
að skella bara grænmeti í körfuna
í búðinni eins og venjulega. Í því
felst einnig að læra að lifa með
árstíðunum og vistkerfinu hér, byggja
matargerðina á heimilinu á þeim
hrávörum sem eru aðgengilegar til
uppskeru á hverjum tímapunkti. Það
er svo auðvelt að elda alltaf með sömu
matvörunum og hafa alltaf aðgengi að
þeim í gegnum búðina, sama hvort
grænmetið þar komi frá Íslandi, Kína
eða Mexíkó.
En það er góður hópur af fólki
hér sem finnst mikilvægt að það sé
ræktun í heimabyggð, að það sé ekkert
skordýraeitur eða önnur efni á matnum,
þau geti fengið matinn umbúðalausan,
án flutnings eða annarrar mengunar og
að ræktunin sé að bæta líffræðilega
fjölbreytni á svæðinu og byggja upp
frjósaman jarðveg. Mörgum finnst líka
mikilvægt að börnin þeirra fái tengsl
við náttúruna og hvaðan maturinn
kemur, taki þátt og skilji hvað þarf til
að rækta mat. Svo er ómetanlegt þegar
matvönd börn hafa allt í einu mikinn
áhuga á að smakka alls kyns grænmeti,
ber og salat beint af plöntunni.“
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
TILBOÐSVERÐ
4.900.000,-
Við auglýsum svo
sannarlega ekki “verð frá”.
VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
SERES 3
Luxury Rafmagnsbíllinn
býður upp á ríkulegan
staðalbúnað og frágang
í hæsta gæðaflokki!
MENNINGAR- OG MINNINGARSJÓÐUR KVENNA
auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutun styrkja árið 2023
Að þessu sinni mun sjóðurinn leggja megin áherslu á menningar- og menntastyrki til kvenna
sem teljast tilheyra eða vinna með minnihlutahópum hérlendis.
Umsóknir geta verið bæði fyrir styrki til einstaklinga og hópa.
______________________________________________________________________
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2023
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um verkefnið sem sótt er um styrk til,
fjárhagsáætlun þess og tímalína.
Umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefsíðu sjóðsins mmk.kvenrettindafelag.is fyrir
miðnætti þann 1. nóvember 2023.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Kvenréttindafélags Íslands
í síma: 551-8156 eða í netfangi: mmk@krfi.is
Tilkynnt verður um styrkveitingar þann 10. desember 2023 og verður öllum umsóknum svarað.
Menningar- og minningarsjóður kvenna var stofnaður árið 1941 í minningu Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur. Hlutverk sjóðsins er að styrkja konur til náms, jafnt bóknáms sem náms til
starfsréttinda, jafnt hér á landi sem erlendis. Enn fremur að veita konum styrk til ritstarfa, einkum
á sviði kynjajafnréttis og kvennasögu.
Ómetanlegt er að sjá börn tengjast
náttúrunni og smakka á alls kyns
grænmeti, berjum og salati beint af
plöntunum. Mynd / Björgvin Hilmarsson
fer fram í Hörpu 2. og 3. nóvember.
Skráðu þig á sjavarutvegsradstefnan.is
Samfélagsleg
ábyrgð
í sjávarútvegi
Aðalstyrktaraðilar
SJÁVARÚTVEGSRÁÐSTEFNAN 2023
Hildur Dagbjört segir það þurfi bæði þolinmæði og seiglu til að halda utan
um stórt framtak en það skili sér margfalt til baka. Mynd/ Haukur Sigurðsson