Bændablaðið - 19.10.2023, Page 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is
VETRARBÚNAÐUR
Salt- og sanddreifarar.
Amerísk gæðatæki sem endast.
Vönduð stálgrindarhús af öllum stærðum
og gerðum sérsniðin að þínum þörfum.
www.sulurehf.is
kristjan@sulurehf.is
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
BETRA AÐ EIGA EN VANTA!
VAKTARAR - TALSTÖÐVAR - HÖFUÐLJÓS - BÆTIEFNI
Móðir Morgundísar, Mormaga frá Skarði, með Morgundís og systur hennar
tvær undan Litningi var í verðlaunasæti á sýningu félagsins árið 2018.
Mormaga lengst til vinstri, þá Sumarliða, Morgundís og loks Gráfíkja. Þeir sem
halda í eru: Jens í Stóra-Klofa, Sumarliði í Skarði, Einar Grétar á Hvolsvelli
og Eiður í Hrólfsstaðahelli.
Ærin sem hlaut fyrstu verðlaun í flokki áa með afkvæmum var Morgundís frá
Skarði. Lömbin hennar eru ljós grábotnóttur hrútur, grágolsótt gimbur og
dökkgrá botnótt gimbur, sem einnig varð í þriðja sæti fyrir litfegurð. Lömbin
eru undan hrútnum Seranó frá Skarði sem er grábotnóttur. Morgundís gekk
í heimahögum í sumar með öll lömbin sín og skilaði þeim bráðfallegum og
sælum. Þau sem halda í eru öll frá Skarði, Erlendur bóndi og börn hans
þrjú, Helga Fjóla, Anna Sigríður og Sumarliði.
Morgundís frá Skarði er hér nýfædd með móður sinni, Mormögu, og systrum
sínum tveim, Sumarliðu og Gráfíkju. Mormaga gekk í heimahögum um
sumarið með báðar morgoslsóttu dætur sínar en morgráa systirin, Gráfíkja,
var vanin undir aðra á og fór á fjall. Faðir þessara þrílembinga var Litningur
frá Hellu.