Bændablaðið - 19.10.2023, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Skógræktarfólk og áhugafólk
um skógarmenningu frá Íslandi
og Noregi kom saman í Heiðmörk
á dögunum til að fagna ára-
tuga samstarfi þjóðanna í skóg-
ræktarmálum.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
bauð þar ráðherrum landanna
tveggja að leggja skógrækt lið með
gróðursetningu.
Stuðningur Norðmanna við
skógrækt á Íslandi á sér langa sögu.
Forfeður margra þeirra trjáa sem best
þrífast á Íslandi koma frá Noregi
og hafa Norðmenn lagt mikið af
mörkum til skógarmenningar á
Íslandi, m.a. hafa þeir gróðursett
um milljón trjáplöntur hér á landi.
Anne Beathe Tvinnereim,
ráðherra alþjóðaþróunarmála og
norrænnar samvinnu í ríkisstjórn
Noregs, kom til landsins af þessu
tilefni og gróðursetti í Heimaási í
Heiðmörk fjallaþin, sem kannski mun
þjóna sem Oslóartré Reykvíkinga
í framtíðinni. Guðmundur Ingi
Guðbrandsson félagsmála- og
vinnumarkaðsráðherra gróðursetti
íslenskt birki, Heklu.
Að gróðursetningu lokinni fór
fram móttaka í Zimsen-húsinu í
Heiðmörk þar sem ráðherrarnir
fengu gjöf frá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur, bókina Frændur fagna
skógi eftir Óskar Guðmundsson.
Bókin rekur sögu samskipta
Norðmanna og Íslendinga með
áherslu á skiptiferðir skógræktarfólks
frá 1949 til 2000. /ghp
LÍF & STARF
Ellert Már Randversson tók þessa skemmtilegu mynd 28. september á
Þverhamri í Breiðdal innarlega í Stöðvardalnum, undir svokölluðum
Þúfutindsdal. Hrúturinn vildi ekki sameinast hópi, sem var verið að
smala og fór því að verja sig fyrir ofan fossinn.
Skilja þurfti hrútinn eftir en hann náðist í næstu smölun, sem var viku síðar.
„Ég er bóndi á Gilsárstekk í Breiðdal en vinn með, sem verktaki í 100%
starfi, enda ekki hægt að lifa af því að vera eingöngu bóndi. Ég og konan
mín tökum þátt í að smala í Stöðvarfirðinum vegna þess að okkar fé fer úr
Gilsárdal yfir Reindalsheiði og yfir í Stöðvardal, þess vegna var ég þarna
og náði myndinni af hrútinum og fossinum,“ segir Ellert Már. /MHH
Mynd Ellerts Más hefur vakið verðskuldaða athygli á ljósmyndasíðum.
Hrútur á Þverhamri
Skógrækt:
Samstarfi fagnað
Anne Beathe var leyst út með
bókinni Frændur fagna skógi eftir
Óskar Guðmundsson, sem rekur
sögu samskipta Noregs og Íslands.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson gróðursetti rauðblaða íslenskt birkitré,
Heklu, sem er afurð plöntuerfðafræðingsins Þorsteins Tómassonar sem hjá
honum stendur ásamt Anne Beathe Tvinnereim, ráðherra alþjóðaþróunarmála
og norrænnar samvinnu í ríkisstjórn Noregs. Myndir / Hjördís Jónsdóttir
Forfeður margra þeirra trjáa sem best þrífast á Íslandi koma frá Noregi.
Anne Beathe gróðursetti fjallaþin sem kannski mun þjóna sem Oslóartré
Reykvíkinga í framtíðinni.
B
irt m
eð
fyrirvara um
m
ynd
a- o
g
textab
reng
l.
ÚRVAL
JEPPADEKKJA
Courser CXT
Jeppadekk
undirlag, bleytu og
vetrarfærð.
Courser MXT
Jeppadekk
aðstæður og
veðurskilyrði.
Open Country A/T Open Country M/T
Jeppadekk
Þrautreynt jeppadekk
við allar akstursaðstæður
allt árið um kring.
Jeppadekk
Hentar vel þar sem mikið
grip þarf, svo sem í drullu
og sandi.
nesdekk.is / 561 4200
Fiskislóð 41
101 Reykjavík
561 4110
Tímabókun
Skeifan 9
108 Reykjavík
590 2098
Tímabókun
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Tímabókun
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Tímabókun
Austurvegur 54
800 Selfossi
590 2095
Tímabókun
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Tímabókun
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Tímabókun
Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn
og skoðaðu dekkjaúrvalið
á nesdekk.is
Tveggja daga
Slow Food-hátíð
Slow Food Reykjavík stendur fyrir
tveggja daga hátíðahöldum undir
yfirskriftinni Bragða Garður.
Hátíðin fer fram dagana 20. og 21.
október næs tkomandi, með fræðslu-
erindum, vinnustofum og matarmarkaði
Samtaka smáframleiðenda matvæla.
Hátíðin verður haldin í Garðskála
Grasagarðs Reykjavíkur og verður
Kaffi Flóra með veitingar í boði í anda
Slow Food.
Fimmtudaginn 20. október, á degi
kartöflunnar, verður sérstök sýning á
frækartöflum. Í grennd við Garðskála
Grasa garðsins verður sýning á villtum
erfðalindum ræktaðra nytjaplantna.
Ókeypis er inn og á alla fyrirlestra
og vinnustofur.
BragðaGarður er samstarfs verkefni
Slow Food Reykjavík, Grasagarðs
Reykjavíkur, Samtaka smáfram-
leiðenda matvæla, Beint frá býli,
Biodice um Líffræðilega fjölbreytni
2023 og Kaffi Flóru. /smh
Dagskrá
Föstudagur 20. október
11:30 Slow Food á fleygiferð
og aldrei mikilvægari, Dóra
Svavarsdóttir, formaður Slow Food.
12:00 Philosophy of food,
Ole Martin Sandberg.
12:30 Skyr, Þóra Valsdóttir
13:00 Íslenska geitin, Birna
Baldursdóttir
13:30 Mikilvægi skordýra,
Gísli Már Gíslason
14:00 Skógarmatur,
Elisabeth Bernard
14:30 Kartöflur frá fræi til fæðu,
Dagný Hermannsdóttir
15:00 Af hverju lífrænt?
VOR verndum og ræktum
15:30 Slow Food travel.
16:00 Smáframleiðendur, tækifæri
og möguleikar, Oddný Anna
Björnsdóttir
og Handverksbjór, smakk og
umræður, Hinrik Carl Ellertsson
16:30 Hæglætis Mathús, hvað er
nú það? Gunnar Garðarsson
Laugardagur 21. október
12:00 Hvernig á að lyktgreina vín,
Gunnþórunn Einarsdóttir
13:00 Þari úr hlaðborði fjörunnar,
Eydís Mary Jónsdóttir
14:00 Íslenskt ostasmakk.
Eirný Sigurðardóttir