Bændablaðið - 19.10.2023, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Oft kemur verð á matvælum
fram í almennri umræðu hér
á landi, ekki síst á verðbólgu-
tímum sem nú. Sú skoðun er
ríkjandi að lífrænt vottuð mat-
væli séu dýrari, og að sumra
mati of dýr til að geta orðið
almennur valkostur.
En í hverju felst
sá mögulegi
verðmunur og
fyrir hvað er
verið að greiða ?
Á þessum
skrýtnu tímum
þar sem sjálf-
bærni er lykil-
hugtak er mikil-
vægt að hug-
leiða aðra mælikvarða á verðmæti
matvæla en verð pr. kg, og
framtíðin getur oltið á því.
Á þessu hvílir sú skoðun að
merkja matvæli með kolefnisspori
sem dæmi. Lífrænir bændur nota
ræktunaraðferðir sem eru mildari
fyrir umhverfið. Lífræn ræktun er
hringrásarkerfi í framkvæmd, sem
m.a. felst í að nýta lífrænt efni
úr nærumhverfi og vinna úr því
áburð í stað þess að notaður sé sá
tilbúni áburður sem framleiddur
er með miklum umhverfiskostnaði
í öðrum löndum og fluttur um
langa leið. Lífrænn jarðvegur
sem fóðraður er á lífrænum
áburði og án eiturefna er ríkari
af líffræðilegri fjölbreytni,
og á því hangir allt annað líf
til framtíðar. Þetta eru mikil
verðmæti sem eðlilegt er að sé
greitt fyrir. Þeir sem þarna koma
til greina til að borga brúsann
eru lífrænir framleiðendur sjálfir
sem taka þá af sinni framlegð
eða eignum, neytendur í gegnum
hærra verð og yfirvöld í gegnum
landbúnaðarstefnu og styrkjakerfi.
Í búfjárrækt hafa dýrin meira
rými til hreyfingar þegar þau eru
á húsi, og hafa aðgang að útisvæði
allt árið. Þessi augljósi munur á
aðstöðu og rými dýranna kemur
fram í hærri kostnaði á kíló af
kjöti eða lítra af mjólk, og þ.a.l.
hærra verði til neytenda, nema að
þeim kostnaðarauka sé mætt með
öðrum hætti. Rannsóknir hafa
sýnt að lífrænt vottað nautakjöt
inniheldur meiri næringu, t.a.m.
um 50% meira magn af Omega-
3 fitusýrum er að finna í lífrænt
vottuðu kjöti og mjólk. Frá
þessu sjónarhorni mætti draga
úr kjötneyslu um 30% en þó
innbyrða sama magn af Omega-
3 fitusýrum. Framlag lífræns
landbúnaðar til dýravelferðar og
minnkunar á kjötmagni í neyslu
getur því verið umtalsvert.
Í lífrænni grænmetisræktun er
ekki úðað tilbúnum eiturefnum
gegn skordýrum, illgresi eða til
að fella grös áður en stórvirkar
vélar keyra yfir akra. Oft þarf
meira vinnuafl við slík verk s.s.
til að halda illgresi í skefjum, og
oft er uppskorið í smáum stíl,
s.s hér á landi. Neytendur finna
meira bragð af lífrænt ræktuðu
grænmeti og nýta hráefnið
betur þar sem ekki þarf að skafa
eitrið utan af áður en þess er
neytt. Eiturefnaleifar er einn af
megin áhættuþáttum í myndun
krabbameina og því skiptir þetta
neytendur miklu máli. Í lífrænni
grænmetisræktun erlendis hafa
framleiðendur náð að auka
framleiðslumagn með miklum
stuðningi frá stjórnvöldum,
s.s. álagi á stuðningsgreiðslur,
tækjastuðningi og leiðbeininga-
þjónustu. Árangur Dana er eftir-
tektarverður þar sem nýjustu
tækni og sjálfvirkni er beitt til
að framleiða lífrænt grænmeti í
stórum stíl utandyra til útflutnings.
Erfðabreyttar lífverur eru
óheimilar í lífrænni ræktun sem er
mikið grundvallaratriði í lífrænni
kornrækt og lýðheilsumál.
Nýverið var sýnd heimildarmynd
á RÚV um glúten sem fjallaði um
hvernig stórræktendur á korni úða
akrana kerfisbundið með glýfosati
í því skyni að flýta þurrkun og
ná niður kostnaði. Gildi lífrænnar
vottunar á korni er því ótvírætt til
að verja neytendur fyrir slíkum
eituráhrifum í matvælum og á
lífríkið. Á Lífrænt Ísland hefur auk
þess verið fjallað um fjölþjóðlegar
rannsóknir sem draga skýrt í ljós
aukið næringargildi í lífrænt
ræktuðu korni í samanburði við
ræktun með tilbúnum áburði.
Ísland er nú eina landið í
Evrópu sem ekki hefur mótað
sér aðgerðaráætlun um lífræna
framleiðslu og styður ekki
kerfisbundið við sína framleið-
endur til lengri tíma til að vega upp
þann „kostnaðarauka“ sem felst
í lífrænum framleiðsluháttum.
Ríkið tekur m.ö.o. ekki þátt í að
greiða fyrir þau almannagæði
sem lífræn framleiðsla veitir,
sem þó mun skipta komandi
kynslóðir öllu máli. Hér á landi
er framleiðendum gert að bera
kostnaðinn eða velta út í verðlagið
að fullu. Eftir því sem innflutningur
eykst á lífrænt vottuðum afurðum
sem njóta slíks stuðnings í sínu
heimalandi sést glöggt hvað
samkeppnisstaðan getur orðið
skökk og hamlandi fyrir nýliðun
þar sem framleiðendur hér á landi
treysta sér ekki inn á leikvanginn
við slíkan aðstöðumun.
Tillögu matvælaráðuneytisins
um aðgerðaráætlun fyrir lífræna
framleiðslu er nú beðið með
eftirvæntingu sem vonandi mun
endurspegla breytta afstöðu til
greinarinnar hér á landi.
Eygló Björk Ólafsdóttir, lífrænn
kornræktandi og formaður VOR
(Verndun og ræktun), félags um
lífræna ræktun og framleiðslu.
Er lífrænt dýrara?
Kerfisbundin notkun eiturefna í landbúnaði kemur niður á heilsu
neytenda og gæðum jarðvegs. Vottuð lífræn framleiðsla sannar gildi
sitt þar sem sjálfbærni er markmið í sjálfu sér.
Vettvangsferð í Sviss:
Minni notkun á CO2 í lífrænni
grænmetisframleiðslu
Vorið 2023 sótti höfundur lífræna
ráðstefnu í Sviss. Þar var m.a.
farið í vettvangsferð til Rathgeb
BioLog Ag í Unterstammheim.
F y r i r t æ k i
Rathgeb hefur
vaxið stöðugt og
er stærsti lífræni
grænmetisfram-
leiðandi í Austur-
Sviss. Auk græn-
metis sem þau eru
að rækta sjálf, eru
þau að fá grænmeti
frá mörgum
lífrænum garðyrkjustöðvum. Samtals
er grænmeti ræktað á 400 ha í útirækt
og 15 ha í gróðurhúsum. Ræktaðar eru
um 70 mismunandi grænmetis- og
berjategundir yfir sumarið og um 30
mismunandi grænmetistegundir yfir
veturinn. Mest ræktaða grænmetið
varðandi flatarmál og magn eru
gulrætur og kartöflur. Einnig er ræktað
í miklu magni blómkál, spergilkál,
kínakál, fennika, kúrbítur, salat og
vorsalat og í gróðurhúsum mikið
af vorsalati, blaðsalati, klettasalati,
hnúðkáli, tómötum, papriku, eggaldin
og agúrkum. Fyrirtækið er einnig
með eigin geymslu-, pökkunar- og
flutningastarfsemi (mynd 1). Um 300
starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu, á
ökrum, í gróðurhúsum, á lager, við
pökkun, flutninga, sölu og umsýslu.
Um 2/3 hluti af vörum eru afhentar til
matvöruverslana Coop og Migros, en
afgangurinn fer til söluaðila.
Farið var í pökkunaraðstöðu, þar
sem sýnt var hvernig grænmetið er
unnið þegar það kemur af ökrunum eða
af lagernum (mynd 2 og 3). Kartöflur,
gulrætur og svo framvegis verður
þvegið, flokkað og pakkað og svo
fært yfir í dreifingaraðstöðu þar sem
markaðssetning fer fram (mynd 4).
Fyrirtækið er einnig með sína eigin
skólphreinsistöð: Vatnið sem notað
var fyrir þvott á grænmeti (150-200
m3 vatn/dag) er hreinsað með settanki
og reykhreinsitanki til að hægt sé að
veita því í þorpslækinn. Um 900.000
kWh sólarorka er framleidd af 5.700
m2 ljósvakakerfi. Þetta samsvarar um
það bil árlegri neyslu 225 heimila í
Zürich. Gróðurhúsin eru hituð með
viðarhitun. Þar með er hægt að spara
árlega um 2800 t CO2.
Eftir þessi heimsókn var haldið
áfram til AgroCO2ncept í Flaach.
Samtökin AgroCO2ncept eru
upprunnin að frumkvæði bænda
frá vínhéraðinu Zürich. Þar hafa
23 bændur sett sér það markmið
að innleiða loftslagsvænan og
auðlindahagkvæman landbúnað.
Bændurnir vilja draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda á bæjum
sínum og nýta reynslu sína til að
LÍFRÆNT ÍSLAND
Christina
Stadler.
Mynd 1: Grænmeti er geymt í stórum viðarkössum.
Mynd 2: Vinnslusvæði fyrir flokkun á kartöflum.
Mynd 3: Vinnslusvæði fyrir flokkun á gulrótum.
Mynd 4: Grænmetið tilbúið fyrir sölu.
Mynd 5: Þurrkun á viðarflögum.
Eygló Björk
Ólafsdóttir.
Á FAGLEGUM NÓTUM