Bændablaðið - 19.10.2023, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
smithætta sé til staðar. Þá má ekki
hafa kálfa eina og sér frá átta vikna
aldri. Í öllu falli ættu kálfarnir að fá
að sjá og geta haft samband við aðra
kálfa. Bændum er ráðlagt að gera
hnjáprófið í stíum kálfanna einnig
og taka sérstaklega eftir því hvort
hnén verða blaut eða óhrein við
prófunina. Ef það gerist þarf að huga
að undirlaginu og bæta úr ástandinu.
Ef smákálfar ganga undir kúm á að
vera til staðar kálfaskjól, svo þeir
geti komist í var þegar þeim hentar.
Útigangur á að hafa aðgengi að
sömu þægindum s.s. að geta legið
samtímis og að undirlagið uppfylli
sömu kröfur og hér að framan
greinir.
Geta gripirnir hreyft sig eðlilega?
Önnur spurning í DVP heimsókninni,
sem hér að framan var getið um, er
hvort svokallaður hreyfiferill gripa
sé eðlilegur. Þetta er sérstaklega
skoðað hjá stærstu gripunum og þá
sérstaklega hjá gripum í lausagöngu.
Sé legusvæðið óþægilegt, s.s. vegna
harðs undirlags, rangra stillinga á
innréttingum eða þrenginga, sést
það oftast vel á hreyfiferli gripanna.
Þannig ætti ekki að taka kú lengri
tíma en 6 sekúndur að standa á
fætur, ef það tekur lengri tíma
bendir það til þess að eitthvað sé
að svo sem hált undirlag svo dæmi
sé tekið.
Fullorðin norsk kýr, sem er
vel að merkja nokkuð stærri
en fullorðin íslensk kýr, þarf
hálfan metra af rými framan við
legusvæðið þegar hún stendur á
fætur. Ætla má að þetta sé heldur
minna fyrir íslenskar kýr. Þegar kýr
stendur á fætur rykkir hún höfðinu
fram á við og skýrir það þessa
plássþörf. Þegar fjós eru hönnuð
í dag þarf að horfa sérstaklega til
þessa þáttar og þá taka mið af 20%
stærstu kúnna og miða plássþörfina
við þær.
Í eldri fjósum er annað atriði
sem gott er að fylgjast með en það
er ef það sjást mjög glansandi fletir
á innréttingum í fjósinu þar sem
kýrnar eru. Það bendir til þess að
kýrnar rekist oft þar utan í. Þá þarf
alltaf að horfa til hárlausra svæða
eða lítilla sára á gripunum sem
benda til hins sama.
Nautgripir kjósa helst sjálfir að
liggja á svæðum sem eru opin og
hafa útsýni. Þessari þörf gripanna
getur verið erfitt að mæta í sumum
fjósum en gott að hafa í huga við
hönnun eða breytingar.
Áhrif á hreyfingu
Algengir gallar, sem leiða til
truflunar á hreyfiferli grips, eru of
stuttir básar, of lág herðakambsslá
eða hún staðsett of aftarlega eða
lélegt undirlag í bás gripsins. Í
sumum tilfellum er nokkuð einfalt
að laga herðakambsslána og
staðsetja rétt en það er þó ekki alltaf.
Þetta ætti þó að skoða alvarlega, ef
talið er að hreyfing gripanna sé ekki
rétt. Í sumum tilvikum er jafnvel
hægt að skipta herðakambsslánni
út með strekkiborða, sem þá getur
gefið eftir ef viðkomandi gripur
snertir hann.
Forgangsröðun
Fjárfesting í góðri dýravelferð getur
verið kostnaðarsöm, þótt margir
sjái að það geti borgað sig til lengri
tíma litið. Þegar efnahagsástandið
er þungt getur þó verið erfitt að
forgangsraða hvaða aðgerðir skipti
mestu máli fyrir velferð dýra og
afkomu búsins. Í Noregi er litið
svo á að áðurnefnd DVP úttekt sé
einmitt góður upphafspunktur við
slíka forgangsröðun. E.t.v. mætti
koma upp svipuðu kerfi á Íslandi,
til hagsbóta fyrir nautgripi landsins
og afkomu hérlendra nautgripabúa.
Kálfar eru saman a.m.k. tveir og tveir, sem er mjög gott fyrir atferli þeirra.
Mikilvægt er að hafa mikið af undirburði hjá þeim. Myndir / Åse M. Sogstad.
Burður í hreinni stíu með nægum undirburði gefur kálfinum gott upphaf og
er mjög gott fyrir kýr á þessum viðkvæma tíma.
Kálfar saman í stíu. Nóg pláss og mikið af undirburði.
Magnaðir ferðafélagar
Pantaðu á olis.is eða hafðu samband í síma 515 1100
Hjá Olís finnurðu úrval traustra og áreiðanlegra rafgeyma
fyrir allar tegundir bíla og landbúðaðartækja, frá Exide og
öðrum framleiðendum. Einnig rafgeyma sem henta vel fyrir
fellihýsi og hjólhýsi og tryggja stuð í útilegunni.