Bændablaðið - 19.10.2023, Qupperneq 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. október 2023
Eftir að Búnaðarþing samþykkti í
mars 2021 tillögu um nýtt félags-
kerfi bænda og þar með sam-
einingu Bændasamtakanna og
búgreinafélaganna var óljóst hvaða
og hvort hin gömlu búgreinafélög
ættu nokkurt hlutverk lengur eða
tilverurétt yfir höfuð.
Þessi félög
höfðu verið
til lengi með
eigin kennitölu,
félagatal og
rekstur. Eina
hlutverk þeirra
eftir breytingu
félagskerfisins
var að vera
notuð sem eins
konar kjördæmi fyrir kjör inn á
búgreinaþing, án þess þó að félögin
sjálf hafi nokkuð með þá kosningu
að gera. Það var því augljóst að
taka þurfti þá umræðu hvort reka
ætti félögin áfram og þá með hvaða
tilgangi. Sömuleiðis ef niðurstaðan
yrði að leggja þau niður þá þyrfti að
slíta þeim með viðeigandi meðferð,
ákvörðun um ráðstöfun eigna og
þess háttar.
Félag Sauðfjárbænda í Suður-
Þingeyjarsýslu er eitt þessara félaga.
Eftir tilþrifalítil ár á meðan Covid-19
faraldrinum stóð var tekin ákvörðun
um það á aðalfundi félagsins, sem
haldinn var á Húsavík í apríl 2022,
að breyta tilgangi félagsins. Eftir
góðar umræður um framtíðina var
það niðurstaða fundarins að enn þá
væri þörf á félagslegum vettvangi
sauðfjárbænda innan svæðisins
en þó með breyttu sniði. Þannig
er tilgangur félagsins samkvæmt
nýjum lögum þess sem samþykkt
voru á yfirstandandi ári eftirfarandi:
- Vera félagslegur vettvangur
sauðfjárbænda í sýslunni.
- Stuðla að frekari fræðslu um
sauðfjárbúskap.
- Stuðla að góðu mannlífi í
kringum sauðfjárbúskap í sýslunni.
Strax var hafist handa og fyrsta
verk nýrrar stjórnar vorið 2022 var
að skipuleggja fyrstu hrútasýningu
alls starfssvæðis félagsins. Hrúta-
sýningar höfðu stundum verið haldnar
innan sumra sveita en lítil hefð er fyrir
því þar sem Skjálfandahólf hafði lengi
verið lokað vegna riðuvarna. Það
var hins vegar opnað 1. janúar 2020.
Halda þurfti sýninguna á tveimur
stöðum þar sem um tvö varnarhólf
er að ræða en hluti starfssvæðisins
er í Eyjafjarðarhólfi, en sýnt var í
Hriflu vestan Skjálfandafljóts og í
Sýrnesi austan fljóts.
Alls 49 hrútar voru skráðir til
leiks á þessari fyrstu sýningu sem
tókst afar vel í alla staði.
Næsta verkefni félagsins var að
halda fræðslufund um lungnakregðu í
sauðfé. Dr. Björn Steinbjörnsson hélt
erindi þess efnis á fundi sem haldinn
var í samvinnu með deild sauðfjár-
bænda í Búnaðarsambandi Norður-
Þingeyjarsýslu. Vel var látið af þeim
fundi og var hann ágætlega sóttur.
Á aðalfundi félagsins á yfir-
standandi ári voru í fyrsta skipti
veitt verðlaun fyrir besta veturgamla
hrútinn en gjaldgengir voru hrútar
fæddir 2021 sem áttu nægan fjölda
slátraðra afkvæma. Þessi verðlaun
fengu nafnið „Skjálfandi“ og
augljóst var á mætingu og stemningu
fundarins að mikill áhugi var á
þessari útnefningu.
Eftir vel heppnaða hrútasýningu
í fyrra var leikurinn endurtekinn
í ár og fór sú sýning fram 7.
október síðastliðinn. Alls var
61 hrútur skráður til leiks, þar
af níu forystuhrútar, en í ár var
boðið upp á þá nýjung að hafa sér
keppnisflokk fyrir forystufé. Hafði
Daníel Hansen, forstöðumaður
Fræðaseturs um forystufé, veg og
vanda af þessari nýjung eftir að hafa
frétt af vel heppnaðri hrútasýningu
í Suður-Þingeyjarsýslu 2022.
Mætti hann á svæðið í ár og
dæmdi í keppni forystuhrúta ásamt
því að gefa sigurvegaranum bikar
að launum. Dagurinn var afar vel
heppnaður en eftir þessa miklu
þátttöku voru um 100 manns í mat
að Ýdölum þar sem sigurvegarar
voru krýndir. Sigurvegarinn er
sonur Ramma frá Hesti frá Úlfsbæ
og hafði hvorki meira né minna
en 44 mm þykkan bakvöðva og
stigaðist upp á 91 stig.
Þónokkuð margir hrútar rufu
90 stiga múrinn á sýningunni.
Tekið skal fram að styrktaraðilar
hrútasýningarinnar 2023 voru
Sparisjóður Suður-Þingeyinga,
Lífland, Kjarnafæði Norðlenska,
Norðurþing og Tjörneshreppur og
stjórn vill koma á framfæri þakklæti
til þeirra. Auk þess vill stjórn
F.S.S.Þ. koma á framfæri þökkum
til dómara, kynnis, gestgjafanna,
ljósmyndara og ritara sem tóku þátt
í sýningunni í ár.
Fram undan hjá félaginu eru
fleiri fræðsluviðburðir auk þess
sem Skjálfandi verður veittur öðru
sinni snemma á næsta ári. Almennt
er óhætt að segja að almenn ánægja
sé með þessa stefnubreytingu
félagsins og ekki sé útlit fyrir
annað en að ágætur gangur verði
á starfsemi félagsins á næstu árum,
félagsmönnum og velunnurum
íslensku sauðkindarinnar öllum til
gagns og gamans.
Aðalsteinn J. Halldórsson
formaður Félags sauðfjárbænda í
Suður-Þingeyjarsýslu.
Nýtt hlutverk Félags sauðfjárbænda
í Suður-Þingeyjarsýslu
LESENDARÝNI
Aðalsteinn J.
Halldórsson.
Sigurhrúturinn 2023 í flokki latra hrúta. Rammasonur úr Úlfsbæ sem hefur
fengið nafnið Skarkali. Með honum á myndinni er Eyþór Kári Ingólfsson,
einnig ræktaður í Úlfsbæ. Myndir / Ragnar Þorsteinsson
Fjórir efstu hrútar austan megin Skjálfandafljóts ásamt ábyrgðarmönnum
og dómurum. Jónas Jónasson, Benedikt Hrólfur Jónsson, Guðrún Hildur
Gunnarsdóttir (dómari), Eyþór Kári Ingólfsson, Sigurður Atlason og Gunnar
Guðmundarson (dómari og faðir Guðrúnar Hildar).
Sigurbjörn Árni Arngrímsson tók að sér að lýsa hrútasýningunni líkt og á
fyrra ári og sýndi kunnugleg tilþrif.
Böðvar Baldursson tók við fyrsta
„Skjálfandanum“ vorið 2023 fyrir
hrút sinn, Dóm frá Yzta-Hvammi.
Mynd / Aðalsteinn J. Halldórsson
SAMTÖK UNGRA BÆNDA
SAMTÖK UNGRA BÆNDA
...ungra bænda og íslenskra sveita
fyrir lí...
Laun
Samtök ungra bænda efna til baráttufundar fyrir lí sínu og sveitanna í landinu. Án verulegra breytinga
verður engin eðlileg endurnýjun í bændastéttinni. Samt blasa við ölmörg sóknarfæri til alþjóðlegrar
samkeppnishæfni og um leið íslenskrar verðmætasköpunar. Við trúum á framtíðina en vandamálið er
nútíðin þar sem þjóðin, undir forystu stjórnvalda, ýtur um þessar mundir sofandi að feigðarósi. Að gera
eitthvað í málunum seinna gæti einfaldlega orðið of seint.
Staður: Salurinn, Hamraborg 6, Kópavogi
Stund: Fimmtudagur 26. október kl. 13:00 – 16:00
Streymi: Facebook: Ungir bændur, SUB
Laun fyrir lí
Steinþór Logi Arnarsson, formaður Samtaka ungra bænda,
bóndi í Stórholti, Dölum
Sami leikur – ólíkar leikreglur
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í
landbúnaði
Lausn á alvarlegum vanda í íslenskum
landbúnaði
Þórólfur Ómar Óskarsson, kúabóndi í Grænuhlíð, Eyjarði.
Lifandi sveitir – lifandi land
Þuríður Lillý Sigurðardóttir, sauðárbóndi á Sléttu, Reyðarrði.
Tryggjum bændum framtíð
Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar BÍ, garðyrkju- og
blómabóndi á Espiöt, Reykholti.
Sveltur sitjandi kráka en júgandi fær
Ingibjörg Davíðsdóttir, sendiherra og avaki íslensks fæðuklasa
Umræður
Flutningsmenn erinda, gestir úr stjórnmálum – gestir í sal
Landverðir þjóðarinnar
Ísak Jökulsson, í stjórn SUB, bóndi á Ósabakka, Skeiða- og
Gnúpverjahreppi
Er fjármagnskostnaður náttúrulögmál?
Sigríður Ólafsdóttir, bóndi og ráðunautur, Víðidalstungu,
V-Húnavatnssýslu
Fæðuöryggi þjóðarinnar í sjálfboðavinnu
Jón Helgi Helgason, kartöubóndi á Þórustöðum, Eyjarði
Hvar stendur hnífurinn í kúnni?
Stefán Geirsson, bóndi í Gerðum, Flóahreppi
Landbúnaður: Tækifæri og skipulagsumgjörð
Ragnar Árnason, hagfræðingur
Umræður
Flutningsmenn erinda, gestir úr stjórnmálum – gestir í sal
Fundarstjóri
Bjarni Rúnarsson, bóndi á Reykjum, Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Dagskrá Kahlé