Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
U p p risup löntur eru merkileg fyrirbæ ri.
U m þ æ r hafa sp unnist ý msar sögur og
helgisagnir.
Fyrir um þrjátíu árum bjó sú er þetta ritar
í Þýskalandi, sunnan við Hamborg. Skömmu
fyrir jól var ég á rangli um bændamarkað og sá
þá í körfu liggjandi óhrjálegar, þurrar, brúnar
kúlur, u.þ.b. 15 c m í þvermál, og var auglýst
að þetta væri hin heilaga og eilífa Jeríkórós.
Ég stóðst ekki mátið og keypti fáeinar; eina
handa sjálfri mér og aðrar til jólagjafa fyrir mitt
nánasta fólk uppi á Íslandi.
Í þýskri lýsingu með þessum skraufþurru og
brothættu vöndlum sagði að Jeríkórósin væri
eitt af undrum náttúrunnar. Aðeins þyrfti að
leggja hana í vatn og þá spryngi hún út og yrði
iðjagræn en annars gæti hún lifað í ár og aldir,
og jafnvel endalaust, án vatns eða jarðvegs af
nokkru tagi. Hún þyldi hvort tveggja mikinn
hita og kulda. Ekki mætti hún þó standa lengi í
vatni, eftir átta daga þyrfti að þurrka rósina aftur
í þrjá daga minnst en svo gæti þessi hringrás: að
þurrka og væta, átt sér stað út í það óendanlega
ef eigandi rósarinnar kysi svo en ella mætti hún
geymast þurr.
T v æ r p löntur o g jafnv el fleiri
Við nánari eftirgrennslan, árum síðar, áttaði ég
mig á að hér var verið að rugla saman tveimur
óskyldum eyðimerkurplöntum. Annars vegar
Anastatic a hieroc huntic a af sinnepsættinni
( Brassic ac eae) , sem vex einkum í Mið-
Austurlöndum og er kölluð hin sanna Jeríkórós
og hins vegar Selaginella lepidophylla,
upprisuplöntu af tegund ( mosa) jafna, sem vex
m.a. í C hihuahuan-eyðimörkinni í Mex íkó
og Bandaríkjunum og hefur verið nefnd
Jeríkórós, Kristsrós, eilífðarjurt ( Siempre viva) ,
fölsk Jeríkórós, upprisuplanta, upprisumosi,
risaeðluplanta og steinblóm, svo eitthvað sé
nefnt. Ég var með þá síðarnefndu í höndum.
U pprisuplöntur geta lifað af mikla þurrka
og síðan endurheimt eðlilega efnaskiptavirkni
við endurvökvun. Vatnssvörunarhreyfingar
plöntunnar stjórnast af rakainnihaldi,
eiginleikum vefja og stigskiptri dreifingu
ákveðinna frumna sem hefur áhrif á sammiðja
stífleika og spíralmyndun. Y tri stilkar
plöntunnar beygjast hringlaga eftir tiltölulega
stuttan tíma án vatns. S. lepidophylla framleiðir
hvorki blóm né fræ heldur fjölgar sér með
gróum. Af henni blautri leggur sannkallaða
jarðarangan, milda moldarlykt. Þessar plöntur
losna auðveldlega úr sínum rýra jarðvegi og
geta þá oltið um berangur með veðri og vindum
eins og fisléttir boltar.
Látum liggja á milli hluta hvor plantan er
hin eina sanna Jeríkórós og hugum að þeim
sögnum sem orðið hafa til um hana.
H öfð í h áv eg um
U pprisuplantan þótti sjaldgæf og forvitnileg
og öðlaðist slíkan orðstír að m.a. franskar
aðalsfjölskyldur bættu henni við skjaldarmerki
sín. G amlar þýskar bændafjölskyldur miðla
enn þann dag í dag Jeríkórósinni frá kynslóð
til kynslóðar og er hún víða í Þýskalandi
kölluð jólarós og Kristsrós. Þar er gjarnan til
siðs að sýna börnum þetta náttúruundur opnast
undir jólatrénu á aðfangadagskvöld. Í öðrum
löndum þekkist einnig að miðla rósinni sem
fjölskyldudjásni milli kynslóðanna.
Sjálf hef ég fyrir sið að leggja Jeríkórósina
mína í vatn einu sinni á ári, í hádeginu á
aðfangadag meðan setið er að snæðingi
jólagrauts. Viðstaddir sjá þá með eigin augum
þessa þurru og brothættu greinakúlu opnast,
taka lit og verða silkimjúka og slétta. Við
það tækifæri er í hljóði farið með bæn fyrir
mannkyni öllu; um frið og kærleika á jörðu og
jöfnuð meðal manna.
U m Rósina frá Jeríkó hafa orðið til margar
sögur. Nokkrar tengjast Maríu mey. Sagt er að
á ferð sinni frá Nasaret til Betlehem hafi hún
blessað plöntuna sem þannig öðlaðist eilíft líf.
Einnig er sögn um að rósin hafi fylgt
Maríu mey á ferð hennar frá Jerúsalem
til Egyptalands og hafi jurtin af virðingu
fyrir meynni opnast í hvert sinn er María
staðnæmdist og svo lokað sér er hin helga
mær hélt áfram ferðinni. María hafi grátið
sárt og tár hennar vætt rósina svo hún varð
ódauðleg vegna blessunar táranna. Sömuleiðis
er til saga um að María mey hafi nærst af
rósinni á leið sinni um hið hrjóstruga land.
Þá er sagt að nálægt Jeríkó, við lindina þar
sem Elía spámaður er sagður hafa hreinsað
beiskt vatn með salti, vax i planta sem aldrei deyr.
Hún opnist einu sinni á hverju ári, nákvæmlega
á þeirri stundu sem drottinn hafi fæðst. Rósin er
einnig sögð vera tákn um þjáningar palestínsku
þjóðarinnar og von hennar um betri tíma.
A ð þ o rna up p o g lifna aftur v ið
P lantan táknar upprisu, endurfæðingu, varanlega
ást og langlífi í allmörgum trúarbrögðum. Hún
er sömuleiðis þekkt fyrir að veita vernd og
heppni, jafnvel auð, og vera nytsamleg til að
koma jafnvægi á neikvæða orku fólks. Dæmi
eru um að Jeríkórósin hafi verið notuð í álögum
og göldrum til að hressa upp á rómantík eða
fjárhagsstöðu. Hún hefur m.a. fundist í fornum
gröfum.
Biblíuborgin Jeríkó byggðist um 9.000
árum f.Kr. og var líklega í upphafi byggð af
um 3 .000 íbúum sem ræktuðu hveiti og bygg á
ökrum. Þeir byggðu stóran steinvegg umhverfis
byggðina til verndar. Borgin byggðist upp og
var eyðilögð á víxl og þaðan mun tengingin
við plöntuna koma ekki síst: að skrælna og
lifna til skiptis.
V eku r for v itni v ísindanna
Rósinni eru ætlaðir hinir ýmsu læknandi
eiginleikar. A. hieroc huntic a þykir m.a. gagnast
við fæðingarhjálp meðan S. lepidophylla er talin
góð við kvefi. Rétt er þó að taka fram að engar
vísindalegar rannsóknir eða sannanir finnast
fyrir meintum lækningamætti Jeríkórósarinnar.
Vísindamenn hafa hins vegar lengi verið
forvitnir um eiginleika upprisuplantna enda
gætu þær gefið vísbendingar um hvernig efla
mætti þurrkþolnari nytjaplöntur til ræktunar.
Rósin frá Jeríkó stingur allvíða upp kollinum
í skáldskap því auðvitað er slík upprisuplanta
öflug samlíking fyrir líf, ást og endurfæðingu.
Má til dæmis nefna ljóð eins og „T o the Duke
of Y ork“ eftir Robert Herric k, „A Rose P lant in
Jeric ho“ eftir C hristina G eorgina Rossetti og
„T he Resurrec tion P lant“ eftir Mollie Moore.
J erík órósaræ k tun á tung linu
Allar Jeríkórósirnar sem ég gaf eru nú týndar og
tröllum gefnar og hefur fólk líklega hent þeim,
haldið að þetta væri eitthvert drasl. En ég hyggst
láta mína Jeríkórós ganga áfram til barna minna
í fyllingu tímans. Hún er jafn spræk og þegar ég
eignaðist hana fyrir þrjátíu árum, þrátt fyrir að
vera aðeins lögð í vatn einu sinni á ári hverju.
Lausleg könnun gefur til kynna að
Jeríkórósin fáist hvergi hérlendis.
Þess má að lokum geta að hið ástralska
Lunaria One Lunar Ex periment to P romote
Hortic ulture ( ALEP H) -verkefni hyggst hefja
tilraunir í ræktun m.a. upprisuplantna á
tunglinu árið 2025.
J erí k ó ró sin h efur legið algerlega sk raufþ urr í
p ap p aö sk j u inni í sk á p allt á rið en á að fangad ag
er h ú n v æ t t og lö gð í sk á l m eð ylv olgu v at ni.
N ok k rum k luk k ust und um eft ir v ö k v un er á ð ur sk raufþ urr og b rú n J erí k ó ró sin orð in m j ú k og græ n og af h enni leggur m ild a j arð arangan. Myndir / S Á
Sv ona eru þ æ r ó h rj á legar v ið fyrst u sý n,
J erí k ó ró sirnar, en sannk ö lluð und ur og
st ó rm erk i gerast þ egar þ æ r eru b leyt t ar.
Bæ k lingur fylgd i J erí k ó ró sinni þ egar h ú n
v ar k eyp t á þ ý sk um b æ nd am ark að i fyrir j ó l á rið
1 9 9 5 og þ ar segir af m eð h ö nd lun og ý m sum
h elgisö gnum h enni t engd um .
Gróður:
Urtin þraukar allslaus
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Völuteig 4 - 270 Mosfellsbær - Iceland - www.vinnuvelarehf.is - S: 496 4400
HIDROSTAL
SNIGILDÆLUR
Fullkomin lausn þegar dæla þarf þunnum eða
þykkum vökva og eru lausar við stíuvandamál
Dælurnar henta vel fyrir t.d:
Veituker, frárennsli, seyru, sláturúrgang,
lifandi sk, lensidælur, slógdælur o.. o..