Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Í fyrsta sinn voru útnefnd tvö
ræ ktunarbú ársins en bæ ði búin
voru hnífj öfn að stigum.
Þetta eru hrossaræktarbúin
Fákshólar og Þúfur. Ræktendur
í Fákshólum eru þau Jakob
Svavar Sigurðsson og Helga U na
Björnsdóttir en það eru þau Mette
Mannseth og G ísli G íslason sem
kenna sína hrossarækt við Þúfur í
Skagafirði. Þetta er í annað sinn sem
Þúfur hljóta þennan eftirsótta titil en
síðast var það árið 2020.
Ræktunarbú ársins er titill sem
margir ræktendur stefna, leynt eða
ljóst, að enda mikill heiður að fá
viðurkenningu fyrir margra ára vinnu
sem býr oft að baki hrossaræktinni.
„Þetta er fyrst og fremst
viðurkenning á því að ræktunin og
sýningarárið hafi gengið vel. Mér
finnst þetta sérstaklega gaman núna
því þetta voru eiginlega allt ný hross
sem við vorum að sýna. T vö voru
áður sýnd en annars voru þetta átta
hross sem við vorum að sýna í fyrsta
skiptið og megnið fjögurra og fimm
vetra,“ segir G ísli. Það að verða
ræktunarbú ársins var ekki eitthvað
sem þau stefndu beint að, enda erfitt
að fylgjast með hvað önnur bú eru
að gera og segja þau útnefninguna
hafa komið sér ánægjulega á óvart
þar sem svo mörg bú voru með
frábæran árangur. „Hins vegar eru
verðlaunin afar hvetjandi og maður
hefur þau stundum bak við eyrað
þegar sýningar byrja.“
L y g na og H róður fy rirferðar-
miki l í þe irra ræ kt un
Fyrstu hrossin sem þau Mette og
G ísli kenna við Þúfur eru Friður
og Lotning en þau eru fædd árið
2001 sem markar því upphafið
að hrossaræktinni þeirra þar. Á
undan því var ræktunin kennd við
Stangarholt en úr þeirri ræktun
hafa komið mörg merk hross, m.a.
Baldvin, Kyrrð, Happadís og Lygna
en allar þessar hryssur settu þau í
ræktunina hjá sér
„Lygna frá Stangarholti er
ein af stofnhryssunum okkar og
er hún á bak við mjög margt hjá
okkur. Hún eignaðist átta hryssur
og fóru sjö af þeim í ræktun hjá
okkur. T vær dætur hennar hafa nú
þegar hlotið heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi, þær Kyrrð og G rýla,“
segir G ísli en þau hafa ræktað fjórar
heiðursverðlaunahryssur í gegnum
tíðina, þær Kyrrð frá Stangarholti
( 2020) , Happadís frá Stangarholti
( 2020) , Lýsingu frá Þúfum ( 2022)
og G rýlu frá Þúfum ( 2022) . Lýsing
og Happadís eru undan Hróðri frá
Refsstöðum sem er einnig áberandi
í ræktun þeirra G ísla og Mette.
Þau G ísli og Mette búa að því
að hafa mjög svipaðan smekk á
hrossum og eru því mjög sammála
um hvernig hross þau vilja rækta
en þar skiptir gangrými og geðslag
mestu máli.
„Við erum bæði hrifin af léttleika
í allri merkingu þess orðs. Við
leitumst við að rækta hross sem við
höfum gaman af að ríða sjálf. Hross
sem eru létt, næm og léttstíg og eiga
auðvelt með að bera sig. Þau eru
ekki öll þannig okkar hross en það er
samt markmiðið,“ segir G ísli.
Það að þekkja hrossin sem þú
ræktar undan getur skipt sköpum
þegar kemur að því að para þau saman
og eru margir hrossaræktendur á því
að það veiti þeim oft ákveðið forskot
fram yfir aðra. Þar eru G ísli og Mette
engin undantekning en þau reyna að
kynnast sínum hryssum sem best
áður en þær eru settar í ræktun og
eru því oftast ekki að halda þeim fyrr
en þær eru orðnar sjö til átta vetra,
þó eru undantekningar þar á.
„Við viljum fá að kynnast þeim
vel og vita hvaða kostum þær búa
yfir. Ekki er verra að geta komist í
eins og eina hestaferð með þær til að
kynnast þeim við alvöru aðstæður.
Það er eins með stóðhestana.
Við notum sjaldan stóðhesta sem
við höfum ekki prófað og aldrei
hesta sem við höfum ekki séð með
eigin augum. Það er líka þægilegt að
þekkja foreldrana vel þegar maður
fer að temja afkvæmin. Þú færð til
dæmis eitthvað svipað vandamál og
þegar þú varst að temja mömmuna.
Þú hefur þá lært af mistökunum sem
þú gerðir kannski þá og reynir að
gera betur. Ekki síst kann maður að
vinna úr styrkleikunum sem skiptir
eiginlega mestu máli. Það styttist
í að við þekkjum fjóra og jafnvel
fimm ættliði aftur í tímann og sú
vitneskja kemur vonandi til með að
fleyta okkur fram á veginn,“ segir
G ísli.
Strengu r h æ stdæ mda
fjögu rra v etra h ros sið
Frá Þúfum voru sýnd 10 hross í
kynbótadómi og var meðalaldur
þeirra 4,9 ár. Fremstan í flokki má
nefna stóðhestinn Streng frá Þúfum
en hann er hæst dæmdi fjögurra vetra
hesturinn í ár og næsthæst dæmdi
fjögurra vetra hesturinn frá upphafi
dóma með 8,65 í aðaleinkunn.
Á hrossaræktarráðstefnu Fag-
ráðs hlaut Strengur viðurkenningu
fyrir hæstu aldursleiðréttu aðal-
einkunn ársins. Strengur er undan
T rymbilssyninum Sóloni frá Þúfum
og Kiljansdótturinni Hörpu frá
Þúfum. „Strengur er með ofsalega
skemmtilegt geðslag, mjög næmur
en yfirvegaður og fljótur að læra.
Hann var strax efnilegur og tömdum
við Mette hann til skiptist í vetur og
sumar. Ég vildi að Mette myndi sýna
hann en hún samþykkti það með því
skilyrði að ég riði honum á yfirlitinu.
Frábær hestur sem gaman verður að
halda áfram með,“ segir G ísli.
Á h ugi og v inna
á bak v ið árangu rinn
Það er mikið starf að reka
hrossaræktarbú og árangur búsins
ekki tilviljun. Að baki liggur mikil
vinna og áhugi en þau hafa, ásamt
starfsfólki, séð alfarið um tamningu
hrossanna sem þau hafa verið að
sýna undanfarin ár.
„Að baki svona árangri eins og í
ár liggur mikill áhugi og vinna. Ég
tel mjög mikilvægt að passa upp á
það að klára verkefnin. Ef maður
hefur séð eitthvað í trippi einhvern
tímann í uppeldinu, þá leitast maður
við að ná því fram. Ekki gefast upp
einhvers staðar á miðri leið.
Það eru heldur ekki alltaf hrossin
sem virðast mest spennandi í byrjun
sem verða best. Allt í einu getur
eitthvert hross sem þér leist minna
á tekið fram úr öðrum á leiðinni ef
þú gefur þeim sama tækifæri. Ekki
afskrifa eitthvað eftir tvo mánuði
þó það sé ekki farið að sýna þér
eitthvað virkilega spennandi. Þau
gætu orðið mikið betri en hin þegar
upp er staðið.“
M iki ll fjöldi ræ kt enda
með góð h ros s
Það er ekki hægt að setjast niður
með hrossaræktendum ársins án þess
að spyrja þau hvernig þeim líst á
ræktunarstarfið í dag. „Kerfið er að
verða betra að finna bestu hrossin.
Hrossin í heild hafa stórbatnað og
það er fjöldi ræktenda með góð
hross. Eins og öll þessi bú sem voru
tilnefnd núna og fleiri sem komust
ekki á þann lista.
Þetta er orðinn svo breiður hópur
góðra hrossa og ef maður lítur til
baka þá hefur svo margt breyst til
batnaðar síðustu árin. Ég efast ekki
um að það haldi bara áfram,“ segir
G ísli að lokum.
Arctic Trucks Kletthálsi 3, 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | info@arctictrucks.is
Opið alla virka daga 8-17 | www.arctictrucks.is | Arctic Trucks á Íslandi
dekk á kynningarverði!
Frábær dekk hönnuð í Evrópu. Vönduð efni og góð hönnun skila dekkjum með
góða endingu, grip og áreiðanleika við alls konar aðstæður.
Fáanleg í flestum stærðum fólksbíla, jepplinga og jeppa.
Frábært alhliða jepplingadekk
sem hentar jafnvel á malbiki
og á grófum slóðum.
Gott grip í snjó og hálku.
Hörkufínt jeppadekk sem
veitir stöðugleika og gott
grip þegar mest á reynir í
erfiðum aðstæðum.
Öruggt heilsársdekk sem
virkar vel við allar aðstæður,
sumar og vetur.
Nýtt hjá Arctic Trucks
dekk!
G í sli G í slason, sem t ó k v ið v erð launum og Brynj a A m b le G í slad ó t t ir, d ó t t ir h ans, eft ir afh end ingu v erð launa á
h rossaræ k t arrá ð st efnu F agrá ð s í V í ð id al í R eyk j av í k . Mynd / h f
Vilja rækta næm og léttstíg hross
– Mette Mannseth og Gísla Gíslason á Þúfum í Skagafirði eru hrossaræktendur ársins
Hulda Finnsdóttir
hulda@bondi.is
G í sli sý nir h é r st ó ð h est inn St reng frá Þ ú fum , h æ st d æ m d a fj ö gurra v et ra
h ross á rsins. Mynd / K ollaG r.
Í DEIGLUNNI