Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 89
89 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
E fni:
50 g hvítur þrefaldur Þingborgar-
lopi og 50 g Slettuskjótt, skærrautt,
sem er litaður tvöfaldur Þing-
borgarlopi.
Á höld:
40 eða 50 sm hringprjónar
4.5 mm og 6 mm.
Húfan:
Fitjið upp með hvíta lopanum 68
lykkjur á 4,5 mm prjóninn. P rjónið
stroff 2 sléttar og 2 brugðnar 10-12
sm. Þegar stroff er hálfnað prjónið
eina umferð slétta fyrir uppábrotið
á húfunni.
Skiptið yfir á 6 mm prjóninn og
prjónið tvær umferðir með rauða
litnum. Aukið um 2 l í seinni
umferðinni jafnt yfir prjóninn.
Þ á er p rj ónað áfram. T akið
fimmtu hverja lykkju óprjónaða
tvær umferðir í röð og prjónið þær
í þeirri þriðju.
Endurtakið þetta 6 sinnum.
Þá ættu að vera komnar u.þ.b. 25
umferðir. Þá byrjar úrtaka.
T akið úr á öðrum hverjum
stað þar sem lykkjur eru teknar
óprjónaðar.
* T akið yfir á hægri prjóninn
tvær lykkjur í einu óprjónaðar,
prjónið eina lykkju og steypið
þeim óprjónuðu yfir báðum í einu,
þannig verður miðjulykkjan ofaná*
Endurtakið umferðina á enda.
Hættið að taka óprjónaða lykkjur
á þessum stað eftir fyrstu úrtöku en
haldið áfram með hinar húfuna á
enda. P rjónð 10 umferðir án úrtöku
og endurtakið hana síðan, en tekið
er úr alls fjórum sinnum á þennan
hátt.
Þá ættu að vera 15 lykkjur eftir á
prjóninum, slítið frá og notið nál til
að þræða í lykkjurnar og gangið vel
frá endanum. Búið til dúsk að vild.
Hægt er að hafa húfuna dýpri
ef vill, þá þarf að eiga meiri lopa.
Eins er hægt að stækka hana á
þverveginn, þá þarf að bæta við
minnst fjórum lykkjum á stroff og
fimm á hinn hlutann.
H önnun: M argr é t Jón sdóttir.
Jólahúfa
– Ein stærð
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. auk 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing
skipulagsáforma að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028 og deiliskipulaga.
Háteigur í Þykkvabæ. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13. desember 2023
að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra
2016-2028 á lóðinni Háteigur L165390 þar sem núverandi notkun landbúnaðar-
svæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Um er að ræða áform um
uppbyggingu á ferðaþjónustu með stækkun íbúðarhúss og byggingu gistihúsa
innan lóðarinnar fyrir allt að 25 gesti.
Gaddstaðaeyja. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13. desember 2023
að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra
2016-2028 á lóðinni Gaddstaðaeyja L196655. Um er að ræða byggingu brúar
út í eyjuna sem þolir bílaumferð og umferð gangandi fólks. Fyrirhugað er að
hafa íbúðabyggð norðan til á eyjunni, fyrir allt að 12 einbýlishús og sunnan til er
gert ráð fyrir hóteli með afþreyingu s.s. baðlóni, fyrir allt að 200 gesti.
Einnig er möguleiki á útivistarsvæði syðst á eynni. Gert er ráð fyrir að gerð
verði breyting á aðalskipulagi þar sem núverandi óbyggðu svæði verði breytt í
íbúðarsvæði að hluta og hins vegar í verslunar- og þjónustusvæði.
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010
er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að deiliskipulagi
Bjargshver. Deiliskipulag íbúðabyggðar.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13. desember.2023 að
kynnt yrði lýsing skipulagsáforma að deiliskipulagi fyrir Bjargshver, nýtt
íbúðahver innan þéttbýlisins á Hellu vestan Ytri-Rangár þar sem gert verði ráð
fyrir allt að 100 íbúðareiningum í mismunandi tegundum húsa, einbýlis, par- og
raðhúsum. Gerð verði grein fyrir tengingum við aðra vegi og samgöngum innan
svæðisins. Tengsl við þéttbýlið austan Ytri-Rangár gerð skil með áformuðum
göngubrúm og göngustígum. Aðkoma að svæðinu er um Suðurlandsveg
og Árbæjarveg frá Suðurlandsvegi. Lýsingarnar liggja frammi hjá
Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra,
www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í
gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er genn kostur á að
gera athugasemdir við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum
til og með 27. desember.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010
eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum.
Gaddstaðir 50, Rangárþingi ytra, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13. desember
2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Gaddstaði 50, norðan
Suðurlandsvegar við Hróarslæk. Áform eru um byggingu vélaskemmu
og annarra landbúnaðarmannvirkja í stað eldri útihúsa á lóðinni.
Aðkoma að svæðinu er frá Rangárvallavegi gegnum land sveitarfélagsins.
Mosar, Rangárþingi ytra, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13. desember 2023
að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir um 16 ha land Mosa L227577.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að skipta lóðinni upp í 8-15 lóðir undir sumarhús
þar sem stærð hverrar lóðar yrði á bilinu 0,4 - 2,0 ha.
Aðkoma er af Bjallavegi (nr. 272) um nýjan aðkomuveg að Mosum.
Rangárstígur, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13. desember 2023
að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Rangárstíg dags.
27.11.2017. Breytingin gerir ráð fyrir að heimiluð verði gisting í okki II fyrir allt
að 10 manns á hverri lóð. Tillagan var grenndarkynnt öllum lóðarhöfum við
Rangárstíg. Gerð hefur verið breyting á texta greinargerðar í aðalskipulagi
þar sem umrædd heimild hefur verið færð inn. Aðkoma er af Þykkvabæjarvegi.
Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu
og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is.
Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum
rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 25. janúar 2024.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til
Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000
eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra