Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
S korri ehf • B íldshö fði 1 2 • 5 7 7 - 1 5 1 5 • Vefverslun: w w w .skorri.is
E r jeppinn tilb úinn í jólafríið?
start fyrir jeppann í veturVeldu öruggt
M ælum • S kiptum • Traust og fagleg þjónusta
Samgöngusafn:
Sýning á sögu Austurleiðar
S ýning á sögu rútufyrirtækis
opnaði nýlega í S kógum undir
E yjafjöllum.
Í tilefni af 60 ára afmæli
rútufyrirtækisins Austurleiðar í
Rangárvallasýslu fyrr á þessu ári
ákvað Rótarýklúbbur Rangæinga
að hafa það að markmiði sínu að
koma upp sýningu um starfsemi
fyrirtækisins á Samgöngusafninu í
Skógum undir Eyjafjöllum.
Það hefur nú tekist því
16. nóvember var sýningin
opnuð formlega að viðstöddum
forsvarsmönnum safnsins og
Rótarýklúbbsins.
„Á sýningunni er farið yfir fyrstu
20 árin eftir stofnun hlutafélagsins
Austurleiðar á spjöldum með
myndum og tex ta, sem ég veit
að margir hafa gaman af því að
skoða. Þá má geta þess að fyrsta
rúta fyrirtækisins, L-502, er í eigu
safnsins og til stendur að gera hana
upp. Hún er illa farin en er nú
komin í skjól og mun njóta þeirrar
virðingar sem hún á skilið,“ segir
Sigurlín Sveinbjarnardóttir, fyrrum
forseti Rótarýklúbbs Rangæinga
og ein af driffjöðrum verkefnisins
í Skógum.
Hlutafélagið Austurleið var
stofnað þann 1. apríl 1963 á
Hvolsvelli af átta hluthöfum.
Fyrirtækið var með áætlunarferðir
frá Reykjavík og að Múlakoti í
Fljótshlíð og einnig austur í Vík
og á Kirkjubæjarklaustur.
Bílaeign var ekki almenn á
þessum tíma og því þótti mörgum
gott að geta brugðið sér til
Reykjavíkur í dagsferð til að sinna
margs konar erindum. /MH H
F élagar í R ótarýklúb b i R angæinga og gestir við opnun A usturleiðarsýningarinnar. Myndir / m h h
R útan L - 5 0 2 frá A usturleið á rgerð 1 9 6 3 , sem er í eigu S amgö ngusafnsins
í Skógum en til stendur að gera hana upp. erður það eflaust mikil vinna
miðað við á stand rútunnar.
Selfoss:
Verslun með íslenskri
framleiðslu
Alda B jörk Ólafsdóttir og Atli
L illiendahl hafa opnað verslun
á S elfossi sem selur einungis
matvöru, handverk og minjagripi
sem framleiddir eru á Íslandi.
Atli segir hjónin hafa orðið
vör við að komin sé þreyta
gagnvart öllum hinum svokölluðu
lundabúðum. Hann segir eftirspurn
vera eftir íslenskum mat og
íslenskum kúltúr, en ferðamenn
eigi erfitt með að finna slíkan
varning. Eftir að hafa skoðað
fjölmargar ferðamannabúðir hafi
þau dregið þá ályktun að 95 prósent
varanna hefðu ekkert með íslenskan
kúltúr að gera. Því hafi vaknað sú
hugmynd að opna verslun þar sem
tryggt er að allt sé íslensk hönnun
og framleiðsla.
U pphaflega hafi ekki staðið
til að opna þessa verslun og tóku
þau rýmið fyrst til leigu til að
hafa lageraðstöðu og eldhús til að
forvinna fyrir matarvagn sem þau
opna næsta vor. Þau hafi hins vegar
fljótlega áttað sig á að rýmið væri
á besta stað og því ákveðið að gera
eitthvað meira með það.
Þá benda þau á að það sé
óhjákvæmilegt að íslenskir smáfram-
leiðendur á matvöru þurfi að
verðleggja sínar vörur hátt. Verulega
hafi vantað búð þar sem þessir aðilar
gætu komið sínum vörum á framfæri
og fengið eitthvað fyrir sinn snúð.
Annaðhvort leigi framleiðendurnir
hillupláss eða þau taki þóknun.
Það sé ólíkt því sem tíðkist,
en þau segja verslanir oft rukka
fyrir bæði. Meðal þess sem verður
selt eru matvörur frá Korngrís,
Hreppamjólk og Háafelli. Þá verða
þau með landnámshænuegg og þrjá
hunangsframleiðendur. Jafnframt
hrossa- og folaldabjúgu frá Villt og
alið á Hellu og reyktan og grafinn
villtan lax . Þau verða enn fremur
með mikið af vörum frá vernduðum
vinnustöðum, eins og Skaftholti og
Ásgarði, að ógleymdu handverki frá
fjölmörgum aðilum héðan og þaðan
af landinu.
Þau taka sérstaklega fram að
verslunin sé ekki einungis hugsuð
fyrir erlenda ferðamenn, heldur geti
nærsamfélagið fundið ýmislegt fyrir
sig á þessum stað, bæði gjafavörur
og matvæli. Verslunin Made in
Ísland er á Austurvegi 44 á Selfossi
og er opin alla daga vikunnar. /Á L
A lda B jö rk og A tli opnuðu verslun þar sem allt er íslenskt. Myndir / Á L
B ændur voru snö ggir að b regðast við auglýsingu R eykjavíkurb orgar sem
b irtist í B ændab laðinu í nóvemb er. Þ ar óskaði b orgin eftir að fá að kaupa
2 0 0 heyb agga til að hjá lpa til við að skapa hlýlega og notalega stemningu
á torgum á aðventunni. Viðb rö gðin urðu framar vonum, að sö gn G uðrúnar
So íu Björnsdóttur verkefnastjóra og brá eykjavíkurborg á það ráð að þakka
b ændum fyrir með skilti sem var komið fyrir á S elfossi í b yrjun desemb er.
Ekkert heyleysi í borginni
A lda sýnir vö rur úr verslun sinni.