Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Á S low F ood-hátíð í G rasa-
garðinum á dögunum mátti sj á
á einum básnum fj ölskrúðugar
kartöflur, sem reyndust hafa
verið ræ ktaðar up p frá fræ i –
sem er mj ög óvanalegt í almennri
kartöfluræ ktun.
Í hefðbundinni kartöfluræktun
er notast við útsæði, eins og margir
þekkja, sem er í raun einræktun
( klónun) á einni kartöflu og skiljan-
lega verða afkomendur hennar því
einsleitir. Í kartöfluræktun af fræi er
hins vegar um að ræða afkomendur
kynæx lunar.
A llir eig inleik ar mis-
munandi á milli fræ ja
T il að kynna þessa tegund kartöflu-
ræktunar voru þær Svanhildur
Sigfúsdóttir, garðyrkjufræðingur í
G rasagarðinum, og Dagný Hermanns-
dóttir mættar við Kaffi Flóru þar
sem hátíðahöldin fóru fram. Dagný,
sem kunn er af súrkálsframleiðslu
sinni undir vörumerkinu Súrkál fyrir
sælkera, segir að þegar unnið sé með
fræ í kartöfluræktun geti útkoman
orðið gríðarlega fjölbreytt því systkini
geti jú orðið mjög ólík.
Áhugi Dagnýjar á þessari tegund
kartöfluræktunar vaknaði fyrir
rúmlega áratug, þegar hún komst
í kynni við fjólubláar kartöflur á
markaði í Nýju-Mex íkó. Hún komst
að því að það var vandkvæðum
bundið að panta til Íslands ný
kartöfluyrki en mögulegt væri að
kaupa fræ og flytja inn.
Í kjölfarið byrjaði hún að grúska
og komst í samband við mikinn
kartöflufrömuð, sem lét hana fá
sín fyrstu fræ sem hún hefur síðan
byggt sína ræktun á. „Af þessum
fræjum spruttu mjög óvenjulegar og
litríkar kartöflur, þar sem erfðaefnið
er mjög ólíkt þeim kartöflum sem
við ólumst upp við. En það er ekki
bara litir og lögun sem er áhugavert
við kartöflurnar, því fjölmargir
eiginleikar eru mismunandi frá
einu fræi til annars – og bragðgæðin
sömuleiðis.“
H v ert fræ er mög uleg t ný tt y rk i
Að sögn Dagnýjar er um stór-
skemmtilegt tómstundagaman að
ræða. „Það er auðvitað mjög gott að
borða afraksturinn og svo er mikill
bónus að vera með lifandi genabanka
í görðum landsmanna. Hvert fræ er
nefnilega í raun mögulegt nýtt yrki
og það má segja að „teningunum sé
kastað“ þegar fræinu er sáð, því allir
eiginleikarnir geta komið upp ef þeir
leynast í erfðaefni foreldranna.
Í hverju kartöflualdini eru því
ótrúlegir möguleikar því hvert og
eitt þeirra inniheldur á bilinu 100-
3 00 fræ. Ef við sáum þessu er hvert
fræ nýr einstaklingur, nýtt yrki,“
útskýrir Dagný.
Ý msar ásk o ranir
En jafnframt því að vera einstaklega
gjöful ræktunaraðferð að mörgu
leyti, fylgja henni ýmsar áskoranir
og vandamál, að sögn Dagnýjar, sem
hefðbundnir kartöflubændur kjósa að
vera lausir við. „Einhver fræjanna
munu ekki spíra og önnur skila ekki
uppskeru – þó flest geri það.
Einhver verða kannski mjög
bragðvond en önnur mjög bragðgóð,
flest einhvers staðar á milli. Sum
verða mjölmikil, önnur vax kennd,
sum skila litlum kartöflum, önnur
stórum. þær geta orðið mismunandi
í laginu, mismunandi á litinn, bæði
hýðið og að innan. Þær geymast
misvel. Sumar afburðavel, aðrar illa
og allt þar á milli. Sumar eru gjarnar á
að fá ýmsa kvilla og plöntusjúkdóma
sem herja á kartöflur eins og kláða,
en aðrar ekki og hafa jafnvel góða
mótstöðu.“
Dagný segir að eina leiðin til
að fá úr því skorið hvaða yrki séu
góð sé að sá fræjunum úr vænlegri
plöntu, grisja úr það sem ekki reynist
vel og halda svo áfram með þau
álitlegu. Það ferli sé einmitt hluti af
ánægjunni við þessa ræktun. „Það er
svo spennandi að sjá fjölbreytnina
og ekki síst að setja þessar kartöflur
svo niður að vori og komast að því
hvaða yrki er þess virði að halda upp
á áfram og hver ekki.
Ö ll kartöfluyrki sem við þekkjum
í dag, eins og G ullauga og Rauðar
íslenskar, eru þannig til komin að
einhver ræktaði upp af fræi og þetta
yrki stóð á einhvern hátt upp úr og
var því haldið við og fékk útbreiðslu.
Það er alltaf spennandi að sjá hvað
kemur upp úr moldinni á haustin,
enda er eitt það skemmtilegasta við
þetta hversu litríkar kartöflurnar
verða og njóta sín vel í mismunandi
matreiðslu. Bæði er litafjölbreytnin
mikil en eins eru litamynstrin mjög
mismunandi og fallegt að sjá í
mismunandi kartöfluréttum. Svo
eru dökkfjólubláar og dökkrauðar
kartöflur fullar af andox unarefnum
og því alveg bráðhollar.
Í dag eru stórfyrirtæki og háskólar
stöðugt að þróa ný yrki til að mæta
þörfum markaðarins.“
Ó fo rmleg ur fé lag ssk ap ur
Að sögn Dagnýjar er óformlegur félags-
skapur starfandi í kringum þetta
áhugamál og á Fac ebook-síðunni
Kartöflurækt af fræi skiptist fólk á
skoðunum um þetta hugðarefni sitt.
„Við erum þrjú sem vorum dugleg
við þetta fyrstu árin og höfum mest
unnið að þessu innan G arðyrkjufélags
Íslands, ég, Jóhanna Magnúsdóttir á
Dalsá og Jón G uðmundsson – sem er
þekktur ávax taræktandi á Akranesi.
Við héldum nokkrar kartöflu-
sýningar og ég flutti erindi um
ræktunina. G egnum árin hef ég gefið
talsvert af kartöflufræi í fræbanka
G arðyrkjufélagsins svo áhugasamir
hafi góðan efnivið að vinna með.
Það er ekkert hlaupið að því að fá
áhugaverð kartöflufræ sem henta vel
hér á landi. Ý msir fleiri eru farnir að
gefa kartöflufræ í bankann svo það
er auðvelt að nálgast spennandi fræ
ef fólk hefur áhuga á að prófa þetta.
G rasagarðurinn kom svo inn
í þetta fyrir nokkrum árum og
Svanhildur Sigfúsdóttir garðyrkju-
fræðingur, Hjörtur Þorbjörnsson
grasafræðingur og Björk Þorleifs-
dóttir, upplýsingafulltrúi G rasa-
garðsins, hafa sinnt þessu með
miklum sóma síðan.
Þau rækta upp af fræi á hverju
sumri og eru líka að halda við ýmsum
áhugaverðum yrkjum.
Einnig höfum við haldið Dag
kartöflunnar hátíðlegan undanfarin
ár þar sem við sýnum afraksturinn
og fræðum áhugasama.“
/s m h
LÍF&STARF
A UGLÝ SING UM S KIPULAG
Sveitarsjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. nóvember 2023
að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-
2022 og breytingu á deiliskipulagi í Borgarnesi fyrir landið
Hamar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 í þeirri röð.
Þéttbýlisuppdráttur Borgarness, svæði BL3 og O16 í landi
Hamars (L135401 og L200623)– Breyting á aðalskipulagi
Hótellóð, golfvöllurinn við Borgarnes frá árinu 2005 (L135401
og L200623) – Breyting á deiliskipulagi
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með
fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn
Borgarbyggðar, samþykkti þann 1. desember 2023 að auglýsa
nýtt deiliskipulag, Jarðræktarmiðstöð á Hvanneyri í samræmi við
1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jarðræktarmiðstöð á Hvanneyri (L133853) – Nýtt deiliskipulag
Ofangreindar skipulagsáætlanir eru kynntar í skipulagsgátt
Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is) og aðgengilegar á
heimasíðu Borgarbyggðar undir skipulagsauglýsingar.
Tillögurnar eru í kynningu frá 14. desember 2023 til og með 25.
janúar 2024.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á að koma með athugasemd við tillögur á
kynningartíma í gegnum skipulagsgáttina. Ef óskað er nánari
kynningu á málum þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Borgarbyggð, 14. desember 2023.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Kartöfluræktun:
Fjölbreytileikanum
fagnað í kartöflufræi
– Áhugamál fyrir fagurkera og matgæðinga
Dagný Hermannsdóttir í sínu náttúrulega umhver .
Kartöflublómin eru líka allskonar og
gullfalleg.
Kartöflur r ktaðar upp frá fr i en
þessar eru á litinn eins og rauðrófur.
Kartöflur sem líta út eins og blandaðir
áve tir og ber.
nnri fegurð.
Franskar fr kartöflur .
irnilegar kartöfluflögur.
lsystkini.
Litafjölbreytni.