Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 1
23. tölublað 2023 ▯ Fimmtudagur 14. desember ▯ Blað nr. 647 ▯ 29. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is Íslensku jólatrén sækja enn í sig veðrið Þ au íslensku j ólatré sem höggvin verða til að skreyta híbý li og umhverfi landsmanna fyrir þ essi j ól verða væ ntanlega um 8 þ úsund talsins. S é miðað við árið í fyrra eru innflutt j ólatré með um 57% markaðshlutdeild lifandi trj áa. Alls voru rúm 18.600 lifandi jólatré keypt fyrir síðustu jól. Fjöldi íslensku jólatrjánna hefur risið heldur upp á við hin síðari ár, um tæplega 400 tré á árabilinu 2016 til 2022, skv. tölum frá Skógræktarfélagi Íslands. Á sama tíma hefur sala á innfluttum dönskum normannsþin dregist allmikið saman, úr rúmum 28 þúsund trjám 2016 í 10.600 tré í fyrra, eða um tæpan þriðjung. I nnflutningur og sala á jólagreinum, einkum af eðalþini, hefur aukist. Í fyrra voru seld íslensk jólatré alls 8.016 stykki. T ré frá skógarbændum voru 1.700, frá Skógræktinni 1.600 og skógræktarfélögum landsins tæplega 4.700 að tölu. Höggvin voru jólatré og greinar að verðmæti 94 m.kr. og er þá miðað við söluverðmæti frá framleiðanda. Sá varnagli er sleginn að inn í þessar tölur vantar þau jólatré sem koma úr einstaka heimasölu skógarbænda og þau sem fólk heggur sjálft á einkalóðum og -landi. M innkan di innflutningu r „Á tímabili voru einhverjir tugir þúsunda jólatrjáa fluttir inn til landsins en það hefur þó breyst, m.a. með aukinni hlutdeild gervitrjáa,“ segir Hreinn Ó skarsson, sviðsstjóri Þjóðskóga hjá Skógræktinni. Stóru fyrirtækin kaupi normannsþin úti og selji hér við fremur lágu verði og erfitt sé fyrir íslensku trén að keppa við það. „Aðaljólatréð er stafafura, vegna barrheldni og kannski líka vegna verðs og aðgengileika,“ segir Hreinn og heldur áfram: „Rauðgrenið er þekkt fyrir að fella barrið nokkuð fljótt og fjallaþinurinn er dýr. Blágrenið var dálítið notað en það voru vandræði með vax tarlag og svo vorum við að fá svepp í barrið seint á haustin. Íslenski fjallaþinurinn er líklega flottasta jólatréð en lítið er höggvið af honum, aðallega vegna þess hversu lítið kemur af slíkum trjám úr reitunum.“ Hreinn tekur sem dæmi að sé plantað tíu þúsund plöntum á ha komi úr því eitt þúsund jólatré. Íslensku jólatrén eru sums staðar tekin úr sérstökum uppeldissvæðum en annars staðar úr skógræktarreitum og hentar það ágætlega sem fyrsta grisjun. Ræktendur höggva þannig víða tré úr uppvaxa ndi ungskógum og færa á markað. G reinar v æ ru góð au kabú gr ein P lantað er á móti öllum höggnum íslenskum jólatrjám og ríflega það, því að á milli sex og sjö milljónir trjáplantna eru gróðursettar árlega en þó aðeins brotabrot af því í jólatrjáareiti. Kolefnisspor innlendu jólatrjánna er þannig hverfandi miðað við hin innfluttu, sem og plastjólatrjáa. „Það sem vantar, og væri hægt að útvega miklu meira af, eru jólagreinar,“ segir Hreinn. „Við höfum aðeins verið að reyna að koma markaðnum í gang með að kaupa íslenskar greinar, og það gekk þokkalega í nokkur ár, en svo hefur áhuginn eitthvað dofnað aftur hjá kaupendum. Í það minnsta er hægt að útvega greinar af þin sem líkjast þessum innfluttu, sem og af blágreni og stafafuru. Stóri sigurinn væri ef við gætum farið að taka einhvern hluta af innflutningi á greinum. Það væri fín aukabúgrein fyrir bændur, sem dæmi,“ segir Hreinn. /s á B ændab laðið ó skar lesendum sí num um land allt gleðilegra jó la og farsældar á komandi ári. Jó lab laðið að þessu sinni er 9 6 sí ður, up p fullar af fré ttum, fró ðleik og skemmtiefni. T eik ning / H lynu r G au t i S ig u rðsson G ræ nlensk fj ö lsk yld a t ek ur v ið sauð fj á rb ú i 22 V ilj a ræ k t a næ m og lé t t st í g h ross 32 G æ k j ö k dG æ k j ö k d t k v ð ð j á b út k v ð ð j á b ú 48 F lugv é lar, orgel og h and v erk K ak ó b aunaraunir 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.