Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
FRÉTTIR
Gæði fyrir dýrin og þig!
FB Reykjavík
Korngarðar 12
570 9800
FB Selfoss
Austurvegur 64 a
570 9840
FB Hvolsvöllur
Duftþaksbraut 1
570 9850
www.fodur.is
fodur@fodur.is
U m 2 0 p rósent fleiri sauðfj ár-
bæ ndur höfðu skráð ullina
sína inn á B æ ndatorgið núna
í byrj un desember en á sama
tíma í fyrra, að sögn S igurðar
S æ vars G unnarssonar, fram-
kvæ mdastj óra Í S T E X .
„Þetta eru góðar fréttir og við
ítrekum til ullarinnleggjenda að
skrá ullina sína sem allra fyrst. Ef
ull er skráð fyrir 1. febrúar greiðum
við fyrir hana í lok maí eða byrjun
júní. Ö nnur ull sem er skráð síðar
greiðum við í lok ágúst eða byrjun
september,“ segir Sigurður.
G agn legar skr áðar uppl ý singar
„Við notum þessar upplýsingar um
skráningu ullar mikið, til dæmis til
að láta ullarsöfnunaraðila vita hversu
mikil ull er á hverju svæði svo þeir
geti skipulagt sig sem allra best.
Sums staðar er sá misskilningur
í gangi að skrá eigi ullina þegar hún
er sótt. Best er að skrá hana strax
eftir rúning. Ef það gleymist að
skrá flækir það ansi mikið fyrir alla
aðila og getur tafið bæði greiðslur og
verk. Í lok sumars eru oft í kringum
50 aðilar sem við þurfum að hafa
upp á. Hins vegar eru langflestir
bændur mjög góðir í að skrá rétt og
tímanlega og sér í lagi í ár,“ heldur
Sigurður áfram.
„U llarárið byrjar ágætlega
og ullin er góð frá þeim svæðum
sem ull hefur borist af, það er
Húnavatnssýslum, Skagafirði,
Dölunum, Skaftafellssýslum,
Ströndunum og Vestfjörðum.
Það er smá pirrandi að vera
ekki alveg komin með fullan
framleiðslukraft á Blönduósi og við
krossleggjum fingur að ekkert komi
fyrir sem gæti tafið vinnsluna.“
U llarmat.i s v insæ l
síða í ú tlöndum
Í maí hækkaði ullarverð til bænda
í öllum vinnsluhæfum flokkum í
gildandi verðskrám ÍST EX um 48
prósent að meðaltali á milli ullarára.
Þá hefur ÍST EX nýlega staðið fyrir
tveimur námskeiðum í rúningi og
ullarflokkun í því skyni að hámarka
gæði ullarinnar og frágangsins.
Spurður um hvort þetta hafi leitt til
betri flokkunar og frágangs á ull,
segir Sigurður að flestir bændur skili
ullinni alltaf frá sér vel flokkaðri og
merktri og eiga allar þakkir skildar
fyrir það.
„U llarmat.is er nokkuð vinsæl
síða á haustin. Það er greinilegt að
margir nota hana sér til upplýsinga,
þá sér í lagi á undirsíður um
ullarflokkana og töfluna „Flokkar
og gallar“. Þá eru myndböndin
alltaf nokkuð skoðuð. Y fir árið er
U llarmat.is hins vegar um fjórfalt
vinsælli í öðrum löndum en Íslandi,
þrátt fyrir að vefurinn sé aðeins á
íslensku.“ / s m h
Ístex:
Gæðaull úr haustrúningi
Sigurð ur Sæ v ar G unnarsson.
Noregur:
Tollvernd á kartöflur efld
Í ný samþ ykktu fj árlagafrumvarp i
hafa N orðmenn breytt frá föstu
innflutningsgj aldi fyrir hvert kíló
kartaflna.
Með því að láta tollinn miðast
við ákveðið prósentuhlutfall af verði
vörunnar vonast stjórnvöld til að
styrkja stoðir innlendrar framleiðslu.
Bjø rn G imming, formaður norsku
bændasamtakanna, fagnar þessum
breytingum. Þá er jafnframt
búið að breyta tollaumhverfi á
landbúnaðarafurðum eins og
íssalati, gulrófum, rauðrófum
og sellerí. Í viðtali á heimasíðu
norsku bændasamtakanna leggur
G imming sérstaka áherslu á að
þetta sé aðeins fyrsta skrefið, því
að breyta þurfi tollavernd á fleiri
vörum til að tryggja áframhaldandi
norska matvælaframleiðslu og auka
sjálfsaflahlutdeild landsins.
G agnrýnendur hafa spáð því að
smásöluverð á kartöflum geti hækkað
um helming, eða úr 257 íslenskum
krónum upp í 515. G eir P ollestad
landbúnaðarráðherra segir í frétt á
heimasíðu NRK að þetta muni ekki
gerast, því annars vegar hafi verið
settur fram ákveðinn varnagli sem
verði til þess að tollurinn falli niður
ef meðalverðið fer upp fyrir ákveðið
viðmiðunarverð.
Þá eru kartöflur hins vegar í
samkeppni við önnur matvæli
eins og hrísgrjón og pasta sem
veiti kartöflubændum aðhald í
verðlagningu. / Á L
Rekstrarvandi í landbúnaði:
Stuðningur við fjölskyldu-
bú í fjárhagserfiðleikum
Í nefndaráliti fj árlaganefndar
Alþ ingis frá 1 1 . desember um
frumvarp til fj áraukalaga er lagt
til að heildarstuðningur til bæ nda
vegna fj árhagserfiðleika verði 2 ,1
millj arður króna.
Þann 5. desember skilaði hópur
ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytis,
fjármála- og efnahagsráðuneytis
og innviðaráðuneytis tillögum um
slíkan stuðning að heildarupphæð
1,6 milljarða króna vegna núverandi
efnahagsástands.
Þær 500 milljónir sem bætast við
er ætlað að koma til móts við erfiða
stöðu í mjólkurframleiðslu og er
bætt við greiðslur vegna innveginnar
mjólkur kúabænda fyrstu ellefu
mánaða yfirstandandi árs og
eingöngu til þeirra sem skiluðu inn
mjólk í nóvember síðastliðnum.
Þannig verði komið til móts við
hallarekstur kúabænda á árinu.
G ert er ráð fyrir að stuðnings-
greiðslurnar verði greiddar út fyrir
árslok þessa árs.
Stuðningu r v ið fjölsky ldubú
Í tilkynningu úr matvæla-
ráðuneytinu, þar sem greint er
frá tillögunum, kemur fram að
áhersla sé á að stuðla að nýliðun og
kynslóðaskiptum í greininni með
aðstoð við yngri bændur. Jafnframt
sé lögð áhersla á að stuðningskerfi
styðji við atvinnugreinina með
skilvirkum hætti í samræmi við
áherslur stjórnvalda og gagnist þeim
fjölskyldubúum sem eiga í hvað
mestum vanda til skemmri tíma litið
vegna hækkaðs fjármagnskostnaðar
og langvarandi afkomubrests.
Samtals renna 600 milljónir
króna til ungra bænda í formi
álags á fjárfestingar í samþykktum
umsóknum um nýliðunarstuðning á
árunum 2017–2023.
Viðbótarfjárfestingarstuðningur
að upphæð 450 milljónir verður
greiddur sem álag á fjárfestingu
í samþykktum umsóknum um
fjárfestingarstuðning í sauðfjárrækt
og nautgriparækt á árunum 2017–
2023. Hann skiptist þannig að 38 6
milljónir fara til nautgriparæktar og
64 milljónir til sauðfjárræktar.
Sauðfjárbændur fá viðbótar-
býlisstuðning, en 450 milljónir
verða greiddar til þeirra sem stunda
sauðfjárrækt að meginatvinnu og
eru með 300 vetrarfóðraðar kindur
eða fleiri.
Einnig er í tillögunum gert ráð
fyrir viðbótargripagreiðslum, sam-
tals að upphæð 100 milljónir, fyrir
ræktun á holdakúm til þeirra bænda
sem fengu slíkar gripagreiðslur á
þessu ári.
Á h y ggj ur af þv í að
aðge rðirnar dugi skam mt
Bændasamtök Íslands brugðust við
tillögunum á vef sínum, þar sem
fram kemur að merkum áfanga sé
náð í kjarabaráttu bænda. G reiningu
ráðuneytanna er fagnað og er hún
talin vera í öllum meginatriðum sú
sama og Bændasamtökin hafi haldið
fram um langt skeið. Sameiginlegur
skilningur muni án vafa hjálpa til við
næstu skref í samtalinu.
„Þó þær aðgerðir sem ríkisstjórn
boðaði í morgun muni hafa jákvæð
áhrif fyrir þá hópa sem þær ná til,
hafa samtökin áhyggjur af því að
þær dugi skammt. Þá eru stórir
hópar bænda sem ekki njóta þessara
aðgerða og eru það bæði vonbrigði
og mikið áhyggjuefni. Verður að
velta því upp hvort skynsamlegt
hefði verið fyrir stjórnvöld að eiga
þetta samtal við Bændasamtökin,
sem fara með fyrirsvar fyrir
bændur lögum samkvæmt. Margir
bændur eru til að mynda skuldsettir
vegna fjárfestinga sem tengjast
hagræðingu sem stjórnvöld hafa
krafist, bæði á grundvelli lægri
framlaga til búvörusamninga og á
grundvelli lögbundinna kvaða.
Rétt er að líta fram á veginn.
Niðurstöður ráðuneytisstjórahópsins
ríma við greiningar Bænda-
samtakanna og er því kominn góður
grunnur að samtali við stjórnvöld
um endurskoðun búvörusamninga.
Bændur treysta því að þeirri
vinnu verði fram haldið strax í
næstu viku enda ljóst að bændur
eru með miklar væntingar til
viðbótaraðgerða á stærri skala með
endurskoðun samninganna,“ segir á
vef samtakanna.
T ol lv erndin þar f
að h alda gi ldi sínu
G unnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir
að tillögurnar séu að hans mati
viðurkenning á alvarlegri stöðu
bænda, ekki bara ungra bænda
heldur heilt yfir afkomunni.
Hann segir einnig brýnt að
stjórnvöld hugi að því að tollverndin
haldi gildi sínu með endurskoðun
á krónutolli landbúnaðarvara, sem
hafi verið óbreyttur í meira en 23
ár og sé ekki nema um 29 prósent
af upphaflegu verðgildi.
Stjórnv öld v ilja eingön gu sty ðja
v ið kú a- og s auðfjárbú skap
I ngvi Stefánsson, formaður bú-
greinadeildar svínabænda hjá
Bændasamtökum Íslands, segir
í aðsendri grein hér í blaðinu að
honum sé algjörlega óskiljanlegt
hvernig hægt sé að fjalla um
stöðu íslensks landbúnaðar út frá
svona þröngu sjónarhorni, eins og
birtist í greinargerð starfshópsins
með tillögunum. „Það er nú einu
sinni þannig að hvíti geirinn
( kjúklingur og svín) er með um
57% markaðshlutdeild á seldu kjöti
innanlands síðustu 12 mánuði skv.
mælaborði landbúnaðarins,“ segir
I ngvi.
Margt komi til sem skert hafi
afkomu bænda síðustu misserin
en stóra kýlið sé tollverndin, sem
enginn virðist þora að stinga á,
en hún virki í dag mjög illa og sé
stöðugt að rýrna að verðgildi. Hann
segir að til að bregðast við harðnandi
samkeppni við innflutning hafi
búum „hvíta geirans“ fækkað
og einingar stækkað. Því séu
þeir sem starfa í þeim geira ekki
taldir vera bændur lengur, að mati
sjálfskipaðra sérfræðinga, heldur
verksmiðjuframleiðendur.
Stjórnvöld vilji eingöngu
styðja við hefðbundinn kúa- og
sauðfjárbúskap en sé nokk sama um
„hvíta geirann“. Þannig séu gerðir
búvörusamningar sem gangi út á
að styrkja „hefðbundnu“ greinarnar.
Á sama tíma sé slakað á toll-
verndinni af því hvíti geirinn megi
missa sín.
I ngvi spyr að lokum hvort ekki
sé kominn tími til að ráðast að rót
vandans. / s m h
I ngv i St efá nsson. Mynd / H K r.
G ert er rá ð fyrir að st uð ningsgreið slurnar gagnist þ eim fj ö lsk yld ub ú um sem eiga í h v að m est um v and a t il sk em m ri
t í m a lit ið v egna h æ k k að s fj á rm agnsk ost nað ar og langv arand i afk om ub rest s. Mynd / B b l