Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 70
70 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Þ átttaka í lambadómum var góð
í haust og j ókst talsvert á milli
ára. S kráðir hafa verið dómar
á 57.588 lömb í F j árvís.is, sem er
fj ölgun um rúmlega 4 .0 0 0 lömb
frá fyrra ári.
Aukin þátt-
taka skýrist
líklega aðallega
af tvennu.
Annars vegar
því að lömbin
voru með vænsta
móti í haust
og því mikið
af álitlegum
lömbum til að skoða. Hins vegar er
ljóst að sú bylting sem er hafin tengd
ræktun gegn riðu hefur ákveðin
örvandi áhrif á kynbótastarfið.
Skoðaðir voru rúmlega 11.800
lambhrútar. Þeir mældust að
jafnaði með þykkari bakvöðva en
áður hefur mælst, eða 3 1,6 mm.
Í hópnum voru 70 hrútlömb sem
mældust með bakvöðva á bilinu
40 til 44 mm. Þykkustu vöðvarnir
í haust mældust í gimbrum en þær
voru með 45 mm vöðva. Ö nnur frá
Sölvabakka í Refasveit og hin frá
Bæ 1 í Hrútafirði. Lömbin reyndust
heldur feitari en áður og mældist
bakfita í hrútum 3,4 mm að jafnaði.
Að meðaltali hlutu hrútarnir 84,9 stig
og vógu 48,1 kg. T il samanburðar þá
var meðal lambhrúturinn með 85 stig
haustið 2022, vó 47,7 kg og mældist
með 31 m m þykkan vöðva.
Það að lömbin væru holdmeiri
en áður endurspeglaðist í góðri gerð
sláturlamba, en samkvæmt tölum
frá MAST þá var gerðareinkunnin
í haust sú hæsta sem verið hefur,
eða 9,58, og fallþungi sláturlamba
hefur aðeins einu sinni verið meiri
á landinu. Var nú 17,2 kg en hæst
hefur landsvigtin farið í 17,4 kg sem
var árið 2021.
H æ stu hrú tar
Þrír lambhrútar hlutu 92 stig í
haust, en enginn hrútur fór svo hátt
á síðasta ári. Sá hrútur sem raðast
efst yfir landið er Arnold 23 -3 3 2
frá Ketilsstöðum á T jörnesi. Hann
er svarflekkóttur að lit en trúlega
hefur flekkóttur hrútur ekki áður
staðið hrúta fremstur á landsvísu.
Faðir hans, T indastóll 21-123 , er frá
Syðri-Sandhólum og er sonur G litnis
19-848 frá Efri-Fitjum og MMF er
Lási 13 -985 frá Leifsstöðum. Annar
raðast hrútur nr. 230 frá Laxá rdal í
Hrútafirði. Hann er undan Hnaus
20-890 frá Mýrum 2 og er MFF
hans Dreki 13 -953 frá Hriflu. Þriðji
í röðinni er síðan kollóttur hrútur
frá Efri-Fitjum í Fitjárdal, lamb nr.
8. Sá er sonur G læsis 19-887 frá
Litlu-Ávík og MFF Dúlli 17-813
frá Miðdalsgröf.
Í meðfylgjandi töflu er listi yfir
hæststiguðu lambhrúta landsins,
raðað eftir sýslum. Séu hrútar jafnir
að heildarstigum er þeim raðað
eftir samanlögðum stigum fyrir
gerðarþætti ( frampart, bak, malir og
læri) , þá eftir bakvöðvaþykkt, síðan
fituþykkt og ef einhverjir standa enn
jafnir ræður lögun vöðvans röð.
B reyting á dóm stiga
– h vaða áh rif hafði hú n?
T vær breytingar voru gerðar á
dómstiganum á þessu ári og því
var áhugavert að sjá hvaða áhrif
það hefði á útkomu dóma í haust.
Í fyrsta lagi voru kröfur auknar
um bakvöðvaþykkt um 2 mm fyrir
hverja einkunn sem gefin er fyrir bak
lambhrúta. Fyrir hæstu einkunnir var
krafan aukin um lágmarks fituþykkt
og mörk fyrir hámarksfitu rýmkuð.
Nú er því krafan fyrir bakeinkunn
upp á 10 ( miðað við 45 kg hrútlamb)
að bakvöðvinn nái 40 mm þykkt
og að fituþykktin sé á bilinu 2 til 4
mm. Áður voru lágmarkskröfur fyrir
einkunnina 10 að bakvöðvaþykkt
væri 3 8 mm og að fitan væri á bilinu
1,5 til 3,0 mm. Þar sem bakvöðvi
var almennt meiri en nokkru sinni
áður í haust, olli breytingin ekki
mikilli lækkun en meðaleinkunn
fyrir bak lækkar um 0,14 stig milli
ára. Dreifni einkunna var hins vegar
betri. Ef ekki hefði verið búið að
herða á skalanum hefðu um 190
hrútar hlotið 10 fyrir bak í haust en
raunin varð að þeir voru 67.
Hin breytingin á dómstiganum
tengist ullardómum. Nú er allt
vægi einkunnarinnar sett á gæði og
ullarmagn en eldveggir í skalanum
gagnvart því hvernig kindin er á
litinn voru teknir út. Þessi breyting
skilaði meiri dreifni í einkunnagjöf
fyrir ull. Í heildina hækkar
meðaleinkunn hjá hrútum fyrir ull
um 0,13 stig á milli ára. Væntingar
standa til þess að breytingin skili
betra mati á gæði ullar en ljóst
er að áfram verður verkefnið að
samræma vinnubrögð við dóma
og auka færni í því að ná sem best
utan um þennan eiginleika.
Frábæ r ú tkoma AR R hrú tanna
Það sem var kannski hvað mest
spennandi í haust var hver útkoman
yrði á lömbum undan þessum fyrstu
hrútum stöðvanna sem valdir voru
til að dreifa verndandi arfgerðum
gegn riðuveiki í sauðfjárstofninn.
Skemmst er frá því að segja að
útkoman var ákaflega góð. Þetta
voru einfaldlega oftar en ekki bestu
lömbin sem bændur áttu í haust.
Sérstaklega hvað varðar ARR
hrútana og má með sanni segja að
víða hafi glampað á gullmola og
gimsteina í lambahópum bænda.
G ullmoli náði þeim frækna
árangri að eiga hæststigaða
lambhrútahópinn ásamt G læsi frá
Litlu-Ávík. Synir þessara hrúta
voru með 85,8 stig að jafnaði.
Styrkur G ullmola lá sérstaklega
í öflugum læraholdum. Synir
hans hlutu 18,2 stig að meðaltali
sem var hæsta meðaleinkunn
sona stöðvahrútanna í haust. Þá
var einkennandi hve þroskamikil
afkvæmi Þernuneshrútanna voru.
T il marks um það, að þá stendur nú
G ullmoli þriðji efstur allra reyndra
stöðvahrúta lifandi og dauðra í
kynbótamati fyrir „fallþunga – bein
áhrif“ með 125 stig og G imsteinn
sjötti með 123 stig. G imsteinn var
sá hrútur stöðvanna sem átti flesta
skoðaða syni, eða rúmlega 3 90. Á
meðfylgjandi lista yfir hæstu hrúta
hverrar sýslu eiga þeir G ullmoli og
G imsteinn samtals 6 lambhrúta.
Af öðrum stöðvahrútum sem létu
verulega að sér kveða sem feður
úrvalshrúta í haust má nefna Fróða
18-880 frá Bjargi en hann á flesta
hrúta á topplistanum, eða 6 alls.
Rammi 18-83 4 hélt uppteknum
hætti og er áfram sá hrútur sem
skilar þykkasta bakvöðvanum.
Því er ekki að undra að hann
stendur efstur í kynbótamati fyrir
bakvöðvaþykkt með 143 stig.
Sævar 21-897 frá Y tri-Skógum
kemur svo á hæla honum með
næstþykkasta vöðvann og þriðja
hæsta meðaltalið fyrir stig alls.
Af hrútum með mögulega
verndandi arfgerðir má nefna góða
útkomu hjá Hnaus 20-890, sem á
næstflesta syni á topplistanum, eða
fjóra. Hnaus skilur því vonandi
eftir sig öfluga syni sem dreift
geta AHQ genasamsætunni. Þá var
prýðileg útkoma hjá Austra 20-892
frá Stóru-Hámundarstöðum, en hann
átti úrvals gripi í bland en Austri
var fyrsti hrúturinn sem fannst með
breytileikann T 13 7.
Að lokum
Það eru spennandi tímar í
sauðfjárræktinni. Nýr eiginleiki
hefur verið settur á oddinn í
kynbótastarfinu, sem er þol gegn
riðu. Ó hætt er að segja að innleiðingin
hafi fengið fljúgandi start. Það vekur
vonir um að glatt muni ganga að koma
arfgerðunum inn í stofninn. Vel lítur
út með þátttöku í sæðingum í vetur
en útlit er fyrir frábæra notkun á ARR
hrútunum og sumum af þeim sem
bera mögulega verndandi arfgerðir.
Hversu vel þetta fer af stað er ýmsu
að þakka en ekki síst bændum, hve
jákvæðir þeir eru fyrir verkefninu.
Það birtist m.a. í því hve auðfúsir þeir
voru að láta stöðvunum í té álitlega
ræktunargripi í haust.
Má því segja að útkoman og staðan
eftir haustið gefi tilefni til bjartsýni á
verkefnið sem er fram undan – sem
er að halda áfram fulla ferð að bæta
kosti sauðkindarinnar samhliða því
að gera hana þolna gegn riðuveiki.
G leðileg jól.
E yþór E inarsson,
ráðunautur á
búfjárræktar- og þjónustusviði.
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Gullbringu- og Kjósarsýsla
1 Miðdalur L117 22-012 Ægir 56,0 34,0 5,4 4,5 110,0 8,0 9,5 9,0 9,0 9,0 19,0 8,5 8,0 8,5 88,5
2 Miðdalur 23-013 Örn 21-004 Hallmundur 53,0 34,0 4,2 4,0 113,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 18,5 9,0 8,0 8,5 88,5
3 Kiðafell L84 19-001 Arður 65,0 34,0 6 4,0 111,0 8,0 9,0 9,5 9,0 9,0 18,0 9,0 8,0 9,0 88,5
4 Kiðafell L5 20-890 Hnaus 66,0 37,0 5,2 4,5 112,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,0 18,0 8,0 8,0 9,0 88,0
5 Kiðafell 23-001 19-001 Arður 61,0 36,0 5,7 4,0 110,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 18,5 8,5 8,0 8,5 88,0
Borgarfjarðarsýsla
1 Kópareykir L31 22-157 Stafur 59,0 37,0 5,4 4,5 109,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 90,0
2 Hægindi 23-108 Bursti 19-889 Kústur 56,0 34,0 4 5,0 111,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
3 Skarð 1 23-164 Bakki 20-891 Jaður 52,0 35,0 4 5,0 112,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
4 Múlakot 23-002 Tígull 22-433 Spaði 48,0 33,0 3,2 4,0 107,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 89,0
5 Oddsstaðir 1 23-147 Bjálki 21-151 Haki 50,0 35,0 1,9 5,0 110,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 8,5 8,0 9,0 89,0
Mýrasýsla
1 Hundastapi 23-654 Stapi 21-125 Demantur 57,0 41,0 4,5 4,5 111,0 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 19,0 8,5 7,0 8,5 89,5
2 Stafholtsveggir 23-044 Blíðfinnur 21-130 Múli 59,0 44,0 4,6 5,0 112,0 8,0 9,5 9,0 10,0 9,5 19,0 7,5 8,0 9,0 89,5
3 Staðarhraun 23-660 20-877 Grettir 59,0 41,0 4,1 5,0 110,0 8,0 9,0 9,5 10,0 9,0 19,0 8,5 8,0 8,5 89,5
4 Fúsavatn 23-006 Þræll 19-109 Elfur 56,0 38,0 3,3 5,0 108,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,0
5 Staðarhraun 23-664 20-877 Grettir 58,0 41,0 3 5,0 114,0 8,0 9,5 9,5 10,0 9,0 18,5 8,0 8,0 8,0 88,5
Snæfells- og Hnappadalssýsla
1 Máfahlíð 23-001 Svali 22-005 Klaki 55,0 37,0 2,5 5,0 109,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 9,0 8,0 9,0 91,5
2 Hraunháls 23-448 22-443 Selflói 48,0 39,0 5,4 4,5 108,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 20,0 8,0 8,0 8,0 90,0
3 Hjarðarfell 2 23-743 20-890 Hnaus 61,0 42,0 5 5,0 113,0 8,0 9,0 9,5 10,0 10,0 19,0 7,5 8,0 9,0 90,0
4 Máfahlíð 23-333 Kvár 21-001 Bassi 53,0 38,0 3,2 4,5 112,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 90,0
5 Sandholt 17 23-638 Örvar 21-637 Friskó 52,0 33,0 4,5 4,5 112,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
Dalasýsla
1 Svalbarð 23-654 Sigmar 18-083 50,0 36,0 4,1 4,5 108,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 90,0
2 Klifmýri 23-423 21-497 Snagi 57,0 36,0 5,5 4,5 109,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 88,5
3 Hlíð 23-307 Hroki 19-874 Hnokki 43,0 34,0 3,6 4,0 107,0 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 19,0 8,0 8,0 8,5 88,5
4 Sælingsdalstunga 23-798 Kóngur 19-885 Alli 63,0 36,0 3,4 4,5 110,0 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 18,5 8,0 8,0 9,0 88,5
5 Hlíð 23-308 Póstur 21-671 Sendill 52,0 35,0 3,6 4,5 108,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 88,5
Barðastrandarsýslur
1 Innri-Múli L60 17-852 Bikar 52,0 31,0 4,8 4,5 111,0 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 89,5
2 Árbær 23-048 21-038 Sónn 54,0 35,0 3 4,5 108,0 7,5 8,5 9,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 89,0
3 Árbær 23-917 Kristall 21-899 Gimsteinn 61,0 36,0 4,7 4,5 112,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 18,5 9,0 8,0 9,0 89,0
4 Árbær 23-279 21-040 Hnokki 58,0 35,0 5,2 4,5 109,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,0 9,0 8,0 9,0 89,0
5 Bakki 23-001 19-010 Bor 45,0 34,0 2,4 4,5 113,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 18,5 9,5 8,0 8,5 89,0
Ísafjarðarsýslur
1 Minni-Hlíð 23-202 Tóbías 22-218 Kaspían 55,0 37,0 4,5 5,0 109,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 8,0 88,5
2 Ketilseyri 23-060 Tolli 17-872 Suddi 52,0 34,0 2 4,5 110,0 8,0 9,5 9,5 9,0 9,5 18,5 8,0 8,0 8,5 88,5
3 Ketilseyri 23-058 Erró 21-896 Þór 53,0 34,0 3,5 5,0 106,0 8,0 9,0 9,5 9,0 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 88,0
4 Kirkjuból 1 og 2 23-404 22-401 Úði 49,0 34,0 5,3 4,0 106,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 18,5 8,0 8,0 8,5 87,5
5 Minni-Hlíð 23-225 Legolas 21-208 Stígur 58,0 35,0 4,8 4,5 109,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 18,5 8,5 8,0 8,5 87,5
Strandasýsla
1 Laxárdalur 3 L230 20-890 Hnaus 54,0 40,0 2,4 5,0 107,0 8,0 9,5 9,0 10,0 10,0 19,5 8,5 8,0 9,5 92,0
2 Árnes 2 23-169 Ingo 18-263 Nasi 48,0 35,0 4,6 4,5 103,0 8,0 9,5 9,0 9,0 10,0 19,5 9,0 8,0 9,0 91,0
3 Árnes 2 23-364 Loki 21-314 Kjói 50,0 34,0 5,9 5,0 104,0 8,0 9,5 9,0 9,0 9,5 19,5 9,0 8,0 9,5 91,0
4 Heydalsá 1 og 3 23-104 Garri 21-899 Gimsteinn 61,0 36,0 4,5 4,5 108,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,5 90,5
5 Smáhamrar 2 23-230 20-324 Páll 58,0 41,0 2,5 4,5 110,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 90,0
Vestur-Húnavatnssýsla
1 Efri-Fitjar L8 19-887 Glæsir 63,0 36,0 5,5 5,0 111,0 8,0 9,5 10,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,5 92,0
2 Efri-Fitjar 23-664 Magni 19-883 Kraftur 61,0 41,0 6,3 5,0 107,0 8,0 9,5 9,5 10,0 10,0 19,0 8,0 8,0 9,5 91,5
3 Efri-Fitjar 23-679 Gaukur 20-674 Haukur 58,0 37,0 3,5 4,5 110,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 8,5 8,0 9,5 91,5
4 Grænihvammur 23-284 18-880 Fróði 56,0 36,0 2,5 4,0 110,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,5 90,5
5 Bergsstaðir 23-167 18-880 Fróði 59,0 39,0 4 4,5 108,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 18,5 9,0 8,0 9,5 90,5
Austur-Húnavatnssýsla
1 Hólabær 23-104 Bestur 20-892 Austri 58,0 39,0 5 5,0 110,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,5
2 Hof 23-924 Atlas 22-902 Gullmoli 66,0 38,0 3,5 4,5 110,0 7,5 9,5 9,5 9,5 9,0 18,5 9,0 8,0 9,0 89,5
3 Stekkjardalur 23-681 20-893 Kalli 55,0 36,0 2,9 4,0 110,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,5
4 Leifsstaðir 1 23-312 Jenni 20-877 Grettir 55,0 36,0 3,6 5,0 103,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,0 19,0 8,5 8,0 9,0 89,5
5 Sölvabakki 23-084 20-891 Jaður 56,0 37,0 3,8 5,0 108,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,0 19,0 8,0 8,0 9,0 89,0
Skagafjarðarsýsla
1 Skúfsstaðir 23-426 22-426 Askur 63,0 44,0 4,6 5,0 107,0 8,0 9,5 9,5 10,0 9,0 19,0 8,5 8,0 9,5 91,0
2 Ríp 1 L3613 21-899 Gimsteinn 60,0 39,0 4,2 4,5 108,0 7,5 9,5 9,5 9,5 9,0 18,5 9,0 8,0 9,5 90,0
3 Tunga L51 18-880 Fróði 54,0 38,0 4,4 5,0 110,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,0 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
4 Ríp 1 L3101 54,0 43,0 5,1 4,5 112,0 7,5 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 89,5
5 Ríp 1 L3691 22-249 Kantur 61,0 42,0 4 4,5 110,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
Eyjafjarðarsýsla
1 Göngustaðir 23-565 Sigursteinn 22-902 Gullmoli 61,0 40,0 5,3 4,5 110,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,0 19,5 8,5 8,0 9,0 90,5
2 Göngustaðir 23-563 Seifur 22-902 Gullmoli 54,0 37,0 2,7 4,5 109,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
3 Hrafnagil L552 19-885 Alli 53,0 36,0 4,1 4,5 110,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
4 Torfufell 23-486 Styrkur 19-883 Kraftur 58,0 39,0 4,4 4,5 109,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,0 19,5 8,0 8,0 9,0 89,5
5 Staðarbakki 23-230 Ás 18-880 Fróði 52,0 37,0 3,8 5,0 107,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 18,5 9,0 8,0 8,5 89,5
Suður-Þingeyjarsýsla
1 Ketilsstaðir 23-332 Arnold 21-123 Tindastóll 57,0 42,0 4,5 5,0 112,0 8,0 9,5 10,0 10,0 9,5 19,5 8,5 8,0 9,0 92,0
2 Hrifla 23-072 Rokkur 21-898 Strokkur 47,0 40,0 3,2 5,0 111,0 8,0 9,0 9,5 10,0 10,0 19,5 8,0 8,0 8,5 90,5
3 Hrifla 23-071 20-875 Galli 49,0 41,0 3,5 5,0 108,0 8,0 9,5 9,0 10,0 9,5 19,5 8,0 8,0 8,5 90,0
4 Hrifla 23-065 Myrkvi 19-069 Krókur 54,0 38,0 3,7 5,0 109,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 8,5 90,0
5 Hvoll 23-110 Heikir 21-109 Þengill 52,0 37,0 6,2 4,5 111,0 8,0 9,5 9,5 9,0 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 90,0
Norður-Þingeyjarsýsla
1 Sveinungsvík 1 23-208 22-208 Dakíri 51,0 42,0 3,6 5,0 110,0 8,0 9,5 9,0 10,0 10,0 19,5 8,5 8,0 9,0 91,5
2 Sveinungsvík 1 23-205 22-201 Fleygur 50,0 39,0 3,3 5,0 112,0 8,0 10,0 9,0 10,0 9,5 19,0 8,5 8,0 8,5 90,5
3 Sveinungsvík 1 23-206 22-210 Farmur 45,0 38,0 4 5,0 109,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 90,0
4 Sveinungsvík 1 20-875 Galli 50,0 41,0 3,6 5,0 110,0 8,0 8,5 9,0 10,0 9,5 19,5 9,0 7,5 9,0 90,0
5 Hagaland 23-150 Hnöttur 22-154 Ýdi 47,0 37,0 2,8 5,0 105,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 8,5 89,5
Norður-Múlasýsla
1 Rauðholt 19-464 Kuti 52,0 36,0 3 5,0 103,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,0
2 Melar 23-115 Fantur 22-117 Björn 53,0 36,0 4,2 4,5 104,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,0 18,5 8,5 8,0 9,0 89,0
3 Melar 23-112 Hljómur 18-855 Tónn 48,0 38,0 2,6 5,0 105,0 8,0 9,0 9,0 10,0 9,0 18,0 9,0 8,0 9,0 89,0
4 Valþjófsstaður 2 23-070 21-174 Hampur 47,0 37,0 4,1 4,0 107,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,0 9,0 8,0 9,0 89,0
5 Klaustursel 23-483 18-880 Fróði 52,0 36,0 4,2 4,5 109,0 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 18,5 9,0 8,0 9,0 89,0
Suður-Múlasýsla
1 Slétta 23-532 19-887 Glæsir 51,0 37,0 3,5 5,0 104,0 7,5 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 89,5
2 Hjartarstaðir 1 22-002 Svörður 49,0 40,0 2,8 5,0 106,0 8,0 9,5 9,0 10,0 9,0 18,5 8,5 8,0 9,0 89,5
3 Hjartarstaðir 1 22-002 Svörður 44,0 36,0 1,8 5,0 105,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 18,0 9,0 8,0 9,0 89,5
4 Lundur 19-887 Glæsir 52,0 35,0 2,6 5,0 107,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 18,5 9,0 8,0 9,0 89,5
5 Gilsárteigur 2 23-061 Vökull 20-890 Hnaus 58,0 37,0 4,6 5,0 106,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,0
Austur-Skaftafellssýsla
1 Breiðabólsst 2 Gerð 18-834 Rammi 62,0 41,0 3,9 5,0 111,0 8,0 9,0 9,0 10,0 9,0 18,5 8,0 8,0 8,5 88,0
2 Ártún 23-613 21-897 Sævar 67,0 39,0 3,6 5,0 110,0 8,0 9,0 9,0 10,0 9,0 18,0 8,5 8,0 8,5 88,0
3 Hvammur 23-490 20-875 Galli 53,0 36,0 3,1 5,0 105,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 18,5 8,5 8,0 8,5 88,0
4 Akurnes 21-453 Askur 49,0 37,0 3,4 5,0 106,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 8,0 8,0 8,0 87,5
5 Hestgerði 23-033 Kólus 16-824 Breki 50,0 36,0 2,7 4,5 109,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 7,5 8,0 8,5 87,5
Vestur-Skaftafellssýsla
1 Úthlíð 23-574 17-852 Bikar 54,0 40,0 3,3 5,0 110,0 8,0 9,0 9,0 10,0 9,5 19,0 8,0 8,0 8,5 89,0
2 Holt 2 23-585 19-559 Þristur 49,0 37,0 3,3 4,0 111,0 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,0
3 Borgarfell 1 og 3 21-897 Sævar 53,0 42,0 3,3 5,0 108,0 8,0 9,0 9,0 10,0 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 88,5
4 Borgarfell 1 og 3 20-604 Sveinn 55,0 39,0 3,3 5,0 114,0 8,0 9,0 9,0 10,0 9,5 18,5 8,0 8,0 8,5 88,5
5 Holt 2 23-586 19-559 Þristur 60,0 35,0 6,4 4,0 114,0 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 19,0 7,5 8,0 9,0 88,5
Rangárvallasýsla
1 Teigur 1 22-301 Bekkur 56,0 39,0 3,5 5,0 108,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 90,5
2 Teigur 1 21-898 Strokkur 54,0 41,0 3,7 5,0 107,0 8,0 9,0 9,5 10,0 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 90,5
3 Syðri-Úlfsstaðir 23-030 21-160 Múfasa 43,0 36,0 4 4,5 101,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 90,5
4 Efri-Rauðalækur 23-014 Boli 20-331 Fótur 63,0 38,0 4,5 4,5 110,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,5 90,5
5 Kirkjulækur 2 23-403 Sproti 18-882 Angi 60,0 39,0 2,2 4,5 106,0 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 90,0
Árnessýsla
1 Dísarstaðir 23-400 18-880 Fróði 48,0 40,0 3,7 5,0 111,0 8,0 9,5 9,5 10,0 10,0 19,0 8,5 8,0 9,0 91,5
2 Dísarstaðir 21-056 48,0 38,0 0,3 4,5 111,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 8,5 8,0 8,5 90,5
3 Hófgerði 23-070 Haukur 22-073 Frami 64,0 36,0 4,4 4,5 107,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 90,5
4 Vogsósar 2 23-101 21-110 Brjánn 58,0 36,0 3,6 5,0 106,0 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,5
5 Brúnastaðir 1 22-085 Köggur 46,0 33,0 1,8 5,0 104,0 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 8,5 90,0
Uppruni
N
úm
er
N
af
n
Fa
ði
r
Þu
ng
i (
kg
)
Ó
m
vö
ðv
i
Ó
m
fit
a
Lö
gu
n
Fó
tle
gg
ur
H
au
s
H
ál
s+
he
rð
ar
B
rin
ga
+
út
lö
gu
r
B
ak
M
al
ir
Læ
ri
U
ll
Fæ
tu
r
Sa
m
ræ
m
i
St
ig
a
lls
E yþór E inarsson.
Það glampaði á gullmola og gimsteina
– Af lambaskoðunum haustið 2023
A rnold 2 3 - 3 3 2 frá K etilsstö ðum er
hæststigaði lamb hrútur landsins
haustið 2 0 2 3 . Mynd / E E