Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 82

Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 82
82 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 Stjörnufræðingar víða um heim, bæði hjá NASA og eins og lesa má á vefsíðu Stjörnufræðivefsins, vilja meina að í raun séu stjörnumerkin þrettán. Kemur það til vegna stöðu möndluls jarðar, eða pólveltunnar sem tekur um 26.000 ár og því eru stjörnumerkin sem sjá má á himni ekki lengur á sama stað og fyrir þúsundum ára. U pphaflega höfðu Babýlóníumenn stjörnumerkin þrettán talsins og var naðurvaldi, stjörnumerki á miðbaug himins eitt þeirra. Myndgerð Naðurvalda er maður haldandi á höggormi, samanber grísku goðsögnina, guðinn og lækninn Asklepíos. Er naðurvaldi ríkjandi frá 3 0. nóvember til 17. desember, þekktur fyrir eigingirni og öfundsýki, en einnig er hamn litríkur og skemmtilegur persónuleiki auk þess að vera afar vel gáfum gæddur. Ef honum væri úthlutað varanlegt sæti meðal merkjanna myndu sæti hinna skarast sem svo svarar; V atnsberi 16. febrúar til 12. mars, F iskar 12. mars til 18. apríl, Hrútur 18. apríl til 14. maí, N aut 14. maí til 21. júní T víburi 21. júní til 20. júlí, K rabbi 20. júlí til 10. ágúst, Lj ón 10. ágúst til 16. september, M eyj a 16. september til 3 1. október, V og 3 1. október til 23 . nóvember, S p orðdreki 23 . nóvember til 29. nóvember, N aðurvaldi 29. nóvember til 18. desember, B ogmaður 18. desember til 19. janúar, S teingeit 19. janúar til 16. febrúar. Eins og kemur hér glögglega fram eru tímatöl stjörnumerkjanna þrettán ekki jöfn að lengd, líkt og þau tólf sem nú ríkja – en í þeim virðist sólin ríkja um mánuð í senn. Naðurvaldi Heilindi í samskiptum þurfa að vera öðru framar á nýju ári og þarf ljónið að vinna með traust á margan hátt. Að sama skapi er rétt að hafa heiðarleika í forgrunni og efasemdir um jákvæðan ásetning annarra ætti að blása í burt nema að vel ígrunduðu máli. P eningar og viðskipti eru ljóninu afar hugleiknir í ár og það veltir sífellt fyrir sér nýjum leiðum til að auðgast. U m leið og það jafnvægi kemst á innri ró þess, ætti það að geta séð fyrir sér flæði auðæfa sem aukast eftir því sem andleg líðan er betri. Kærleiksrík og persónuleg tengsl munu blómstra að sama skapi þegar innri ró hefur komist á, en svo verður ekki fyrr en ljónið er heiðarlegt við sjálft sig og kemst að niðurstöðu um hvernig það vill raunverulega haga lífi sínu. Þá er hægt að taka næstu skref. Ástarmál kvenljóna verða í brennidepli um mitt sumar þegar sólin skín sem hæst, en að þeim laðast þá helst karlmenn undir meðalhæð. Karlljónið þarf enn um sinn að glíma við sjálft sig, en mun þó eiga smáævintýri hér og þar. Ljón Þetta verður ár sjálfskoðunar og persónulegrar þróunar, en í byrjun árs ætti meyjan að setja á blað hugmyndir um hvernig næstu skref lífs hennar líta út. Hver eru markmiðin, hverju vill hún ná fram og að sama skapi auðga sjálfa sig. Ákveðin markmið í starfi og heilsu hafa verið meyjunni ofarlega í huga og nú er tími til að hefja þá vegferð enda mikill ávinningur í lok árs, ef haldið er af stað. Meðfram því þarf hún að æfa sig í að standa keik á sínu og láta ekki vaða yfir sig, og eykst sjálfstraust á árinu til muna ef vel er haldið á spöðunum í þessum efnum. Meyjunni er tamt að halda jafnvægi milli tómstunda og tíma til afslöppunar en þarf að gæta þess að rækta hugann að sama skapi, enda hættir henni til að vera svolítið löt. Sterkur og skýr hugur veitir byr undir segl markmiðanna og því þarf meyjan að gæta þess að rækta sjálfa sig með einlægni. Ástarmálin eru á rólegri nótunum en meyjan getur huggað sig við það að hún er eitt elskaðasta merkið og vinsælasta enda tilfinningaþroski hennar mikill og smitar gjarnan út frá sér. Meyja Samskipti verða lykilatriði á árinu og mun vogin styrkja félagslegar og tilfinningalegar tengingar, ekki síst við sig sjálfa. Hún æfir sig í að fylgja innsæinu án afskipta annarra og með tengingu við innra sjálfið. Vogin þarf að æfa sig í að hafa hugrekki til þess að segja sína meiningu jafnframt því að gera sér grein fyrir hversu vel hún er metin og dáð. Sjálfstraust, dugur og þor eru hennar einkunnarorð á árinu. Jafnvægi er voginni mikilvægt og finnur hún til óróa ef hennar innsta tengslanet er ekki sem skyldi, en sambönd styrkjast meðfram innri vex ti og þroska. Ástarmálin eru hæst á baugi hjá voginni af öllum stjörnumerkjunum enda þögull þokki vogarinnar á tímum sterkari en eldglæringar sporðdrekans. Rétt er að taka fram að ástarsambönd sem myndast í ár eiga eftir að verða afar sterk, sérstaklega ef rólega er farið af stað. Heilt yfir er árið 2024 ár gæfu og gengis og má vogin trúa því að stjörnurnar séu henni hliðhollar yfir heilt. Vog Árið 2024 mun færa sporðdrekanum dýpri skilning á eigin tilfinningum og löngunum auk þess að upplifa ýmiss konar breytingar í persónulegu og atvinnulegu lífi sem krefjast aðlögunarhæfni. Næstu mánuðir snúast að miklu leyti um persónulegan vöx t þar sem gott er að fara yfir liðinn veg og velta fyrir sér hvað hægt sé að læra af reynslunni. Margir sporðdrekar setja markið hátt á árinu, bæði í starfi og einkalífi en þar sem sporðdrekinn er eitt tilfinningaríkasta merkið mun það án efa setja ástríðu sína í forgrunn, hvort sem það tengist starfi eða nánum samböndum. Eitthvað verður um að sporðdrekinn hefji listnám eða annað skapandi nám sem mun koma honum á óvart og velta af stað róttækum breytingum. Á árinu dýpka sum sambönd á meðan önnur geispa golunni, en lítið virðist vera um nokkurn milliveg þar. Sporðdrekinn fær skýrari sýn á hvað drífur hann áfram og nærir, en þarf að æfa sig í að vera hógvær og tillitssamur. Sporðdreki Árið sem er að ganga í garð verður ár ævintýra og uppgötvana. Ferðalög og menntun verða lykilþættir og þyrfti bogmaðurinn að gæta þess að vera opinn fyrir nýjum hugsanagangi. Mikil gleði og hamingja mun vera ríkjandi á árinu og ætti bogmaðurinn að njóta þess til hins ýtrasta. Ekki er úr vegi að dreifa gleðinni í kringum sig og hafa það bak við eyrað að gjarnan opnast dyr ef orka gleðinnar bankar upp á. Bogmaðurinn fær aukið sjálfstraust á árinu sem kætir hann mjög og verður til þess að hann ákveður að taka einhver skref sem ekki áður hafa verið stigin. Heimurinn opnast og nýjar upplifanir eru ráðandi. T engslanetið þéttist og ástarsambönd að sama skapi verða innilegri og einlægari. Bogmaðurinn þarf þó að gæta þess að hafa taumhald á sinni nýfundnu tilfinningasprengju og hafa nokkra yfirsýn – að minnsta kosti yfir hvern mánuð í senn. Sérstaklega með tilliti til þess að á árinu verða þónokkrar breytingar sem hafa þarf auga með ef þær eiga að þróast í jákvæða átt. Bogmaður Þetta er ár nýrra upphafa. Steingeitin fer út fyrir þægindarammann og tekur skref að þeim breytingum sem hún hefur lengi viljað taka. Ekki er víst að breytingarnar eigi sér stað fyrst um sinn, en þrautseigja og þrjóska eru einkennismerki steingeitarinnar svo og tiltölulega röksemdarleg hugsun sem getur fleytt henni áfram ef viljinn er mikill. G æta þarf að heilsunni, bæði andlegri og líkamlegri, en steingeitinni er tamt að láta sjálfa sig dala. Árið mun, heilt yfir, vera uppbyggilegt á margan hátt og þónokkur langþráð markmið verða unnin. Fjármálin eru hátt á baugi og minna skyldi steingeitina á að sælla er að gefa en þiggja, en peningastreymið verður stöðugt í vasa hennar yfir næstu mánuði. Ástarmálin koma skemmtilega á óvart og verður mikið um óvæntar gjafir í heimi tilfinninganna. Bæði sem hægt er að þreifa á svo og þær sem koma róti á hjartað. Heilt yfir mun árið vera steingeitinni gott ef hún leyfir tilfinningunum að flæða óbeisluðum, en þó innan marka velsæmis. Hlusta af kostgæfni á aðra en leyfa hjartanu að ráða för. Steingeit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.