Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR ÞARMAFLÓRUNA
GALL- OG SÝRUÞOLNIR MJÓLKURSÝRUGERLAR MEÐ ASÍDÓFÍLUS
SEM MARGFALDA SIG OG NÁ GÓÐRI ÚTBREIÐSLU Í ÞÖRMUM
HEILBRIGD MELTING
HEILBRIGT LÍF
Útsölustaðir: Apótek, heilsuhillur stórmarkaða og Heimkaup.is.
Startaðu
betur í vetur
Thomas A. Edison fann ekki bara upp ljósaperuna, hann kom
einnig að þróun fyrstu rafgeymanna fyrir Exide. Allt frá því um
aldamótin 1900 hefur Exide því verið í fararbroddi þegar kemur
að traustum og áreiðanlegum rafgeymum fyrir allar tegundir
bifreiða, landbúnaðartækja, lyftara og annarra farkosta.
Pantaðu á olis.is eða hafðu samband í síma 515 1100
Annáll
M örg garðyrkjufyrirtæki eru að
eiga gott ár í framleiðslu og sölu,
á það við flestar þær greinar sem
garðyrkjan snertir.
G arðplöntu-
og sumarblóma-
framleiðendur,
ylrækt blóma
og grænmetis,
kartöflubændur
og aðrir úti-
r æ k t e n d u r ,
næstum allir bera
sig vel eftir árið.
Á tímum sem þessum kemur sér vel
hvað garðyrkjan er heilt yfir skuldlítil
grein og með háan meðalaldur.
Mikil reynsla og þekking er til
staðar í því hvernig best er að gera
hlutina. En þetta er einnig stærsta
ógn greinarinnar, með hverju árinu
fækkar fólki í garðyrkju þar sem
mikil reynsla og kunnátta tapast en
fáir sem koma inn. Þeir sem hafa
tekið slaginn og komið inn í greinina
á síðustu árum eru í hvað verstri
stöðu, bæði hvað varðar kunnáttu
og fjárhagsstöðu. Við þekkjum öll
hvernig verðbólgan og vax tastigið
er að fara með samfélagið og því
er skuldastaða ungra bænda mikið
áhyggjuefni. Það er mín von og trú
að aðgerðir ríkisstjórnarinnar núna
verði til að bæta hag þeirra sem eru
nýir í greininni og í hvað verstri
skuldastöðu.
En það er ekki síður menntun og
ráðgjöf sem við þurfum að varðveita
og leita stöðugt nýrra leiða til að bæta
okkur. G arðyrkjuskólinn á Reykjum
gegnir þar lykilhlutverki í að fá nýtt
fólk inn í greinina. Nú er búið að
endurvekja fagnefndir námsbrauta
skólans, garðyrkjubændur eiga sæti
í þeim nefndum sem tengjast þeirra
greinum. Með þessu er verið að
tryggja að grasrótinni gefist tækifæri
á að vinna með skólanum. Deild
garðyrkjunnar innan BÍ hefur einnig
unnið í nánu samstarfi við RML
( Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins) .
Þar hafa verið tekin markviss skref
í að bæta og aðlaga þjónustuna
til handa garðyrkjubændum.
Síðastliðið vor var kynnt skýrsla
um rekstrarráðgjöf í garðyrkju.
Þar fá bændur verulega góð tæki
í hendurnar, þar sem þeir sjá svart
á hvítu hvar þeir geta bætt sinn
rekstur. Á þessu ári var svo farið af
stað með annað verkefni í samstarfi
við Rml þar sem safnað verður
saman upplýsingum um hvernig
garðyrkjubændur geta fundið leiðir
til að minnka kolefnisspor sitt. Þó svo
að garðyrkjan sé afar umhverfisvæn
miðað við aðra matvælaframleiðslu
þá eigum við alltaf að stefna á að
gera betur.
N ýtt ár , endurskoðaðir
bú vörusamningar
Lítið hefur þokast í að klára
endurskoðun búvörusamninga á
þessu ári en þeir eiga að taka gildi
1. janúar 2024. Bændasamtökin
hafa lagt fram skýr markmið um
hvaða aðgerðir þarf að fara í til að
garðyrkjunni farnist hvað best inn í
framtíðina. Flest þau markmið ríma
við þau áhersluatriði sem sett voru
í stjórnarsáttmálann hjá núverandi
ríkisstjórn.
• F esta niðurgreiðsluhlutfall á
dreifingu raforku
• H ækka greiðslur til útiræktar
• S etja hærri greiðslustuðla á
lífrænt ræktað grænmeti
• E ndurskoða tollflokka og
uppreikna á núvirði
Þetta eru stóru áhersluatriðin,
tryggja rekstrarumhverfi og gera
garðyrkjubændur samkeppnishæfari
á markaði við innflutning. Það á
ekki að vera sjálfsagt að innlent
grænmeti eigi að þurfa að kosta
meira en innflutt. Við viljum að
íslenskar garðyrkjuafurðir séu á
samkeppnishæfu verði. Ekki bara
út í búð, líka fyrir veitingageirann og
mötuneyti, þetta er gríðarlega stórt
hagsmunamál. Aðhaldskrafan er svo
mikil í mötuneytisgeiranum að þar
stjórnast innkaup að langstærstum
hluta af verði vörunnar, hvernig
stendur íslenskt grænmeti sig þar
eða íslensk matvæli yfir höfuð? Af
hverju ekki að hafa kerfið þannig
að íslensk matvæli séu ódýrari en
innflutt?
Við garðyrkjubændur munum
halda áfram að gera það sem við erum
best í, framleiða framúrskarandi
garðyrkjuafurðir. Spurningin er því
bara; á hvaða verði getum við boðið
ykkur það?
Axe l S æ land,
formaður búgreinadeildar
garðyrkjubænda.
A x el S æl and.
Mynd / g h p
Bændablaðið á
Instagram & Facebook