Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 15

Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 15
Sigrún Kjartansdóttir Hrein íslensk fæðubót frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup, Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira Liðirnir slæmir eftir mikið álag Sigrún Kjartansdóttir, leikfimi-, jóga- og Zumbakennari, hefur hreyft sig mikið alla tíð. Mikið hefur reynt á hné og aðra liði líkamans sem hefur ágerst með aldrinum. Sigrún segir að eftir að hún byrjaði að taka Active JOINTS frá Eylíf hafi henni farið að líða miklu betur í liðunum og öllum líkamanum. „Ég get vel mælt með Active JOINTS frá Eylíf. Það hefur reynst mér einstaklega vel og ég finn mun þegar ég tek það ekki,“ segir hún. „Ég er búin að taka Active JOINTS í ár vegna eymsla og verkja í hnjánum, það er eins og bein sé komið í bein enda sýndi myndataka það. Ég ákvað þó að leita annarra leiða en að fara í enn eina aðgerðina. Ég fæ oft mjög sára verki í hnén en eftir að ég fór að taka Active JOINTS líður mér mun betur. Það er eins og liðirnir mýkist,“ segir Sigrún sem er mikil ofurkona og líkamsræktardrottning. Hafði engu að tapa „Ég hafði engu að tapa með að prófa mig áfram með bætiefni en ég hafði ekki verið nógu dugleg að taka þau inn né önnur vítamín. Ég hafði prófað aðrar tegundir af bætiefnum fyrir liðina en fann lítinn sem engan mun. Ég er að kenna líkamsrækt hjá World Class í Breiðholti og Ólöf Rún sem framleiðir vöruna var í tímum hjá mér. Hún sagði mér frá Active JOINTS sem væri sérstaklega framleitt fyrir liði. Ég þekki bætiefni nokkuð vel og hef mikla trú á því sem Ólöf er að gera. Mér finnst ekki verra að varan er að fullu unnin hér á landi úr íslensku hráefni. Miklir verkir skerða lífsgæðin,“ segir Sigrún og bætir við að endalaust álag á líkamann í mjög mikilli hreyfingu geti komið niður á liðum þegar fólk eldist. „Svo er bara falleg hugsun í kringum það að varan sé að fullu unnin úr hreinum íslenskum hráefnum á Íslandi og af Íslendingum. Fyrst og fremst er það þó virknin sem skiptir máli.“ Vörulínan frá Eylíf Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á Grenivík. „Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á staðfesta virkni þeirra“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“ Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru: • Kalkþörungar frá Bíldudal • Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ • GeoSilica frá Hellisheiði • Kollagen frá Grindavík • Kítósan frá Siglufirði • Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði Hrein óerfðabreytt hráefni Íslensk framleiðsla Heilsan er dýrmætust Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. Mikið álag á æfingum „Mér hættir til að æfa of mikið. Ég elska að hreyfa mig og það er mín slökun og hugarró. Ég hef hlaupið fjögur heilmaraþon og nokkur hálf maraþon og áður en ég fór að hlaupa hafði ég keppt í samkvæmisdönsum þar sem maður æfði tvo til þrjá tíma á dag á há- hæluðum skóm. Ég var auðvitað yngri þá en þetta var samt svolítið mikið,“ segir Sigrún sem er 65 ára og hefur farið í aðgerðir á báðum hnjám og báðum öxlum vegna álags. „Ég myndi mæla með ACTIVE JOINTS frá Eylíf fyrir fólk sem er í mikilli hreyfingu og alla þá sem finna fyrir verkjum í liðum,“ segir Sigrún sem kennir Zumba og jóga auk annarra tíma í World Class. Dóttir hennar, Anna Claessen, er sömuleiðis líkamsræktarkennari enda fóru þær mæðgur saman í Zumba-kennaranám árið 2010. Zumba sem er dans með fitness ívafi hefur verið mjög vinsæll hér á landi. „Ég fór að kenna frekar seint en finnst það ótrúlega skemmtilegt,“ viðurkennir Sigrún og er ekkert að spá í að hætta kennslunni. Tímarnir hafa breyst en Sigrún segir að líkamsrækt hafi varla þekkst þegar hún var barn að aldri fyrir utan skólaleikfimi. Krakkar hafi hins vegar leikið sér mikið úti í brennibolta og þess háttar leikjum. „Maður sá ekki fólk hlaupa þegar ég var að alast upp og ef einhver gerði það var hann talinn skrítinn,“ segir hún og hlær. Ragnar Alfreðsson Trésmiður Mælir hiklaust með Stronger LIVER Ragnar Alfreðsson trésmiður notar bætiefnið Stronger LIVER með frábærum árangri. „Blóðið í mér hefur verið að hlaða upp járni og fylgjast þarf náið með gildunum því ef þau verða of há þarf að fara í aftöppun. Ég fer því í blóðprufur á þriggja mánaða fresti en eftir að ég fór að taka inn Stronger LIVER frá Eylíf hafa lifrargildin, sem voru áður ekki upp á tíu, snarbreyst til hins betra. Það er einfaldlega allt í topplagi eftir að ég fór að taka inn þetta magnaða bætiefni sem hefur breytt ótrúlega miklu fyrir mig,“ segir Ragnar, alsæll með árangurinn. „Ég mæli 100 prósent með Stronger Liver því ég þekki það af eigin raun. Ég er yfirleitt ekki ginnkeyptur fyrir töflum eða bætiefnum en fékk ábendingu um Stronger LIVER frá Eylíf. Í fyrstu var ég hikandi og hafði enga trú á áhrifum þess en eftir að ég fór að lesa mér til um bætiefnið ákvað ég að prófa. Ég var nýkominn úr blóðprufu þar sem lifrargildin voru alltof há og fannst ég ekki hafa neinu að tapa að gefa þessu séns. Eftir þriggja mánaða skammt varð ég svo nánast orðlaus yfir því hvað gildin höfðu breyst mikið þegar ég fór næst í blóðprufu. Stronger LIVER var greinilega að svínvirka,“ segir Ragnar, og læknirinn hans var líka hissa á betri lifrargildum. „Ég sagði lækninum að ég væri að taka inn Stronger LIVER og hann sagði það greinilega virka mjög vel, sem eru sannarlega góð meðmæli. Vitaskuld má maður ekki vera með fordóma fyrirfram og dæma það sem maður veit ekki um. Það heillaði mig líka að bætiefnið er unnið úr náttúrulegum og íslenskum hráefnum,“ segir Ragnar sem mælir eindregið með Stronger LIVER. „Nýrnastarfsemin var líka í pínu ólagi hjá mér en þetta virðist haldast í hendur því nýrnagildin hafa líka lagast eftir að ég fór að taka inn Stronger LIVER. Ég er mjög ánægður og mun halda áfram að taka inn þetta einstaka bætiefni inn fyrir heilsu mína. Ég mæli því hiklaust með Stronger LIVER fyrir alla sem glíma við ójafnvægi í járnbúskapnum því ég hef þurft að fara miklu sjaldnar í aftöppun.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.