Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Hann er að sumu leyti kynlegur
kvistur, húsasmíðameistarinn í
Hveragerði sem líka er kartöflu-
og skógarbóndi í Lettlandi og
byggir hús á einni fegurstu strönd
Afríkuálfu.
Brynleifur Siglaugsson er fæddur
árið 1970, bjó lengi á Vopnafirði en
flutti suður 1996. Hann á tvo syni,
fædda 1998 og 2004. Lengst af hefur
hann byggt og selt hús hingað og
þangað um landið en 2008 urðu
verulegar breytingar á högum hans.
„Í hruninu fór allur
byggingariðnaðurinn lóðrétt til
helvítis,“ segir Brynleifur. „Það
þarf svo sem ekki að hafa mörg
orð um hvað gerðist: í rauninni
var bara öllu stolið af fólki. Við
vorum með rekstur, áttum svolítið
af atvinnuhúsnæði með erlendum
lánum sem þrefölduðust svo það fór
bara allt lóðbeint til fjandans.“
E rfitt að bú a h é r
Brynleifur sendi frá sér opinbera
yfirlýsingu þar sem hann vandaði
ráðamönnum ekki kveðjurnar og
sagðist vera farinn úr landi, hér
væri ekki hægt að búa. Hann fór
til Noregs en entist þar ekki nema í
þrjá mánuði. „Það var ekkert mjög
gaman af því,“ segir hann, nokkuð
kaldranalega. Hann kom því aftur
upp. „Ég ákvað að vera hér og byrja
aftur að berjast.“
Hann segir hafa gengið fínt hjá
sér síðan. Árið 2014 keypti hann
gamalt hús í Hveragerði og gerði upp
og hefur búið þar síðan ásamt sonum
sínum. „Ég er með byggingafyrirtæki
hér og búinn að byggja slatta af
húsum í Hveragerði og Mosfellsbæ
og taka að mér alls konar verk. Var
m.a. að klára íbúðir í Mývatnssveit
núna.“ Honum sýnist þó að allt sé
að fara á verri veg í þjóðfélaginu
aftur. „Ég er með verkefni út næsta
ár, er ekki með einhver erlend lán –
maður lærði eitthvað af þessu hruni
– og er því rólegur.“ Hann segist
sakna sterkra stjórnmálaleiðtoga á
þingi og gefur lítið fyrir pólitíkina
nú til dags, auk þess sem hann segist
hafa illan bifur á hvernig ríki séu að
gefa lýðræðisrétt sinn eftir til ýmissa
alþjóðastofnana.
B y ggði sé r h ú s
á be stu strönd álfunnar
Víkur þá sögunni út fyrir landsteina.
„Ég fór til Brasilíu 2005 og varð
alveg heillaður,“ heldur Brynleifur
áfram. „Ég keypti mér svolítið land
þar og ætlaði að byggja mér hús en
svo varð hrunið 2008 og setti strik
í reikninginn.“
Hann seldi landið og ekki varð
meira úr Brasilíuhugmyndinni. En
var þó ekki af baki dottinn. Hann
hafi afar gaman af því að ferðast
og helst til staða þar sem eru ekki
margir Íslendingar. Árið 2019 fór
hann til Kenía með vinum og hreifst
af landinu. „Ég var búinn að bíta í
mig og vinna að því í nokkur ár að
geta keypt mér land einhvers staðar
þar sem er almennilegt veður og
byggt mér hús. Eftir fyrstu ferðina
til Kenía gerðist allt mjög hratt:
ég keypti mér lóð og fór svo bara
að byggja, fyrir einu og hálfu ári
síðan.“
Húsið stendur á Diani-
ströndinni, í um klukkustundar
akstursfjarlægð frá Mombasa,
annarri stærstu borg landsins, og
er ströndin sögð ein af fimm bestu
og fegurstu ströndum allrar heilu
Afríku. Brynleifur segir svæðið
gríðarlega fallegt. „Það er bara
alveg dásamlegt að vera þarna,“
segir hann en reiknar þó með að
setja húsið í leigu til ferðamanna,
það sé allt of stórt fyrir sig. Ekki
sé tiltakanlega flókið að kaupa sér
landskika í Kenía og hann hyggst
byggja þar meira.
Sk óg ar- o g k artöflub óndi
í L ettlandi
Fyrir þremur árum festi Brynleifur
sér einnig litla jörð í Lettlandi.
„Ég hef alltaf verið dálítið
hrifinn af Austur-Evrópu,“ segir
hann og bætir við að hann hafi verið
með mannskap frá Litháen í vinnu
síðan 2005 og sumir þeirra séu enn
að vinna hjá honum. „Þegar ég
skoðaði Lettland í alvöru varð ég
alveg heillaður af því líka,“ bætir
hann við og heldur áfram: „Mig
langaði alltaf að kaupa mér svolitla
spildu og gamalt hús í einhverju af
þessum löndum þarna. Ég keypti
21 hektara og þar er skógur,
ræktarland og gamalt bjálkahús
sem við feðgarnir stefnum á að
gera upp.“
Jörðin er í um eins og hálfs
tíma akstursfjarlægð í austur frá
höfuðborginni Ríga.
LÍF&STARF
Mannlíf:
Ákvað að byrja aftur að berjast
– Smíðar hús á Íslandi og í Afríku en ræktar kartöflur og skóg í Lettlandi
Brynleifur Siglaugsson.
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Á lettneska akrinum við kartöfluupptöku. Um 500 kg fengust nú í haust.
Hið myndarlega hús sem Brynleifur byggði á Diani-ströndinni í Kenía. Hún
þykir ein fegursta strönd gjörvallrar álfunnar og er þó af miklu að taka.
Sérstakur kartöflubjór er bruggaður
fyrir kartöfluhátíðina.
Við höfum þrjú ár í
röð haldið sérstaka
kartöfluhátíð í lok ágúst
þegar kartöflurnar eru
teknar upp. Og það er
búið að vefja upp á sig!“
Fánar Íslands og Lettlands blakta við
húsið í lettnesku sveitinni.
Falleg innsetning við heimreiðina til
að auglýsa karöfluhátíðina.
HONDA SNJÓBLÁSARAR
FÁST Í FAGVERSLUN BYKO
GÆÐI
Í YFIR
40 ÁR
www.byko.is/honda | honda@byko.is | 821-4152