Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
V i ð m i ð
he iðursverð-
launa hryssna
er að þær hafi
að lágmarki
116 stig í aðal-
einkunnum kyn-
bótamats og
eigi að minnsta
kosti 5 dæmd
a f k v æ m i .
Röðun hryssna er samkvæmt
aðaleinkunn kynbótamats en í ár
eru það þrjár hryssur sem hljóta
viðurkenningu byggt á kynbótamati
aðaleinkunnar án skeiðs. Hér á eftir
verður fjallað um þessar hryssur og
dómsorð afkvæma, auk Þráins frá
Flagbjarnarholti sem náði fyrstu
verðlaunum fyrir afkvæmi.
V erona frá Á rbæ
Efsta hryssan árið 2023 og
þar með G lettubikarhafinn, er
Verona frá Árbæ. Hún er undan
heiðursverðlaunahrossunum Aroni
frá Strandarhöfði og Vigdísi frá Feti.
Ræktandi Veronu er G unnar Andrés
Jóhannsson og eigandi Maríanna
G unnarsdóttir.
Verona er með 126 stig í kyn-
bótamati aðaleinkunnar en hún á
12 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið
kynbótadóm að meðaltali 8,3 0 í
aðaleinkunn og eru 6,4 ár að aldri.
Dómsorð afkvæma: Verona frá
Árbæ gefur stór hross. Höfuðið
er skarpt með vel opin augu en
merarskál. Hálsinn er grannur með
klipna kverk. Bakið er burðugt
með öfluga lend og samræmið
jafnvægisgott og hlutfallarétt. Fætur
eru þurrir með mikil sinaskil en
geta verið nágengir bæði að framan
og aftan. Hófar eru úrvalsgóðir,
efnisþykkir með hvelfdan botn en
prúðleiki er alla jafna ekki mikill.
T öltið er skrefmikið, brokkið
takthreint en getur verið ferðlítið.
Skeiðið er öruggt og skrefmikið.
Stökkið er mjúkt en getur verið
sviflítið bæði á hægu og greiðu,
fetið er takthreint en vantar stundum
framtak. Verona gefur myndarleg
alhliðahross með fínlegan frampart
og mjög gott samræmi sem fara vel á
gangi og eru þjál í reið. Verona hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
fyrsta sætið.
S taka frá S tuðlum
Hryssan í öðru sæti er Staka
frá Stuðlum. Hún er undan Akk
frá Brautarholti heiðursverðlauna-
hryssunni Þernu frá Arnarhóli.
Ræktendur hennar og eigendur
eru Edda Björk Ó lafsdóttir og P áll
Stefánsson. Staka er með 124 stig í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn en
hún á 10 afkvæmi og hafa 5 þeirra
hlotið kynbótadóm upp á 8.28 að
meðaltali og er meðalaldur þeirra
við sýningu 5,2 ár.
Dómsorð afkvæma: Staka frá
Stuðlum gefur stór hross. Afkvæmin
eru myndarleg á höfuð, vel opin
augu og með beina neflínu. Hálsinn
er reistur og hátt settur, með hvelfda
yfirlínu en bógar geta verið beinir.
Bakið er breitt og vöðvafyllt, og
lendin er öflug. Afkvæmin eru sívöl
og fótahá með sterklega fótagerð
en réttleiki er ekki góður. Hófar
er vel lagaðir með hvelfdan botn
og þykka hæla. Afkvæmin eru öll
nema eitt alhliðahross. T ölt og brokk
er skrefmikið og lyftingargott, en
brokkið getur skort ferð og öryggi.
Skeiðið er jafnan gott og getur verið
úrval, skrefmikið og ferðmikið.
Stökkið er rúmt og hæga stökkið
er gott. P rúðleiki og fet eru afar
misjöfn að gæðum. Staka gefur stór
og afar myndarleg hross sem eru
þjál í vilja og fara mjög vel í reið
með góðum fótaburði. Staka hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
annað sætið.
O ktavía frá F eti
Hryssan í þriðja sæti er Oktavía
frá Feti. Hún er undan Burkna frá
Feti og Ó felíu frá G erðum. Ræktandi
hennar er Brynjar Vilmundarson en
eigendur eru Þormar Andrésson og
Æ var Ö rn G uðjónsson. Oktavía er
með 121 stig í kynbótamati fyrir
aðaleinkunn en hún á 10 afkvæmi
og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm
að meðaltali 8,24 aðaleinkunnar og
voru þau sýnd við meðalaldur 5,8 ár.
Dómsorð afkvæma: Oktavía
gefur hross í meðalstærð. Höfuðið er
skarpt með vel borin eyru. Hálsinn er
reistur og grannur. Baklínan er fremur
góð og lendin öflug, afkvæmin eru
samræmisgóð, sívöl og hlutfallarétt.
Fætur eru ekki sterklegir og fremur
nágengir. Hófar hafa hvelfdan
botn og prúðleiki er um meðallag.
Afkvæmin eru flest klárhross með
úrvalstölt bæði á hægu og hröðu.
Það er takthreint, rúmt og hágengt
en misskrefgott. Brokkið takhreint
með góðri skreflengd og fótaburði.
Aðeins eitt afkvæmanna er vel
vakurt. G reiða stökkið er ferðmikið
með góðum fótaburði og sama á við
um það hæga. Fetið er takthreint.
Oktavía gefur fínleg, framfalleg og
léttbyggð hross sem að uppistöðu
eru klárhross. Þau fara glæsilega
í reið með mikinn vilja og þjálni.
Oktavía hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og þriðja sætið.
S kíma frá K vistum
Hryssan í fjórða sæti er Skíma
frá Kvistum. Hún er undan fyrstu
verðlaunahestinum Kráki frá
Blesastöðum 1A og Skálm frá
Berjanesi. Ræktandi hennar og
eigendur eru Kvistir ehf. Skíma er
með 121 stig í kynbótamati fyrir
aðaleinkunn en hún á 9 afkvæmi
og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm
að meðaltali 8,09 aðaleinkunnar og
voru þau sýnd við meðalaldur 5,6 ár.
Dómsorð afkvæma: Skíma
gefur hross í meðalstærð. Höfuðið
er meðalfrítt en hálsinn góður
með frekar skásetta bóga. Bakið
er burðugt, breitt og vöðvafyllt,
samræmið hlutfallarétt og
jafnvægisgott. Fætur eru þurrir en
stundum grannir en lítið snúnir.
Hófar eru fremur efnismiklir
með hvelfdan botn og vel lagaðir.
P rúðleiki er í meðallagi en nokkuð
misjafn. Afkvæmin eru bæði klár- og
alhliðageng, ef skeiðið er til staðar er
það nokkuð skrefgott en skortir svif.
T öltið er takthreint léttstígt og með
góðri lyftu, bæði á hægu og greiðu.
Brokkið er takthreint og fjaðrandi
með góðum fótaburði, greiða stökkið
er skrefgott og það hæga takthreint,
léttstígt með góðri fótlyftu. Fetið er
takthreint en skrefstærð misjöfn.
Skíma gefur framfalleg léttstíg
hross með góða yfirlínu. Þau fara
afar vel í reið með góðum fótaburði,
bæði viljug og þjál. Skíma hlýtur
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og
fjórða sætið.
G ifting frá H ofi I
Hryssan í fimmta sæti er
G ifting frá Hofi 1. Hún er undan
heiðursverðlaunahestinum Hágang
frá Narfastöðum og Vöku frá Hofi
1. Ræktandi hennar og eigandi er
Þorlákur Ö rn Bergsson. Vaka er
með 118 stig í kynbótamati fyrir
aðaleinkunnar en hún á 11 afkvæmi
og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm
að meðaltali 8,23 í aðaleinkunn og
voru þau sýnd við meðalaldur 5,6 ár.
Dómsorð afkvæma: G ifting frá
Hofi gefur hross í rúmu meðallagi.
Höfuðið er skarpt með vel opin
augu, hálsinn er langur með góða
yfirlínu en reising og setning er
misgóð. Bakið er burðugt með
öfluga lend en hún getur verið
gróf. Afkvæmin eru langvax in og
sívalvax in en stundum brjóstdjúp.
Fætur eru þurrir og fremur öflugir
en geta verið nágengir bæði að
framan og aftan. Hófar hafa hvelfdan
botn, prúðleiki er í góðu meðallagi.
Afkvæmin eru alhliðageng með rúmt
tölt sem er misskrefgott, hæga töltið
hefur góðan fótaburð. Brokkið er
takthreint. Skeiðið er allajafna gott
en vantar stundum svif. G reiða
stökkið er ferðmikið en hæga stökkið
skortir svif. G ifting frá Hofi gefur
viljug og þjál alhliðahross sem fara
vel í reið með góðum höfuðburði.
G ifting hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og fimmta sætið.
Alfa frá B lesastöðum 1A
Hryssan í sjötta sæti er Alfa frá
Blesastöðum 1A. Hún er undan
heiðursverðlaunahestinum Orra
frá Þúfu og Blúndu frá Kílhrauni.
Ræktandi hennar er Magnús T rausti
Svavarsson en eigandi er I ngjald
Å m. Blúnda er með 117 stig í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn en
hún á 10 afkvæmi og hafa 5 þeirra
hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,03
í aðaleinkunn og voru þau sýnd við
meðalaldur 5,2 ár.
Dómsorð afkvæma: Alfa gefur
afkvæmi undir meðallagi að stærð.
Höfuð að jafnaði svipgott en oft
heldur gróft. Hálsinn er yfirleitt
hátt settur með háum herðum en
yfirlína fremur bein. Bakið er oftast
vöðvafyllt en stundum fremur svagt,
lendin er misjöfn, stundum gróf en
öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt og
jafnbola. Fætur eru þurrir en sinaskil
fremur lítil. Réttleiki misjafn en flest
afkvæmin eru nágeng að aftan. Hófar
góðir með hvelfdum botni. P rúðleiki
slakur. T öltið er takthreint, rúmt og
með góðri fótlyftu. G æði brokksins
getur brugðið til beggja átta, en
þegar það er gott er það skrefmikið
og rúmt. Þegar skeið er til staðar er
það ferðmikið og taktgott en það er
tveir vekringar í hópnum. Stökkið
er hátt og ferðmikið, en hæga
stökkið fremur sviflítið. Afkvæmin
eru ásækin í vilja og fara vel í reið
með miklum fótaburði. Alfa hlýtur
heiðursverðlaun og sjötta sætið.
G róska frá D allandi
Hryssan í sjöunda sæti er
G róska frá Dallandi. Hún er undan
heiðursverðlaunahrossunum Huginn
frá Haga 1 og G nótt frá Dallandi.
Ræktendur hennar eru G unnar og
Þórdís en eigandi Hestamiðstöðin
Dalur ehf. G róska er með 116 stig í
kynbótamati aðaleinkunnar en hún
á 9 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið
kynbótadóm að meðaltali 8,18 í
aðaleinkunn og voru þau sýnd við
meðalaldur 6,2 ár.
Dómsorð afkvæma: G róska gefur
stór hross. Höfuð er svipgott og
eyrun vel borin. Hálsinn er langur og
reistur við háar herðar. Bakið hefur
að jafnaði góða yfirlínu og lendin er
öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt.
Sinar eru öflugar og réttleiki góður.
Hófar eru efnismiklir, með þykkum
hælum og hvelfdum hófbotni.
P rúðleiki yfirleitt mikill. Afkvæmin
eru ýmist alhliðageng eða klárhross.
T öltið er rúmt með góðri fótlyftu.
Brokkið er takthreint og rúmt með
góðri fótlyftu. Þegar skeið er til
staðar er það rúmt, skrefmikið og
öruggt. Stökkið er rúmt, skrefmikið
og með góðri fótlyftu. Hæga stökkið
er oft fremur sviflítið en með góðri
fótlyftu. Fetið er misgott, tvö
afkvæmanna hafa úrvalsgott fet.
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
E lsa
A lb ertsdóttir.
Hryssur sem hlutu heiðurs-
verðlaun haustið 2023
H ið alþjóðlega kynbótamat fyrir íslenska hestinn var reiknað eftir alla
dóma ársins í lok október 2023 og birt í W orldF eng. Þ ar kom í ljós að
1 1 hryssur á Íslandi hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. M ikill fjöldi
hryssna hefur náð þessum árangri síðastliðin ár m.a. vegna breytinga
í útreikningi á kynbótamati en svo virðist sem kerfið sé að komast í
visst jafnvægi. E f að líkum lætur mun þó kynbótamat keppniseiginleika
líta fljótlega dagsins ljós og verður áhugavert að sjá hvaða breyting
sú innleiðing mun hafa á niðurstöður kynbótamats þeirra eiginleika
sem dæmdir eru á kynbótasýningum en áhrif keppnisdóma verður í
gengum erfðastuðla.
O ktavía frá F eti.S taka frá S tuðlum. S kíma frá K vistum. ifting frá Ho .
A lfa frá B lesastö ðum 1 A . G róska frá D allandi. Vissa frá H oltsmúla 1 . Ólafía frá L ækjamóti.