Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 66

Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 V i ð m i ð he iðursverð- launa hryssna er að þær hafi að lágmarki 116 stig í aðal- einkunnum kyn- bótamats og eigi að minnsta kosti 5 dæmd a f k v æ m i . Röðun hryssna er samkvæmt aðaleinkunn kynbótamats en í ár eru það þrjár hryssur sem hljóta viðurkenningu byggt á kynbótamati aðaleinkunnar án skeiðs. Hér á eftir verður fjallað um þessar hryssur og dómsorð afkvæma, auk Þráins frá Flagbjarnarholti sem náði fyrstu verðlaunum fyrir afkvæmi. V erona frá Á rbæ Efsta hryssan árið 2023 og þar með G lettubikarhafinn, er Verona frá Árbæ. Hún er undan heiðursverðlaunahrossunum Aroni frá Strandarhöfði og Vigdísi frá Feti. Ræktandi Veronu er G unnar Andrés Jóhannsson og eigandi Maríanna G unnarsdóttir. Verona er með 126 stig í kyn- bótamati aðaleinkunnar en hún á 12 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,3 0 í aðaleinkunn og eru 6,4 ár að aldri. Dómsorð afkvæma: Verona frá Árbæ gefur stór hross. Höfuðið er skarpt með vel opin augu en merarskál. Hálsinn er grannur með klipna kverk. Bakið er burðugt með öfluga lend og samræmið jafnvægisgott og hlutfallarétt. Fætur eru þurrir með mikil sinaskil en geta verið nágengir bæði að framan og aftan. Hófar eru úrvalsgóðir, efnisþykkir með hvelfdan botn en prúðleiki er alla jafna ekki mikill. T öltið er skrefmikið, brokkið takthreint en getur verið ferðlítið. Skeiðið er öruggt og skrefmikið. Stökkið er mjúkt en getur verið sviflítið bæði á hægu og greiðu, fetið er takthreint en vantar stundum framtak. Verona gefur myndarleg alhliðahross með fínlegan frampart og mjög gott samræmi sem fara vel á gangi og eru þjál í reið. Verona hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið. S taka frá S tuðlum Hryssan í öðru sæti er Staka frá Stuðlum. Hún er undan Akk frá Brautarholti heiðursverðlauna- hryssunni Þernu frá Arnarhóli. Ræktendur hennar og eigendur eru Edda Björk Ó lafsdóttir og P áll Stefánsson. Staka er með 124 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 10 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm upp á 8.28 að meðaltali og er meðalaldur þeirra við sýningu 5,2 ár. Dómsorð afkvæma: Staka frá Stuðlum gefur stór hross. Afkvæmin eru myndarleg á höfuð, vel opin augu og með beina neflínu. Hálsinn er reistur og hátt settur, með hvelfda yfirlínu en bógar geta verið beinir. Bakið er breitt og vöðvafyllt, og lendin er öflug. Afkvæmin eru sívöl og fótahá með sterklega fótagerð en réttleiki er ekki góður. Hófar er vel lagaðir með hvelfdan botn og þykka hæla. Afkvæmin eru öll nema eitt alhliðahross. T ölt og brokk er skrefmikið og lyftingargott, en brokkið getur skort ferð og öryggi. Skeiðið er jafnan gott og getur verið úrval, skrefmikið og ferðmikið. Stökkið er rúmt og hæga stökkið er gott. P rúðleiki og fet eru afar misjöfn að gæðum. Staka gefur stór og afar myndarleg hross sem eru þjál í vilja og fara mjög vel í reið með góðum fótaburði. Staka hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið. O ktavía frá F eti Hryssan í þriðja sæti er Oktavía frá Feti. Hún er undan Burkna frá Feti og Ó felíu frá G erðum. Ræktandi hennar er Brynjar Vilmundarson en eigendur eru Þormar Andrésson og Æ var Ö rn G uðjónsson. Oktavía er með 121 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 10 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,24 aðaleinkunnar og voru þau sýnd við meðalaldur 5,8 ár. Dómsorð afkvæma: Oktavía gefur hross í meðalstærð. Höfuðið er skarpt með vel borin eyru. Hálsinn er reistur og grannur. Baklínan er fremur góð og lendin öflug, afkvæmin eru samræmisgóð, sívöl og hlutfallarétt. Fætur eru ekki sterklegir og fremur nágengir. Hófar hafa hvelfdan botn og prúðleiki er um meðallag. Afkvæmin eru flest klárhross með úrvalstölt bæði á hægu og hröðu. Það er takthreint, rúmt og hágengt en misskrefgott. Brokkið takhreint með góðri skreflengd og fótaburði. Aðeins eitt afkvæmanna er vel vakurt. G reiða stökkið er ferðmikið með góðum fótaburði og sama á við um það hæga. Fetið er takthreint. Oktavía gefur fínleg, framfalleg og léttbyggð hross sem að uppistöðu eru klárhross. Þau fara glæsilega í reið með mikinn vilja og þjálni. Oktavía hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og þriðja sætið. S kíma frá K vistum Hryssan í fjórða sæti er Skíma frá Kvistum. Hún er undan fyrstu verðlaunahestinum Kráki frá Blesastöðum 1A og Skálm frá Berjanesi. Ræktandi hennar og eigendur eru Kvistir ehf. Skíma er með 121 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 9 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,09 aðaleinkunnar og voru þau sýnd við meðalaldur 5,6 ár. Dómsorð afkvæma: Skíma gefur hross í meðalstærð. Höfuðið er meðalfrítt en hálsinn góður með frekar skásetta bóga. Bakið er burðugt, breitt og vöðvafyllt, samræmið hlutfallarétt og jafnvægisgott. Fætur eru þurrir en stundum grannir en lítið snúnir. Hófar eru fremur efnismiklir með hvelfdan botn og vel lagaðir. P rúðleiki er í meðallagi en nokkuð misjafn. Afkvæmin eru bæði klár- og alhliðageng, ef skeiðið er til staðar er það nokkuð skrefgott en skortir svif. T öltið er takthreint léttstígt og með góðri lyftu, bæði á hægu og greiðu. Brokkið er takthreint og fjaðrandi með góðum fótaburði, greiða stökkið er skrefgott og það hæga takthreint, léttstígt með góðri fótlyftu. Fetið er takthreint en skrefstærð misjöfn. Skíma gefur framfalleg léttstíg hross með góða yfirlínu. Þau fara afar vel í reið með góðum fótaburði, bæði viljug og þjál. Skíma hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fjórða sætið. G ifting frá H ofi I Hryssan í fimmta sæti er G ifting frá Hofi 1. Hún er undan heiðursverðlaunahestinum Hágang frá Narfastöðum og Vöku frá Hofi 1. Ræktandi hennar og eigandi er Þorlákur Ö rn Bergsson. Vaka er með 118 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunnar en hún á 11 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,23 í aðaleinkunn og voru þau sýnd við meðalaldur 5,6 ár. Dómsorð afkvæma: G ifting frá Hofi gefur hross í rúmu meðallagi. Höfuðið er skarpt með vel opin augu, hálsinn er langur með góða yfirlínu en reising og setning er misgóð. Bakið er burðugt með öfluga lend en hún getur verið gróf. Afkvæmin eru langvax in og sívalvax in en stundum brjóstdjúp. Fætur eru þurrir og fremur öflugir en geta verið nágengir bæði að framan og aftan. Hófar hafa hvelfdan botn, prúðleiki er í góðu meðallagi. Afkvæmin eru alhliðageng með rúmt tölt sem er misskrefgott, hæga töltið hefur góðan fótaburð. Brokkið er takthreint. Skeiðið er allajafna gott en vantar stundum svif. G reiða stökkið er ferðmikið en hæga stökkið skortir svif. G ifting frá Hofi gefur viljug og þjál alhliðahross sem fara vel í reið með góðum höfuðburði. G ifting hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fimmta sætið. Alfa frá B lesastöðum 1A Hryssan í sjötta sæti er Alfa frá Blesastöðum 1A. Hún er undan heiðursverðlaunahestinum Orra frá Þúfu og Blúndu frá Kílhrauni. Ræktandi hennar er Magnús T rausti Svavarsson en eigandi er I ngjald Å m. Blúnda er með 117 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 10 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,03 í aðaleinkunn og voru þau sýnd við meðalaldur 5,2 ár. Dómsorð afkvæma: Alfa gefur afkvæmi undir meðallagi að stærð. Höfuð að jafnaði svipgott en oft heldur gróft. Hálsinn er yfirleitt hátt settur með háum herðum en yfirlína fremur bein. Bakið er oftast vöðvafyllt en stundum fremur svagt, lendin er misjöfn, stundum gróf en öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt og jafnbola. Fætur eru þurrir en sinaskil fremur lítil. Réttleiki misjafn en flest afkvæmin eru nágeng að aftan. Hófar góðir með hvelfdum botni. P rúðleiki slakur. T öltið er takthreint, rúmt og með góðri fótlyftu. G æði brokksins getur brugðið til beggja átta, en þegar það er gott er það skrefmikið og rúmt. Þegar skeið er til staðar er það ferðmikið og taktgott en það er tveir vekringar í hópnum. Stökkið er hátt og ferðmikið, en hæga stökkið fremur sviflítið. Afkvæmin eru ásækin í vilja og fara vel í reið með miklum fótaburði. Alfa hlýtur heiðursverðlaun og sjötta sætið. G róska frá D allandi Hryssan í sjöunda sæti er G róska frá Dallandi. Hún er undan heiðursverðlaunahrossunum Huginn frá Haga 1 og G nótt frá Dallandi. Ræktendur hennar eru G unnar og Þórdís en eigandi Hestamiðstöðin Dalur ehf. G róska er með 116 stig í kynbótamati aðaleinkunnar en hún á 9 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm að meðaltali 8,18 í aðaleinkunn og voru þau sýnd við meðalaldur 6,2 ár. Dómsorð afkvæma: G róska gefur stór hross. Höfuð er svipgott og eyrun vel borin. Hálsinn er langur og reistur við háar herðar. Bakið hefur að jafnaði góða yfirlínu og lendin er öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt. Sinar eru öflugar og réttleiki góður. Hófar eru efnismiklir, með þykkum hælum og hvelfdum hófbotni. P rúðleiki yfirleitt mikill. Afkvæmin eru ýmist alhliðageng eða klárhross. T öltið er rúmt með góðri fótlyftu. Brokkið er takthreint og rúmt með góðri fótlyftu. Þegar skeið er til staðar er það rúmt, skrefmikið og öruggt. Stökkið er rúmt, skrefmikið og með góðri fótlyftu. Hæga stökkið er oft fremur sviflítið en með góðri fótlyftu. Fetið er misgott, tvö afkvæmanna hafa úrvalsgott fet. RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS E lsa A lb ertsdóttir. Hryssur sem hlutu heiðurs- verðlaun haustið 2023 H ið alþjóðlega kynbótamat fyrir íslenska hestinn var reiknað eftir alla dóma ársins í lok október 2023 og birt í W orldF eng. Þ ar kom í ljós að 1 1 hryssur á Íslandi hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. M ikill fjöldi hryssna hefur náð þessum árangri síðastliðin ár m.a. vegna breytinga í útreikningi á kynbótamati en svo virðist sem kerfið sé að komast í visst jafnvægi. E f að líkum lætur mun þó kynbótamat keppniseiginleika líta fljótlega dagsins ljós og verður áhugavert að sjá hvaða breyting sú innleiðing mun hafa á niðurstöður kynbótamats þeirra eiginleika sem dæmdir eru á kynbótasýningum en áhrif keppnisdóma verður í gengum erfðastuðla. O ktavía frá F eti.S taka frá S tuðlum. S kíma frá K vistum. ifting frá Ho . A lfa frá B lesastö ðum 1 A . G róska frá D allandi. Vissa frá H oltsmúla 1 . Ólafía frá L ækjamóti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.