Bændablaðið - 14.12.2023, Page 15
Sigrún Kjartansdóttir
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó
Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira
Liðirnir slæmir eftir mikið álag
Sigrún Kjartansdóttir, leikfimi-, jóga- og Zumbakennari,
hefur hreyft sig mikið alla tíð. Mikið hefur reynt á hné
og aðra liði líkamans sem hefur ágerst með aldrinum.
Sigrún segir að eftir að hún byrjaði að taka Active
JOINTS frá Eylíf hafi henni farið að líða miklu betur í
liðunum og öllum líkamanum.
„Ég get vel mælt með Active JOINTS frá Eylíf. Það
hefur reynst mér einstaklega vel og ég finn mun þegar
ég tek það ekki,“ segir hún. „Ég er búin að taka Active
JOINTS í ár vegna eymsla og verkja í hnjánum, það
er eins og bein sé komið í bein enda sýndi myndataka
það. Ég ákvað þó að leita annarra leiða en að fara í enn
eina aðgerðina. Ég fæ oft mjög sára verki í hnén en
eftir að ég fór að taka Active JOINTS líður mér mun
betur. Það er eins og liðirnir mýkist,“ segir Sigrún sem
er mikil ofurkona og líkamsræktardrottning.
Hafði engu að tapa
„Ég hafði engu að tapa með að prófa mig áfram með
bætiefni en ég hafði ekki verið nógu dugleg að taka þau
inn né önnur vítamín. Ég hafði prófað aðrar tegundir af
bætiefnum fyrir liðina en fann lítinn sem engan mun.
Ég er að kenna líkamsrækt hjá World Class í Breiðholti
og Ólöf Rún sem framleiðir vöruna var í tímum hjá mér.
Hún sagði mér frá Active JOINTS sem væri sérstaklega
framleitt fyrir liði. Ég þekki bætiefni nokkuð vel og hef
mikla trú á því sem Ólöf er að gera. Mér finnst ekki
verra að varan er að fullu unnin hér á landi úr íslensku
hráefni. Miklir verkir skerða lífsgæðin,“ segir Sigrún og
bætir við að endalaust álag á líkamann í mjög mikilli
hreyfingu geti komið niður á liðum þegar fólk eldist.
„Svo er bara falleg hugsun í kringum það að varan sé
að fullu unnin úr hreinum íslenskum hráefnum á Íslandi
og af Íslendingum. Fyrst og fremst er það þó virknin
sem skiptir máli.“
Vörulínan frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger
LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er
á Grenivík.
„Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur
fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir
sýna fram á staðfesta virkni þeirra“ segir Ólöf
Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar
auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska
náttúruafurð, hrein hráefni sem eru framleidd af
viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ
• GeoSilica frá Hellisheiði
• Kollagen frá Grindavík
• Kítósan frá Siglufirði
• Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki
í Hafnarfirði
Hrein óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem
börn ná ekki til.
Mikið álag á æfingum
„Mér hættir til að æfa of mikið. Ég elska að hreyfa mig
og það er mín slökun og hugarró. Ég hef hlaupið fjögur
heilmaraþon og nokkur hálf maraþon og áður en ég
fór að hlaupa hafði ég keppt í samkvæmisdönsum
þar sem maður æfði tvo til þrjá tíma á dag á há-
hæluðum skóm. Ég var auðvitað yngri þá en þetta
var samt svolítið mikið,“ segir Sigrún sem er 65 ára og
hefur farið í aðgerðir á báðum hnjám og báðum
öxlum vegna álags.
„Ég myndi mæla með ACTIVE JOINTS frá Eylíf fyrir
fólk sem er í mikilli hreyfingu og alla þá sem finna fyrir
verkjum í liðum,“ segir Sigrún sem kennir Zumba og
jóga auk annarra tíma í World Class. Dóttir hennar,
Anna Claessen, er sömuleiðis líkamsræktarkennari
enda fóru þær mæðgur saman í Zumba-kennaranám
árið 2010. Zumba sem er dans með fitness ívafi hefur
verið mjög vinsæll hér á landi. „Ég fór að kenna frekar
seint en finnst það ótrúlega skemmtilegt,“ viðurkennir
Sigrún og er ekkert að spá í að hætta kennslunni.
Tímarnir hafa breyst en Sigrún segir að líkamsrækt
hafi varla þekkst þegar hún var barn að aldri fyrir utan
skólaleikfimi. Krakkar hafi hins vegar leikið sér mikið
úti í brennibolta og þess háttar leikjum. „Maður sá
ekki fólk hlaupa þegar ég var að alast upp og ef einhver
gerði það var hann talinn skrítinn,“ segir hún og hlær.
Ragnar Alfreðsson
Trésmiður
Mælir hiklaust með
Stronger LIVER
Ragnar Alfreðsson trésmiður notar bætiefnið Stronger
LIVER með frábærum árangri. „Blóðið í mér hefur verið
að hlaða upp járni og fylgjast þarf náið með gildunum
því ef þau verða of há þarf að fara í aftöppun. Ég fer því
í blóðprufur á þriggja mánaða fresti en eftir að ég fór að
taka inn Stronger LIVER frá Eylíf hafa lifrargildin, sem
voru áður ekki upp á tíu, snarbreyst til hins betra. Það er
einfaldlega allt í topplagi eftir að ég fór að taka inn þetta
magnaða bætiefni sem hefur breytt ótrúlega miklu fyrir
mig,“ segir Ragnar, alsæll með árangurinn.
„Ég mæli 100 prósent með Stronger Liver því ég þekki
það af eigin raun. Ég er yfirleitt ekki ginnkeyptur fyrir
töflum eða bætiefnum en fékk ábendingu um Stronger
LIVER frá Eylíf. Í fyrstu var ég hikandi og hafði enga
trú á áhrifum þess en eftir að ég fór að lesa mér til
um bætiefnið ákvað ég að prófa. Ég var nýkominn úr
blóðprufu þar sem lifrargildin voru alltof há og fannst
ég ekki hafa neinu að tapa að gefa þessu séns. Eftir
þriggja mánaða skammt varð ég svo nánast orðlaus
yfir því hvað gildin höfðu breyst mikið þegar ég fór
næst í blóðprufu. Stronger LIVER var greinilega að
svínvirka,“ segir Ragnar, og læknirinn hans var líka hissa
á betri lifrargildum. „Ég sagði lækninum að ég væri að
taka inn Stronger LIVER og hann sagði það greinilega
virka mjög vel, sem eru sannarlega góð meðmæli.
Vitaskuld má maður ekki vera með fordóma fyrirfram
og dæma það sem maður veit ekki um. Það heillaði mig
líka að bætiefnið er unnið úr náttúrulegum og íslenskum
hráefnum,“ segir Ragnar sem mælir eindregið með
Stronger LIVER. „Nýrnastarfsemin var líka í pínu ólagi
hjá mér en þetta virðist haldast í hendur því nýrnagildin
hafa líka lagast eftir að ég fór að taka inn Stronger
LIVER. Ég er mjög ánægður og mun halda áfram
að taka inn þetta einstaka bætiefni inn fyrir heilsu
mína. Ég mæli því hiklaust með Stronger LIVER fyrir
alla sem glíma við ójafnvægi í járnbúskapnum því
ég hef þurft að fara miklu sjaldnar í aftöppun.“