Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 1
23. tölublað 2023 ▯ Fimmtudagur 14. desember ▯ Blað nr. 647 ▯ 29. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is
Íslensku jólatrén sækja enn í sig veðrið
Þ au íslensku j ólatré sem höggvin
verða til að skreyta híbý li og
umhverfi landsmanna fyrir þ essi
j ól verða væ ntanlega um 8 þ úsund
talsins. S é miðað við árið í fyrra
eru innflutt j ólatré með um 57%
markaðshlutdeild lifandi trj áa.
Alls voru rúm 18.600 lifandi
jólatré keypt fyrir síðustu jól.
Fjöldi íslensku jólatrjánna hefur
risið heldur upp á við hin síðari
ár, um tæplega 400 tré á árabilinu
2016 til 2022, skv. tölum frá
Skógræktarfélagi Íslands.
Á sama tíma hefur sala á
innfluttum dönskum normannsþin
dregist allmikið saman, úr rúmum
28 þúsund trjám 2016 í 10.600 tré
í fyrra, eða um tæpan þriðjung.
I nnflutningur og sala á jólagreinum,
einkum af eðalþini, hefur aukist.
Í fyrra voru seld íslensk jólatré alls
8.016 stykki. T ré frá skógarbændum
voru 1.700, frá Skógræktinni 1.600
og skógræktarfélögum landsins
tæplega 4.700 að tölu. Höggvin
voru jólatré og greinar að verðmæti
94 m.kr. og er þá miðað við
söluverðmæti frá framleiðanda.
Sá varnagli er sleginn að inn
í þessar tölur vantar þau jólatré
sem koma úr einstaka heimasölu
skógarbænda og þau sem fólk
heggur sjálft á einkalóðum og -landi.
M innkan di innflutningu r
„Á tímabili voru einhverjir tugir
þúsunda jólatrjáa fluttir inn til
landsins en það hefur þó breyst, m.a.
með aukinni hlutdeild gervitrjáa,“
segir Hreinn Ó skarsson, sviðsstjóri
Þjóðskóga hjá Skógræktinni. Stóru
fyrirtækin kaupi normannsþin úti
og selji hér við fremur lágu verði og
erfitt sé fyrir íslensku trén að keppa
við það.
„Aðaljólatréð er stafafura, vegna
barrheldni og kannski líka vegna
verðs og aðgengileika,“ segir Hreinn
og heldur áfram: „Rauðgrenið er
þekkt fyrir að fella barrið nokkuð
fljótt og fjallaþinurinn er dýr.
Blágrenið var dálítið notað en það
voru vandræði með vax tarlag og svo
vorum við að fá svepp í barrið seint
á haustin.
Íslenski fjallaþinurinn er líklega
flottasta jólatréð en lítið er höggvið
af honum, aðallega vegna þess
hversu lítið kemur af slíkum trjám
úr reitunum.“
Hreinn tekur sem dæmi að sé
plantað tíu þúsund plöntum á ha
komi úr því eitt þúsund jólatré.
Íslensku jólatrén eru sums staðar
tekin úr sérstökum uppeldissvæðum
en annars staðar úr skógræktarreitum
og hentar það ágætlega sem fyrsta
grisjun. Ræktendur höggva þannig
víða tré úr uppvaxa ndi ungskógum
og færa á markað.
G reinar v æ ru góð au kabú gr ein
P lantað er á móti öllum höggnum
íslenskum jólatrjám og ríflega það,
því að á milli sex og sjö milljónir
trjáplantna eru gróðursettar árlega
en þó aðeins brotabrot af því í
jólatrjáareiti. Kolefnisspor innlendu
jólatrjánna er þannig hverfandi
miðað við hin innfluttu, sem og
plastjólatrjáa.
„Það sem vantar, og væri hægt
að útvega miklu meira af, eru
jólagreinar,“ segir Hreinn. „Við
höfum aðeins verið að reyna að
koma markaðnum í gang með að
kaupa íslenskar greinar, og það gekk
þokkalega í nokkur ár, en svo hefur
áhuginn eitthvað dofnað aftur hjá
kaupendum. Í það minnsta er hægt
að útvega greinar af þin sem líkjast
þessum innfluttu, sem og af blágreni
og stafafuru. Stóri sigurinn væri ef
við gætum farið að taka einhvern
hluta af innflutningi á greinum. Það
væri fín aukabúgrein fyrir bændur,
sem dæmi,“ segir Hreinn. /s á
B ændab laðið ó skar lesendum sí num um land allt gleðilegra jó la og farsældar á komandi ári. Jó lab laðið
að þessu sinni er 9 6 sí ður, up p fullar af fré ttum, fró ðleik og skemmtiefni. T eik ning / H lynu r G au t i S ig u rðsson
G ræ nlensk fj ö lsk yld a
t ek ur v ið sauð fj á rb ú i
22
V ilj a ræ k t a næ m
og lé t t st í g h ross
32
G æ k j ö k dG æ k j ö k d
t k v ð ð j á b út k v ð ð j á b ú
48
F lugv é lar, orgel
og h and v erk
K ak ó b aunaraunir
34