Bændablaðið - 14.12.2023, Page 32

Bændablaðið - 14.12.2023, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 Í fyrsta sinn voru útnefnd tvö ræ ktunarbú ársins en bæ ði búin voru hnífj öfn að stigum. Þetta eru hrossaræktarbúin Fákshólar og Þúfur. Ræktendur í Fákshólum eru þau Jakob Svavar Sigurðsson og Helga U na Björnsdóttir en það eru þau Mette Mannseth og G ísli G íslason sem kenna sína hrossarækt við Þúfur í Skagafirði. Þetta er í annað sinn sem Þúfur hljóta þennan eftirsótta titil en síðast var það árið 2020. Ræktunarbú ársins er titill sem margir ræktendur stefna, leynt eða ljóst, að enda mikill heiður að fá viðurkenningu fyrir margra ára vinnu sem býr oft að baki hrossaræktinni. „Þetta er fyrst og fremst viðurkenning á því að ræktunin og sýningarárið hafi gengið vel. Mér finnst þetta sérstaklega gaman núna því þetta voru eiginlega allt ný hross sem við vorum að sýna. T vö voru áður sýnd en annars voru þetta átta hross sem við vorum að sýna í fyrsta skiptið og megnið fjögurra og fimm vetra,“ segir G ísli. Það að verða ræktunarbú ársins var ekki eitthvað sem þau stefndu beint að, enda erfitt að fylgjast með hvað önnur bú eru að gera og segja þau útnefninguna hafa komið sér ánægjulega á óvart þar sem svo mörg bú voru með frábæran árangur. „Hins vegar eru verðlaunin afar hvetjandi og maður hefur þau stundum bak við eyrað þegar sýningar byrja.“ L y g na og H róður fy rirferðar- miki l í þe irra ræ kt un Fyrstu hrossin sem þau Mette og G ísli kenna við Þúfur eru Friður og Lotning en þau eru fædd árið 2001 sem markar því upphafið að hrossaræktinni þeirra þar. Á undan því var ræktunin kennd við Stangarholt en úr þeirri ræktun hafa komið mörg merk hross, m.a. Baldvin, Kyrrð, Happadís og Lygna en allar þessar hryssur settu þau í ræktunina hjá sér „Lygna frá Stangarholti er ein af stofnhryssunum okkar og er hún á bak við mjög margt hjá okkur. Hún eignaðist átta hryssur og fóru sjö af þeim í ræktun hjá okkur. T vær dætur hennar hafa nú þegar hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, þær Kyrrð og G rýla,“ segir G ísli en þau hafa ræktað fjórar heiðursverðlaunahryssur í gegnum tíðina, þær Kyrrð frá Stangarholti ( 2020) , Happadís frá Stangarholti ( 2020) , Lýsingu frá Þúfum ( 2022) og G rýlu frá Þúfum ( 2022) . Lýsing og Happadís eru undan Hróðri frá Refsstöðum sem er einnig áberandi í ræktun þeirra G ísla og Mette. Þau G ísli og Mette búa að því að hafa mjög svipaðan smekk á hrossum og eru því mjög sammála um hvernig hross þau vilja rækta en þar skiptir gangrými og geðslag mestu máli. „Við erum bæði hrifin af léttleika í allri merkingu þess orðs. Við leitumst við að rækta hross sem við höfum gaman af að ríða sjálf. Hross sem eru létt, næm og léttstíg og eiga auðvelt með að bera sig. Þau eru ekki öll þannig okkar hross en það er samt markmiðið,“ segir G ísli. Það að þekkja hrossin sem þú ræktar undan getur skipt sköpum þegar kemur að því að para þau saman og eru margir hrossaræktendur á því að það veiti þeim oft ákveðið forskot fram yfir aðra. Þar eru G ísli og Mette engin undantekning en þau reyna að kynnast sínum hryssum sem best áður en þær eru settar í ræktun og eru því oftast ekki að halda þeim fyrr en þær eru orðnar sjö til átta vetra, þó eru undantekningar þar á. „Við viljum fá að kynnast þeim vel og vita hvaða kostum þær búa yfir. Ekki er verra að geta komist í eins og eina hestaferð með þær til að kynnast þeim við alvöru aðstæður. Það er eins með stóðhestana. Við notum sjaldan stóðhesta sem við höfum ekki prófað og aldrei hesta sem við höfum ekki séð með eigin augum. Það er líka þægilegt að þekkja foreldrana vel þegar maður fer að temja afkvæmin. Þú færð til dæmis eitthvað svipað vandamál og þegar þú varst að temja mömmuna. Þú hefur þá lært af mistökunum sem þú gerðir kannski þá og reynir að gera betur. Ekki síst kann maður að vinna úr styrkleikunum sem skiptir eiginlega mestu máli. Það styttist í að við þekkjum fjóra og jafnvel fimm ættliði aftur í tímann og sú vitneskja kemur vonandi til með að fleyta okkur fram á veginn,“ segir G ísli. Strengu r h æ stdæ mda fjögu rra v etra h ros sið Frá Þúfum voru sýnd 10 hross í kynbótadómi og var meðalaldur þeirra 4,9 ár. Fremstan í flokki má nefna stóðhestinn Streng frá Þúfum en hann er hæst dæmdi fjögurra vetra hesturinn í ár og næsthæst dæmdi fjögurra vetra hesturinn frá upphafi dóma með 8,65 í aðaleinkunn. Á hrossaræktarráðstefnu Fag- ráðs hlaut Strengur viðurkenningu fyrir hæstu aldursleiðréttu aðal- einkunn ársins. Strengur er undan T rymbilssyninum Sóloni frá Þúfum og Kiljansdótturinni Hörpu frá Þúfum. „Strengur er með ofsalega skemmtilegt geðslag, mjög næmur en yfirvegaður og fljótur að læra. Hann var strax efnilegur og tömdum við Mette hann til skiptist í vetur og sumar. Ég vildi að Mette myndi sýna hann en hún samþykkti það með því skilyrði að ég riði honum á yfirlitinu. Frábær hestur sem gaman verður að halda áfram með,“ segir G ísli. Á h ugi og v inna á bak v ið árangu rinn Það er mikið starf að reka hrossaræktarbú og árangur búsins ekki tilviljun. Að baki liggur mikil vinna og áhugi en þau hafa, ásamt starfsfólki, séð alfarið um tamningu hrossanna sem þau hafa verið að sýna undanfarin ár. „Að baki svona árangri eins og í ár liggur mikill áhugi og vinna. Ég tel mjög mikilvægt að passa upp á það að klára verkefnin. Ef maður hefur séð eitthvað í trippi einhvern tímann í uppeldinu, þá leitast maður við að ná því fram. Ekki gefast upp einhvers staðar á miðri leið. Það eru heldur ekki alltaf hrossin sem virðast mest spennandi í byrjun sem verða best. Allt í einu getur eitthvert hross sem þér leist minna á tekið fram úr öðrum á leiðinni ef þú gefur þeim sama tækifæri. Ekki afskrifa eitthvað eftir tvo mánuði þó það sé ekki farið að sýna þér eitthvað virkilega spennandi. Þau gætu orðið mikið betri en hin þegar upp er staðið.“ M iki ll fjöldi ræ kt enda með góð h ros s Það er ekki hægt að setjast niður með hrossaræktendum ársins án þess að spyrja þau hvernig þeim líst á ræktunarstarfið í dag. „Kerfið er að verða betra að finna bestu hrossin. Hrossin í heild hafa stórbatnað og það er fjöldi ræktenda með góð hross. Eins og öll þessi bú sem voru tilnefnd núna og fleiri sem komust ekki á þann lista. Þetta er orðinn svo breiður hópur góðra hrossa og ef maður lítur til baka þá hefur svo margt breyst til batnaðar síðustu árin. Ég efast ekki um að það haldi bara áfram,“ segir G ísli að lokum. Arctic Trucks Kletthálsi 3, 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | info@arctictrucks.is Opið alla virka daga 8-17 | www.arctictrucks.is | Arctic Trucks á Íslandi dekk á kynningarverði! Frábær dekk hönnuð í Evrópu. Vönduð efni og góð hönnun skila dekkjum með góða endingu, grip og áreiðanleika við alls konar aðstæður. Fáanleg í flestum stærðum fólksbíla, jepplinga og jeppa. Frábært alhliða jepplingadekk sem hentar jafnvel á malbiki og á grófum slóðum. Gott grip í snjó og hálku. Hörkufínt jeppadekk sem veitir stöðugleika og gott grip þegar mest á reynir í erfiðum aðstæðum. Öruggt heilsársdekk sem virkar vel við allar aðstæður, sumar og vetur. Nýtt hjá Arctic Trucks dekk! G í sli G í slason, sem t ó k v ið v erð launum og Brynj a A m b le G í slad ó t t ir, d ó t t ir h ans, eft ir afh end ingu v erð launa á h rossaræ k t arrá ð st efnu F agrá ð s í V í ð id al í R eyk j av í k . Mynd / h f Vilja rækta næm og léttstíg hross – Mette Mannseth og Gísla Gíslason á Þúfum í Skagafirði eru hrossaræktendur ársins Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is G í sli sý nir h é r st ó ð h est inn St reng frá Þ ú fum , h æ st d æ m d a fj ö gurra v et ra h ross á rsins. Mynd / K ollaG r. Í DEIGLUNNI

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.