Úrval - 01.11.1962, Blaðsíða 11
HIÐ MIKLA FLJÓT ATLANTSHAFSINS
27
konar reki. Hin litla vík, Keflavík
í Faxaflóa, sem nú er víðkunn
fyrir hinn geysistóra flugvöll, er
talin bera nafn af trjábolum, sem
reknir fundust f víkinni. Fyrir því
var álitið, að grein úr Golf-
straumnum falli alla leið norður
um íslandsstrendur, og það hefur
sannazt af rannsóknum Danans
Irminger fyrir miðja síðustu öld.
Frá Vesturströnd Islands heldur
hann yfir að Grænlandsströnd, þar
aftur suður á bóginn og meira að
segja lítið eitt norður með vestur-
strönd Grænlands er hægt að finna
hið hlýja og salta vatn Golf-
straumsins.
Þessi grein, er til íslands fer,
hefur verið nefnd Irmingerstraum-
ur. Hann er aðeins hliðargrein af
sjálfum Golfstrauminum, sem fer
milli Færeyja og Shetlandseyja
norður með Noregsströnd. Þar
klofnar hann í tvennt, önnur kvísl-
in fer norður undir Spitsbergen
og hin smeygir sér alla leið inn í
Barentshaf. Spitsbergen kvíslin
heldur sfðan áfram sem neðansjáv-
arstraumur undir íshafslögunum
og hefur rússneskur vísindaleið-
angur á þeim slóðum fundið hana
ailt norður undir sjálft heimsskaut-
ið.
Hraðinn í Golfstrauminum var
þegar eftir að siglingar hófust um
Atlantshaf, ærið mikilsverður. —
Golfstraumurinn var þó ekki sett-
ur inn 'á sjókort fyrr en 1678, og
almermt var hann ekki að finna á
sjókortum fyrr en eftir 1770. Það
er fróðlegt að kynna sér hvernig
á því stóð.
Það var einmitt árið 1770, að
kvörtun barst til yfirvaldanna í
Englandi um það, að póstskipið
til New York hefði verið 14 dög-
um lengur á leiðinni en amerískt
kaupskip, sem kom frá Englandi
til Rhode Island, skammt frá New
York. Menn lögðu því til, að enska
póstskipið færi einnig til Rhode
Island, ef það gat haft í för með
sér svo mikinn tfmasparnað. —
Kvörtun þessi barst Benjamin
Franklin, sem á þeim tíma var að-
alpóstmeistari f ensku nýlendun-
um í Ameríku.
Hann hefur sjálfur sagt svo frá:
,,Mér fannst það næsta undar-
legt, að verið gæti slfkur munur
milli staða, sem varla voru meira
en dagleið hvor frá öðrum ... Fyr-
ir því hélt ég, að þetta byggðist
allt á misskilningi eða röngum
söguburði. Skipstjóri frá Nan-
tucket, er ég þekkti, var einmitt
þá staddur í London og ráðgaðist
ég við hann um málið. Hann féllst
á, að þetta gæti haft við rök að
styðjast, en mismunurinn stafaði
af því, að skipstjórarnir frá Rhode
Island þekktu Golfstrauminn, en
hann þekktu hinir ensku skip-
stjórnarmenn á póstskipinu ekki....
Hann bætti þvf við, að stundum,
þegar byr væri lítill, bæri straum-