Úrval - 01.11.1962, Page 19
HEILAÞVOÐI ALÞÝÐUDÖMSTÓLINN
35
Dag nokkurn var hann leidd-
ur fyrir liSsforingja, sem kom
rakleitt frá Peking. Hét hann
])ví, að málið gegn Haynes skyldi
látið niður falla, ef hann vildi
ganga í þjónustu kommúnista-
stjórnarinnar, þar eð frábær
þekking hans á landi og þjóð
mundi koma henni að miklu
gagni, enda mundi honum laun-
að samkvæmt því. Ráðlagði hann
Haynes að hugsa þetta tilboð, og
gaf síðan merki um að hinn ald-
urhnigni luingurtærði trúboði
skyldi leiddur á brott.
John Haynes hafði alltaf verið
trúarsterkur og lengi fundið að
guð væri sér nálægur, en þó
aldrei eins og þessa nótt. Og
skyndilega vissi hann, að hann
hafði fengið bænheyrslu. Hann
náði aftur fullu valdi á sér. „Um
leið vissi ég hvað gera skyldi.
Og enn varð mér það Ijóst að
dómararnir væru ekki annað en
stráklingar. Ég þakkaði guði og
sofnaði vært, í fyrsta skiptið
margar undanfarnar vikur.“
Þegar John Haynes var leidd-
ur næst i réttarsalinn, nokkrum
dögum seinna, bar dómsforset-
inn naumast kennsl á hann. Hann
gekk hnarreistur inn í salinn,
svipurinn var ákveðinn, röddin
styrk og skýr.
Hingað til hafði honum ekki
verið leyft að tala kínversku
fyrir réttinum. Dómararnir vildu
stimpla hann sem útlending,
Bandaríkjamann, og túlkur verið
látinn þýða orð hans, oft óná-
kvæmt, en hann var farinn að
láta sér það á sama standa. En
nú fylgdist hann með af athygli,
og þegar túlkurinn þýddi orð
hans rangt, tók Haynes sjálfur til
máls á kínversku, leiðrétti hann
og. skýrði mál sitt, enda kunni
hann vandaðri kínverzku en
nokkur dómaraöna. í fyrsta
skipti leyfði dómsforsetinn hon-
um að gera grein fyrir máli sínu,
en bauð að túikurinn skyldi
leiddur á brott — og var hann
skotinn fyrir að hafa orðið til
að draga úr virðingu alþýðu-
dómstólsins — en réttarhöldun-
um var haldið áfram á kínversku.
Þegar dómurunum tólcst ekki
að fá Haynes til að játa á sig
njósnir fyrir bandarísku ríkis-
lögregluna, eða nokkurn aðila
annan, tóku þeir að spyrja hann
um afstöðu hans til kínversku
þjóðernissinnanna. Hafði hann
ekki jarðsungið foringja þeirra í
Kwie-yang, sem kommúnistar
tóku af lífi? Jú, Haynes viður-
kenndi það. Og hann kvað sig
langa til að láta þá heyra bæn-
ina sem dóttir foringjans hefði
beðið fyrir þeim, sem tóku hann
af lífi.
Haynes reis úr sæti, stóð tein-