Úrval - 01.04.1964, Page 151
LANDNEMARNIR AF „MAÍBLÓMINU‘
141
hiiini yfirvofandi uppreisn.
Nú var aðeins eitt eftir, að
kjósa landsstjóra. John Carven
var kosinn til eins árs með öll-
um greiddum atkvæðum. Leið-
togunum létti mjög við þessi
málalok, og nýjar vonir tendruð-
ust í brjóstum þeirra. Síðan
héldu allir upp á þiljur til þess
að skoða Nýja Heiminn.
FJÁRSJÓÐVR í JÖRÐU
„Allt virðist mjög veðrað, og
landið, sem var mest allt skógi
vaxið, bar trylltan og villimann-
legan svip.“
Með þessmn orðum lýsti Willi-
am Bradford landi því, sem
ferðalangarnir þráðu nú svo
heitt að mega rannsaka. Ehls-
neyti Maíblómsins var nú á
þrotum, svo að flokkur manna
iagði nú af stað til lands í skips-
bátnum til þess að höggva við.
Sandrif hindruðu þá í að kom-
ast alla leið upp í fjöru á bátn-
um, svo að þeir urðu að vaða
drjúgan spöl í þriggja feta djúp-
um sjó, og voru viðtökur þessar
lieldur kaldranalegar, en þetta
var í byrjun nóvember. En hrifn-
ing þeirra, er þeir stigu á fasta
jörð, var slík, að þeir létu þetta
ekkert á sig fá.
Mennirnir höfðu stigið á land
á odda skagans, þar sem bærinn
Provincetown stendur nú. Þeir
þrömmuðu strax inn í skógar-
þykknið og hjuggu þar nægar
birgðir af ilmandi eini. Er þeir
komu með við þennan út til
Maiblómsins, ilmuðu neðri þil-
förin yndislega og farþegarnir
fengu nú heitan mat i fyrsta
sinn eftir margar vikur.
Þeir höfðu ekki fundið neitt
vatn i skóginum, og þvi dró
það úr löngun þeirra til þess
að stofna nýlendu þarna. Menn-
irnir vildu þvi ólmir leita bet-
ur að heppilegu landssvæði.
Landnemarnir höfðu keypt sér
10 tonna bát, sem skipt hafði
verið í fjóra hluta, er geymdir
höfðu verið á fallbyssuþilfari
skipsins á leiðinni. En samskeyti
borðanna i bátnum höfðu gliðn-
að, og bátsmaðurinn sagði, að
það tæki margar vikur að gera
svo við bátinn, að hann yrði
sjófær. En bát þennan höfðu þeir
ætlað að nota í rannsóknarleið-
öngrum meðfram ströndinni, þar
sem Maíblómið ætti erfitt með
að sigla vegna grynninga.
Hinir djarfari meðal landnem-
anna héldu þvi fram, að það
gengi brjálæði næst að ætla að
bíða eftir því, að gert yrði við
bátinn. Þeir vildu rannsaka
landið fótgangandi, og eftir
nokkurt hik samþykkti Carver
landsstjóri að leyfa 16 mönnum
að fara í land. Hann sagði, að
þeir mættu ekki vera lengur en