Úrval - 01.12.1965, Side 12
10
ÚRVAL
ur síns. í viðureign ríkisstjórnanna
í Washington og Bern árin 1945—
1946 um þýzkar inneignir í sviss-
neskum bönkum, tókst bandarísku
stjórninni loks að fá þá svissnesku
til þess að láta af hendi 60 milljónir
dollarg eftir að hafa lagt mjög hart
að henni, en hinar þýzku inneignir
eru álitnar hafa numið 750 millj.
dollara samtals. En það er ekki eins
almennt vitað og varla álitið hróss-
vert, að svissneska stjórnin sá svo
til, að öllum þýzkum borgurum,
sem slíkar inneignir voru gerðar
upptækar hjá, var síðan endur-
greitt að fullu, því að henni fannst
bæði heiður sinn og hið annálaða
hlutleysi sitt, sem hún mat svo mik-
ils, vera í veði.
Fyrir nokkrum árum náði stjórn
Francos í lista yfir spænska inni-
stæðueigendur í svissneska bankan-
um Société de Banque Suisse með
fullum nöfnum og heimilisföngum.
Sumir bankastjórar í Genf segja
alveg blákalt að einhverjum hafi
verið mútað, þótt ýmsar aðrar til-
gátur hafi að vísu einnig komið
fram. Einhver bankaumboðsmaður
kann að hafa verið ofboðslega kæru-
laus. Spænska lögreglan kann að
hafa handtekið einhvern banka-
umboðsmann og viðhaft vissa teg-
und af „fortölum“, t. d. ógnað hon-
um með löngum fangelsisdómi. Að
minnsta kosti voru slíkar eignir
þeirra spænsku borgara, sem á list-
anum vöru, metnar á 2.9 milljónir
dollara ög þeim dæmt að greiða þá
upphæð til spænska ríkisins og þar
að aúki sekt, sem nam sömu upp-
hæð. Þetta varð að einu regin-
hnéýksli' Á meðal innistæðueigenda
voru ýmsir háttsettir menn í röðum
Falangistaflokks Francos og kon-
ungssinna. Það er gert ráð fyrir því,
að slíkt hendi aldrei nokkru sinni
svissneskan banka. Og það gerir
það næstum aldrei.
Það er ekki aðeins um það að
ræða, að svissneska stjórnin standi
að baki hinna alþjóðlegu laga-
ákvæða (sem veita einkaeignum
forgangsrétt), heldur sér hún um,
að fyrir hendi sé 135% gulltrygg-
ing fyrir svissneska frankann. Og
allir reyndir fjármagnseigendur um
víða veröld gera sér grein fyrir
báðum þessum staðreyndum.
Hvers konar fólk þarfnast eða á-
lítur, að það þarfnist þess að opna
innistæðureikning í svissneskum
banka? Skipta má slíku fólki í 4
aðalflokka:
1. Fólk, sem elskar landið sitt og
myndi fórna lífi sínu fyrir það,
en hefur einnig misst allt traust
á ríkisstjórn þess, þegar þess
eigin peningar eru annars vegar.
2. Menn, sem skipa vellaunaðar,
meiri háttar stöður, sem eru jafn-
framt ótryggar til frambúðar.
3. Fólk á svæðum, þar sem ríkir
stöðug hætta á stríði, stjórnar-
. byltingum eða verðbólgu.
4. Karlar og konur, sem hafa við
skattavandamál að etja.
í fyrsta flokknum má meðal ann-
ars telja alla efnaða Frakka, allt
frá stjórnarbyltingunni árið 1789
til daga de Gaulles, ítalska iðnrek-
endur allt frá lokum fyrri heims-
styrjaldarinnar til daga Mussolinis
og síðan aftur frá árinu 1963, flesta
Þjóðverja á þriðja áratug aldar-
innar, sem áttu erlendan gjaldeyri