Úrval - 01.12.1965, Síða 44
mitt auma bak
Það er mikil tízka að kenna
brjósklosi um bakverkinn,
en linir bakvöðvar eru
miklu algengari orsök til
eymslanna.
Eftir Hans Kraus M.D.
f þú þjáist af þrautum
í baki, þá eru miklu
meiri líkur til að þær
stafi af of linum eða
of stríðum vöðvum,
nema hvorttveggja sé, heldur en af
raunverulegri vefrænni skemmd.
Baksjúklingar hafa oftast sér-
staklega viðkvæma og auma bletti
hér og þar um líkamann, tíðast á
hálsi, herðum, ofan eða neðan til
í bakinu eða mjöðmunum. Þessi
eldsáru eymsli á afmörkuðum blett-
um geta stafað af samfelldri vöðva-
spennu eða herzlu. Blettirnir geta
orðið svo viðkvæmir, að það sé
eins og hnífur sé rekinn í manninn,
ef stutt er á þá, og þeir koma fljót-
lega fram, jafnvel þó að um minni-
háttar bakveiki sé að ræða, ef ekk-
ert er að gert. Þegar svo eymsla-
bletturinn er einu sinni myndaður,
verða verkirnir jafnt og þétt sár-
ari og tíðari.
Þegar við læknar skoðum eða
rannsökum sjúkling, er þjáist af
stöðugum bakverk, sem við teljum
að stafi af of linum eða og stríðum
eða spenntum vöðvum, þá leitum
við eftir eymsla blettunum. Ef við
finnum þá ekki, hefjum við þjálf-
unar- eða æfingaleikfimi strax og
dregið hefur úr mestu bakþrautun-
um. Til þess að lina þrautirnar not-
um við deyfilyf af ýmsu tagi en
ef við aftur á móti finnum sér-
stakan eymsla stað, þá sprautum við
í hann cocaini. Sársaukinn hverf-
ur við lyfið, en það gerist einnig,
að við þrýstinginn frá sprautunni,
hverfur orsökin til eymslanna, og
þá er hægt að byrja þjálfunina.
Sumir sjúklinganna virðast verða
fyrir vonbrigðum, þegar þeim er
sagt að sársaukinn stafi frá þessum
aumu vöðvum, en ekki brjósklosi,
sem orsakast af því að liðbrjóskið
rifnar og fer úr skorðum og þrýstir
42
Catholic Digest