Úrval - 01.12.1965, Blaðsíða 60

Úrval - 01.12.1965, Blaðsíða 60
58 ÚRVAL gefið merki um að koma upp að skipshliðinni og eiga tal við yfir- menn. Varð það úr að Ósmann gekk um borð með skotvopn sitt í hendi. Mæltist skipherra til þess, að ís- lendingur sýndi fimi sína og skyti til marks. Varð honum sem fleirum næsta starsýnt á þennan fagur- vaxna hægláta mann og skotvopn hans. Því næst var skotmark ákveð- ið. Jón miðaði og hitti auðveldlega. Er þá mælt. að skipherra hafi boð- ið Jóni að freista aftur, en lagði nú gullpening ofan á byssuhlaupið, svona til að reyna, hve örugglega hinn héldi vopni sínu til hæfis, þá er skotið riði af. En sva traust tak hafði Ósmann á byssu sinni, að ekki haggaðist gullpeningurinn að heldur. Þá Jón hann síðan að gjöf fyrir komuna. Allar þessar sögur af Jóni Ós- mann eru — að því ég bezt veit — alveg sannar. Eru margar fleiri til, þótt ekki verði þær birtar hér. Ég held, að Jón hafi aldrei búið í Utanverðunesi, þótt þar ætti hann heimili. Faðir hans bjó þar og lifði son sinn. Kvæntur var Jón. Hét kona hans Guðný Pálsdóttir ættuð frá Syðri-Brekkum. Ekki varð sam- búð þeirra löng. Guðný andaðist eftir fárra ára hjónaband. Féll hún, sem margir aðrir á þeim tímum í Skagafirði fyrir hinum hvíta dauða, tæringunni. Þau áttu eina dóttur barna, sem einnig varð að hníga fyrir sama sjúkdómi, gift kona. Ekki löngu fyrir andlát Jóns Magnússonar Ósmanns réðist að Utanverðunesi kona að nafni Elín Jónsdóttir, alin upp í Brekkukoti hjá Guðríði Hallsdótur ömmusystur minni. Milli Jóns og hennar tókst djúp vinátta. Atu þau saman einn son er Jónas heitir og hefir tekið upp nafnið Ósmann, eftir föður sinn. Elín Jónsdóttir var myndarkona, gædd geysimiklu líkamlegu þreki enda dugleg með afbrigðum. Það var því um sumt líkt á komið með þeim Jóni, er og sonur þeirra með hæstu mönnum og eftir því þrekinn og fagurvaxinn sem faðir hans. Hann er nú búsettur í Kópavogi. Ég fór um vesturósinn alloft eftir að ég komst úr barnæsku, meðan Jón Ósmann gengdi þar ferjustörf- um. Þá tók ég betur eftir honum, kynntist manngæðum hans og drenglund. Dáðist að þessum ýtur- vaxna manni með frítt, en dálítið stórskorið andlit. Sá mörg hraust- leg handtök hans á sveifinni, þegar tveir til þrír miðlungsmenn hnik- uðu henni ekki, er vont var að ferja. Aldrei sá ég honum vinnast það erfitt og sjaldan gat ég beinlínis orðið þess augljóslega var, hvort hann var undir áhrifum áfengis eða ekki. Slíkur heljarskrokkur þoldi hverjum manni betur. Það var ávallt ævintýrablær yfir minni komu þangað. En af sjálfum staðnum bauð mér alltaf ógn. Þessi hyldjúpi, dimmi ós, sem lá út í fangið á hvelfdum holskeflum norðan áttarinnar, drungalegur viðsjáll — margra- manna gröf. Og svo hinn afrenndi einbúi í grjótbyrgi sínu, allt hjálpaðist að til að slá einhverjum ævintýraþrungnum en geigfullum töfrablæ yfir þennan langrómaðasta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.