Úrval - 01.12.1965, Page 88

Úrval - 01.12.1965, Page 88
86 ÚRVAL hans niður til sín og kyssti hann, að hann sýndi þess nokkur merki, að hann hefði orðið var við nærveru hennar. Hann stirðnaði upp og hörf- aði undan. „Nú, þú. lítur alveg út eins og Indíáni, John!“ sagði hún „Þú geng- ur jafnvel eins og þeir. Hlutskipti þitt hefur verið grimmilegt, en guði sé lof, að lífi. þínu var þyrmt og að þú ert nú kominn heim til okkar aftur!“ Sannur Sonur lét sem hann heyrði ekki orð hennar. Hann sveipaði sig algerri fáskiptni, líkt og hann væri að vefja utan um sig teppi. Móðir hans bætti skyndilega við full sam- úðarr „Er hann alveg búinn að gleyma enskunni?" „Hann skilur heilmikið, ólítum við,“ sagði faðir hans, „En við vit- um ekki enn, hversu mikið hann getur talað. Hingað til hefur hann aðeins sagt örfá orð á ensku.“ „Þú hefur verið lengi að heiman, John,“ sagði móðir hans blíðlega. „Þú hefur eltki fengið neina mennt- un. Þú hefur orðið að lifa í myrkri heiðni og fávísi. Nú verðurðu að vinna upp þennan glataða tíma. Þú ert næstum orðinn fullvaxta maður, Hið þýðingarmesta er nú, að þú lærir þitt eigið mál, enskuna. Við skulum byrja nú á stundinni. Ég er móðir þín, Myra Butler. Þetta er faðir þinn, Harry Butler. Bróðir þinn er Gordon Butler. Og þú ert John C. Butler. Endurtaktu þetta nú. John Cameron Butler.“ Drengurinn sagði ekki orð. Hann stóð þarna aðeins og lét sig engu yarða, hvað hún sagði. „Ég vil, að þú hafir nafn þitt eftir mér. Segðu John, John!“ Frú Butler greip í handlegg honum og hristi hann. Það var augsýnilegt, að drengur- inn skyldi hana. Hann roðnaði af reiði. Hann flýtti sér að segja eitt- hvað á Delawaremáli. Del þýddi það tafarlaust. „Hann segir, að nafn hans sé Lenni Quis. Á ensku væri það Uppruna- legur Sonur eða Sannur Sonur.“ „En nú er hann ekki lengur hjá Delaware-Indíánunum. Hann er heima á heimili okkar, og hér verð- ur han að ganga undir sínu raun- verulega nafni og viðurkenna það.“ Drengurinn virti hana fyrir sér með dökkum, brennandi augum, „Sannur Sonur mitt rétta nafn,“ sagði hann á klaufalegri ensku. Hann átti mjög erfitt með að bera fram stafinn r. „Faðir minn og móðir gefa mér þetta nafn.“ „Hann á við föður og móður í Indíánaþorpinu,“ skaut Del fram í. Frú Butler roðnaði. „Jæja ég held, að þetta sé alveg nóg í dag,“ sagði hún. „Hann hefur að minnsta kosti talað fyrstu ensku orðin sín.“ Hún tók upp fatnað, sem lá við hlið hennar og hún hafði verið að gera við, Drengurinn fann til lam- andi þvingunarkenndar, þegar hann sá, að þetta voru ljósgráar síðbux- ur hvítu mannanna, „Yengwe“-bux- ur og gulur jakki. Hún hélt áfram máli sínu: „Þegar ég heyrði, að þú værir að koma heim, fékk ég' þessi föt lánuð hjá Alec frænda þínum. Nú vil ég að þú íarir í þau, svo að ég' geti séð, hvernig þau fara þér.“ Drengurinn starði með andúð á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.