Úrval - 01.12.1965, Page 109

Úrval - 01.12.1965, Page 109
LJÓSIÐ í SKÓGINUM 107 tóku hinir undir viðlagið, ráku upp grimmdarleg hreystiöskur og líktu eftir dauðahryglu. Sannur Sonur fann til villts unaðar, sem hann hafði aldrei kynnzt áður. Fyrir aug- um sínum sá hann rauða þoku, sem litaði allt rautt sem blóð. Hann varð gagntekinn af villtari ofsa en hann hafði áður fundið til í nokkrum leikjum sínum. Síðan gekk Thitpan á undan þeim út. úr ráðstefnuhúsinu, en hinir fylgdu á eftir honum í halarófu. FYRSTU HÖFUÐLEÐRIN Sannur Sonur gerði sér grein fyr- ir því í upphafi leiðangursins, að austanvindurinn blés á móti þeim öðrum megin, en á hina hliðina var vindurinn suðlægur. Hann fann þetta af hreyfingu mosans á trján- um og halla sólargeislanna. Þeir héldu yfir Ohiofljótið og klöngruð- ust upp ókunnar hæðir hinum meg- in. Svo skiptu þeir liði í skógi vöxn- um dal. Annar flokkurinn hélt á- fram að þræða stíginn undir leið- sögn Svarts Fisks, en hinir héldu í suðurátt ásamt þeim Thitpan og Cuyloga, en Vantrúarseggur sagði, að þar væri að finna kofa hvítra manna. Drengirnir tveir voru í hóp Svarts Fisks. Síðari hluta dagsins mættust hóp- arnir svo að nýju. Sannur Sonur tók strax eftir því, að menn Thit- pans komu með talsvert herfang og einnig sitt hvað fleira. Það var sem heitur straumur færi um æð- ar honum, er hann sá fyrstu höfuð- leðrin. Eitt þeirra var dökkrauð- leitt og Ijótt og líktist einna helzt ryðguðu járni, ananð var brúnt með gráum hárum á víð og dreif, og svo var enn eitt minna með löngu, fíngerðu hári, mjög Ijósu. Það líktist einnna helzt ungum víðisprotum snema á vorin. „Jukella! Æ, ég vildi, að ég hefði verið svona heppinn að fá að vera með þeim!“ sagði Hálfa Ör. Drengirnir hlustuðu á frásögn af bardaganum, er safnazt var saman kringum eldinn um kvöldið. Her- kænskubrögðum var lýst nákvæm- lega, hverju merki, hverri hreyfingu, blekkingunum, sem hepnuðust full- komlega, og fyrirsátinni, einnig hin- um aumu tilraunum hvítu mann- anna til þess að komast undan á flótta eða biðja sér griða. Lýst var hinum heimskulegu og árangurs- lausu orðum, sem þeir höfðu hróp- að upp, þegar þeir báðu til þessa Guðs síns án nokkurs árangurs. Þau orð stoðuðu hvítu mennina lítið núna. Drengirnir fylgdust ákafir með því, er þeir, sem höfuðleðrunum höfðu náð, þurrkuðu þau, teygðu þau á rauðum gjörðum og skáru af allar ójöfnur á jöðrunum með hnífum sínum. Hálfa Ör tók upp skinnbútana, sem þeir hentu. Hann saumaði litlu bútana saman með þræði úr dádýrshúð og bjó þann- ig til lítið höfuðleður handa sjálf- um sér. Drengirnir settu það síðan upp á staur, dönsuðu í kringum það og sungu sigursöngva, er lýstu djúpri fyrirlitningu á hvítu mönn- unum. En Sannur Sonur gat ekkLgleymt' litlu fínlegu.s'kinnbútunum með löngu mjúku hárunum, sem voru á litinn eins og ungir víðissprotar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.