Úrval - 01.12.1965, Page 116

Úrval - 01.12.1965, Page 116
114 ÚRVAL að geta horft í augu systra hans, sem halda, að regnboginn endi beint uppi yfir honum? Bræður! Það er auðveldara fyrir mig að berjast einn gegn ykkur öllum en að snúa heim aftur og segja, að Cuyloga hafi staðið kyrr án þess að aðhaf- ast nokkuð á meðan bræður hans brenndu son hans á báli í reiði sinni.“ Með snarleika pardusdýrsins Langrófu gróf hann hníf úr belti sér og skar á böndin, sem drengur- inn var bundinn með. Svo stóð hann þarna og beið árásar þeirra. En þeir hófust ekki handa. Stríðsmenn- irnir voru svo undrandi, að þeim féllust alveg hendur. Þeir horfðu bara á það, sem fram fór, ólund- arlegir á svip, en samt líkt og berg- numdir af þessum harmleik, sem nú var leikinn. Nú sáu þeir fyrir sér hinn mikla Cuyloga í allri sinni hreysti og öllu sínu ærðuleysi. Eng- inn þeirra vissi, hvað hann mundi gera næst. Þegar hann sá, að þeir hikuðu við að ráðast gegn honum, sneri hann sér aftur að drengnum. Hann var ekkert blíðari á manninn en áð- ur. Jafnvel var hann nú fremur kuldalegri og virðulegri. „Sannur Sonur,“ hóf hann máls. „Þegar þú varst mjög lítill drengur, tók ég þig til fósturs og gerði þig að syni mínum. Þú varst mér sem minn eigin sonur. Ég kenndi þér að tala rétt mál. Ég kenndi þér mun- inn á réttu og röngu. Þér var kennt um veiðar og hin ýmsu veiðidýr og þau merki, sem fara má eftir, þegar leita skal bráðina uppi. Þér var kennt að veiða og skjóta. Ég sagði við sjálfan mig, að þú mund- ir sjá mér fyrir bjarnarfeiti og villi- bráð, þegar tæki að braka í mín- um gömlu beinum. Ég hugsaði sem svo, að þú mundir verða sá eldur, sem mundi hlýja mér í ellinni, þeg- ar aldur lífsins kulnar og verð- ur smám saman að ösku. Aldrei dat mér það í hug, að þú mundir snúast gegn mér og að ég yrði að senda þig aftur til hvíta fólksins þíns. Ég leit alltaf á þig sem Indí- ána. Ég hallaði mér á öxl þína sem værir þú stafur mér til stuðnings. Nú er sá stafur brotinn.“ Sannur Sonur hlustaði á orð hans hrærður í huga. „Faðir minn!“ sagði hann. „Ég mun aldrei snúa aftur til hvítu mannanna. Þeir eru mér algerlega framandi. Þeir eru óvin- ir mínir. Faðir minn! Ef þú sendir mig burt, þá verð ég að fara, en ég fer samt aldrei til hvítu mannanna." Faðir hans horfði lengi á hann, og svipur hans bar vott um hörku- legan strangleika og meðaumkun í senn. Svo hóf hann loks máls að nýju: „Sannur Sonur! Þú heldur, að þú gerir það ef til vill ekki núna. En þú munt snúa aftur til þeirra, eftir að þú ert búinn að dvelja fjarri okkur um tíma. Sannur Son- ur! Þú hefur hjarta Indíána. Þú hefur höfuð Indíána. En blóð þitt er enn þunnt eins og blóð þeirra hvítu. Það getur ekki blandazt hin- um hraustlega roða Indíánablóðsins. Sannur Sonur! Við verðum að ganga héðan á burt saman. Þegar við kom- um að vegi hvíta mannsins, verður þú að fara í aðra áttina, en ég fer í hina. Og þá munu vegir okkar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.