Úrval - 01.05.1966, Page 15
12 RÁÐ GEGN TAUGAÁLAGI
13
virðingu, allt getur þetta framkall-
að taugaspennu og álag. Hvað sumt
fólk snertir, gildir hið sama, þegar
um óvænta gesti er að ræða. Ef þér
iærist að bregðast á réttan hátt við
minni háttar óvæntum atburðum og
aðstæðum, þroskast hjá þér hæfi-
leiki til þess að bregðast á réttan
hátt við meiri háttar áföllum, þegar
— eða ef — þau koma.
5. TalaSu um vandamálin við ein-
hvern.
Ef þú talar um vandamálin við ein-
hvern, eyöir slíkt taugaspennu og
dregur úr taugaálagi, einkum hjá
þeim, sem einhver atburður eða að-
stæður snerta of náið til þess að
hann geti séð slíkt í réttu Ijósi eða
þegar um er að ræða viðkvæm mál
tilfinningalegs eðlis, sem erfitt kann
að reynast að bregðast við út frá
sjónarmiði skynseminnar.
„Sé vandamál þitt þess eðlis, að
sérfræðingur á einhverju sviði geti
fundið lausn á því, skaltu halda
strax á fund hans og hlíta ráðum
hans“, segir sálfræðingurinn dr.
Austen Riggs. Sá sérfræðingur kann
að vera prestur, hjónabandsráð-
gjafi, æskulýðsráðgjafi, læknir, vin-
ur eða ættingi.
6. Gerðu það tafarlaust.
Sé frestað að gera eitthvað í mál-
inu, magnar slíkt taugaspennuna.
Það er gott ráð að útbúa lista yfir
það, sem framkvæma verður. Þann-
ig hafa vandamálin verið flokkuð og
þeim gefið nafn og jafnvel raðað í
röð. Síðan skaltu snúa þér að lausn
þeirra eins fljótt og mögulegt er.
Taktu frá ákveðinn tíma til fram-
kvæmda þessara. Framkvæmdirnar
hafa þau áhrif, að táugaspennan
hættir að magnast.
7. Aflaðu þér þeirrar reynslu, sem
þú þarfnast.
Sá, sem þarf að ávarpa hóp
frianna, kann ef til vill að vera al-
veg miður sín af taugaóstyrk. Og
taugaspennan eykst um leið og ótti
hans vex. Annar kemst ef til vill
úr jafnvægi, vegna þess að ýmsir
atburðir gerast samtímis og nýjar
aðstæður hlaðast upp. Ef til vill
skapast skyndilega meiri háttar
vandamál, sem verður að útkljá og
krefst þess um leið, að frestað sé
að útkljá annað vandamál, sem beð-
ið hefur lausnar. Nemandi missir
kannske alveg stjórn á sjálfum sér
í miðjum prófunum.
Bezta aðferðin til þess að ráða bug
á taugaspennu og álagi er að vera
betur undir það búinn að snúast
gegn vissum aðstæðum og atvikum
og að bera nægilegt traust til eigin
hæfileika. Nemendur komast stund-
Um'í uppnám vegna þrófa, en nem-
andi, sem kann námsefnið og veit,
að hann kann það, er ekki nándar
nærri eins líklegur til þess' að bregð-
ast, þegar taugaspennan grípur
hann.
Hægt er að losna við óttahn við
að halda ræðu með því að fara á
námskeið í framsögn og ræðu-
mennsku og notfæra sér síðan það,
sem maður hefur lært þar.
:V. .í i • • ' ' '! i
8. Gerðu kvöldin friðsæl.
,,Þú verður að undirbúa drauma
næturinnar allan daginn“, segir dr.
Selye, „því að þjáist þú af svefn-