Úrval - 01.05.1966, Qupperneq 17
12 RÁÐ GEGN TAUGAÁLAGI
15
viðbrögð okkar við atburðum og að-
stæðum, sem valda og framkalla þær
kenndir, sem liggja að baki þessara
viðbragða“, segir dr. Maxwell Maltz.
„Hefði maðurinn stjórn á þessum
viðbrögðum sínum, mundu þau
þannig mynda „sálrænan vamar-
vegg“, gegn ásókn þessara kennda.
„Eftir að þú hefur fundið leynd-
ardóm hvíldarinnar og áslökunar-
innar með því að læra að láta þig
þessu sjálfráðu viðbrögð enguskipta,
mun þér veitast tækifæri til þess
að uppgötva hljóðan griðastað innra
með þér, griðastað, sem við höfum
öll þörf fyrir að leita til, griðastað,
sem til er innra með okkur öllum.
Það er trú mín, að sérhver persónu-
leiki hafi að geyma einhver,n kjarna,
einhvern griðastað, þar sem aldrei
skapast uppnám, griðastað, sem líkja
má við sjálf hafdjúpin".
12. Ástundaðu góð samskipti við
aðra. ,
Slæm samskipti þín við vinnufél-
aga, vini, ættingja og fjölskyldu-
meðlimi geta valdið því, að þú sért
haldinn stöðugri taugaspennu. Ráðn-
ingarstjórar og aðrir forstöðumenn
fyrirtækja vita ofur vel, hversu
slæm áhrif shkt hefur á vinnuaf-
köst starfsmannsins auk einstakl-
ingshamingju hans. í starfsmanna-
blaði Weirtonstálfélagsins í Weirton
í Vestur-Virginíufylki, voru eftirfar-
andi ráð eitt sinn gefin til þess að
draga úr taugaspennu og álagi:
„Láttu undan öðru hverju, og þá
munu aðrir gera hið sama gagnvart
þér.
Gerðu eitthvað fyrir aðra. Þá
muntu gleyma áhyggjum þínum og
kvíða og finna til þeirrar ánægju-
legu kenndar að hafa gert góðverk.
Vertu ekki allt of gagnrýninn
gagnvart öðrum. Reyndu að finna
hinar góðu hliðar annarra og hjálpa
þeim til að þroska þær og efla.
Veittu öðrum tækifæri. Sam-
keppnin er smitandi, en hið sama
er líka hægt að segja um samvinn-
una“.
Taugaspenna og taugaálag eru ekki
óvinir, sem þarf endilega að ótt-
ast, því að skilningur á eðli þeirra
og nokkur góð ráð munu geta hald-
ið þeim í skefjum og jafnvel virkj-
að þá orku, sem þar er um að ræða.
Að síðustu mælir dr. Stevenson þessi
orð:
„Taugaspenna er nauðsynlegur
þáttur daglegs lífs og starfs, líkt og
hungur og þorsti. En taugaofþensla
og ofurálag á taugakerfið er slæmt
fyrir manninn. Geri maðurinn sér
grein fyrir bæði hinu góða og slæma
við taugaspennuna, eru jafnframt
meiri líkur á því, að hann notfæri
sér hinn góða og æskilega þátt henn-
ar og hafi stjórn á hinum slæma og
óæskilega þætti hennar."
Gefið Ira lager-bjór í mánuð, og hann drepst. Irar eru nefnilega
húðaðir að innan með kopar, og bjórinn leysir upp koparhúðina. En
whiskyið fágar koparinn og bjargar blátt áfram lifi þeirra.
Mark Twain