Úrval - 01.05.1966, Síða 22
20
ÚRVAL
sjúklinga. Sjúklingar, sem skoðað-
ir voru að nýju 10 árum síðar,
eru enn við góða heilsu. Maður einn,
sem var rúmlega 60 ára gamall,
þegar hann var skorinn upp árið
1952, plægir nú 1600 ekrur lands
á hverju ári. Og annar, sem var
alger öryrki, þegar hann var skor-
inn upp árið 1953, er nú lestar-
stjóri.
Sá dagur kann að koma einhvern
tíma í framtíðinni, að auðvelt mun
reynast að koma í veg fyrir krans-
æðasjúkdóma. Að vísu skortir lækn-
ana enn ákveðna þekkingu á þessu
sviði, en þó byggja þeir álit sitt
á ákveðnum vísbendingum, þegar
þeir gefa fólki viss ráð til þess að
hamla gegn kransæðasjúkdómum.
Þeir ráða fólki til þess að halda
líkamsþyngd sinni og blóðþrýstingi
í skefjum, styrkja líkamann með
nægilegri hreyfingu og hæfilegri á-
reynslu, og temja sér hófsamlegt
mataræði undir lækniseftirliti.
Næstbezta aðferðin í baráttunni
við kransæðasjúkdómana byggist á
skurðaðgerðum, sem geta oft bund-
ið enda á sjúkdóminn, eftir að hann
er tekinn að herja. Skurðlæknar
segja, að nú sé kominn tími til þess
að auka „skynsamlegar skurð-
aðgerðir11 á þessu sviði, þannig að
þær nái til fleiri en áður. Vineberg
er sannfærður um, að „skurðaðgerð,
sem framkvæmd væri nægilega
snemma, gæti nú bjargað 5 millj.
ónum kransæðasjúklinga hér í
Bandaríkjunum, en margir þeirra
geta búizt við hjartaslagi þá og
þegar“ að hans áliti.
Stungið var upp á því, að bæjarráðið skyldi láta byggja „sanatorium"
(heilsuhæli).
„Æ, hvaða gagn væri svo sem í slíkum hlut?“ spurði einn bæjar-
ráðsmaðurinn. „Það er ábyggilega enginn hér I bæ, sem gæti spilað
á það.“
Irar eru þjóð, sem hefur auðugt ímyndunarafl, og sagt er, að því
ímyndunarafli fylgi of oft fremur sérkennileg rökvísi.
Benjamin Disraeli
Guð er góður Irunum, en enginn annar, jafnvel ekki Irarnir sjálfir.
Austin O’Málley
Legsteinasölumaðurinn átti í miklum erfiðleikum. Hann var að fást
við reiða ekkju, sem hafði nýlega frétt, að maðurinn hennar sálugi hefði
arfleitt annan ættingja sinn að mestöllum eignunum.
„Mér þykir það leitt,“ sagði sölumaðurinn, „en þér pöntuðuð leg-
stein með áletruninni „Hvíl í friði“, og nú er of seint að breyta henni."
„Jæja þá,“ sagði ekkjan loks, „en bætið samt við fyrir neðan: „þang-
að til við hittumst aftur.“ Irish Dig.