Úrval - 01.05.1966, Síða 29
NEGLUR OG HIRÐING ÞEIRRA
27
támein getur myndazt, ef of mikið
er gert að því að ýta naglabönd-
unum inn. Þannig myndast óvarið
svæði, og í það setjast óhreinindi,
t.d. upplausn af sykri og sterkju
við uppþvott. Það er fyrirtaks fæða
fyrir sveppi, sérstaklega svepp
þann, sem nefnist „Candida“ og sezt
þarna að.
Aðrar tegundir sveppa ráðast líka
gegn nöglunum. Þeir sveppir
smeygja sér inn í enda naglanna
og dreifast á milli laganna. Oft
dreifast þeir frá sveppum, sem taka
sér bólfestu í mjúku, röku holdinu
á milli tánna, eða frá annarri
hringormasýkingu. Nöglin glatar
þá gljáa sínum og fær á sig kalklit.
Sé ekkert við þessu gert, hættir
sveppnum til þess að dreifast til
annarra nagla. Stundum dugar jafn-
vel ekki að láta taka nöglina, því
að sveppurinn getur samt enn ver-
ið í naglrótinni. Venjulega er þó
hægt að vinna bug á svepp þessum
með því að taka inn griseofulvin-
töflur í langan tíma, a.m.k. nokkra
mánuði. En læknir ykkar mun taka
ákvörðu í því efni.
Hvað á að gera, ef maður lemur á
fingur sér með hamri eða skellir
bílhurðinni á fingurgómana? Nögl-
in verður purpurarauð, og þetta
veldur óskaplegum kvölum. Það
blæðir undir nöglina, og henni hætt-
ir til þess að losna af rótinni. Því
dettur nöglin oft af, ef ekkert er að
gert. Ein aðferð, sem að gagni getur
komið, er að taka pennahníf og
beina oddinum að svarta blettinum
undir nöglinni. Síðan á að bora
smágat á nöglina með honum, ofur
varlega. Þá mun blóðið spýtast út
og verkurinn hverfa, en nöglin fær
sinn eðlilega, Ijósa roða að ’lýju.
Enn betra er þó að búa vel um
fingurinn og fara til læknis. Hann
er sjálfsagt miklu leiknari á þessu
sviði en þið.
3HC
Bessie litla var í fyrsta matreiðslutímanum sínum og var spurð að
því, hvernig bezt væri að koma I veg fyrir, að mjólk súrnaði. Bessie
litla var mjög hagsýn telpa og gaf uppskriftina í hvelli:
„Skilja hana eftir í beljunni.'
Gömul kona gekk til prestsins sins að guðþjónustu lokinni í kirkju
einni i Belfast og þakkaði honum fyrir ræðuna.
„Þér vitið það bara ekki, hversu mikla þýðingu orð yðar höfðu fyrir
mig,“ sagði hún. „Þau voru eins og vatn handa drukknandi manni.“
Þeir eru fáir, sem hal'a aldrei fengið tækifæri til þess að öðlast ham-
ingjuna, og enn færri eru þeir, sem hafa gripið það tækifæri.
André Maurois